Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.02.2004, Side 28

Víkurfréttir - 26.02.2004, Side 28
28 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Hugleiðingar þær semhér fara á eftir urðu tilþegar mér var boðið að koma og vera viðstaddur þegar tekin yrði fyrsta hraun- hellan vegna fyrirhugaðra ný- framkvæmda nýrrar með- ferðarstöðvar í Bláa lóninu fyrir Psoriasis sjúklinga. Þar var saman kominn heill her manna til að vera vitni að þessum miklu og nauðsynlegu framkvæmdum til handa psoriasis-sjúklingum þessa lands sem og annarra en eins og fram kom í ræðu manna, á að fara að leggja mun ríkari áherslu á að fá hingað útlend- inga til meðferðar. Þessi at- höfn var mjög virðuleg enda fjöldi fyrirmanna mættir á svæðið. Það sem fékk mig hinsvegar til að stinga niður penna, var tæki- færisræða nýja bæjarstjórans í Grindvík, sem þakkaði Heilsu- félaginu fyrir farsæl störf um langan tíma og tók fram í leið- inni að „reykvískur psoriasis- sjúklingur“ hefði fyrstur manna reynt lækningamáttinn þarna, þegar verið var að hefja hita- veituframkvæmdir á svæðinu. Oft í gegnum árin hafa svona söguskýringar skotið upp koll- inum, þegar Bláa lónið hefur borið á góma við hin ýmsu tækifæri. Má t.d. nefna þegar SPOEX samtök psoriasis og ex- emsjúklinga gaf út afmælisbæk- ling í tilefni af 30 ára afmæli fé- lagsins. Þar heldur Gísli Krist- jánsson, sá ágæti maður því fram að hann eigi allan heiður- inn af því að hafa fundið upp lækningamáttinn í Bláa lóninu. Hann hafi dvalið þar langdvöl- um á hverjum degi á árunum 1978 til 1981. Enginn hafi bara vitað af þessu og hann hafi bara viljað njóta þess aleinn í heim- inum að fá lækningu þarna. Samt var hann í stjórn SPOEX á þessum árum og maður hefði haldið að hann hefði viljað deila þessum stórkostlega lækninga- mætti með félögunum. Nei al- deilis ekki, hann fór bara einn og sagði engum frá í heila tvo áratugi eða þar til viðtalið við hann er tekið á 30 ára afmæli félagsins. Fleiri svona sögu- skýringar hafa af og til skotist upp. Allir vilja Lilju kveðið hafa. En þá er komið að því sem ég vildi sagt hafa. Það var ekki bara „einhver Reykvíkingur“ og ekki heldur bara „Gísli Krist- jánsson“ eða einhverjir aðrir, sem böðuðu sig þarna fyrstir og fundu út að þessi affallssjór sem vall þarna upp úr iðrum jarðar, hefði þennan mikla lækninga- mátt sem raun ber vitni. Heldur var það undirritaður sjálfur sem baðaði sig þarna langfyrstur allra, til að kanna lækningamátt þessa affallssjávar, en á þeim tíma sögðu menn að ég hlyti að vera kolbrjálaður að ætla mér að taka þennan mikla sjéns og fara að baða mig í þessum „drullupolli“ eins og yfirlæknir- inn orðaði það, en það var í byrjun september 1981. Í fyrsta lagi væri botninn stórhættulegur vegna hvassra og beittra hraun- nibba sem auðveldlega hefðu getað skaðað mann og í öðru lagi gætu ýmis eiturefni verið í þessum legi sem gætu verið stórskaðleg heilsunni, auk þess sem hitastigið væri mjög sveiflukennt og gætu menn því brennt sig alvarlega. Enginn vildi hleypa mér þarna ofan í og varð ég að fá sérstakt leyfi frá þáverandi hitaveitustjóra Ingólfi Aðalsteinssyni sem í upphafi neitaði mér alfarið um þessa „fífldjörfu ævintýramennsku“ eins og hann orðaði það, enda hefðu menn forðast að komast í snertingu við þennan lög. En ég gafst ekki upp og að lokum samþykkti hitaveitustjórinn að líta í hina áttina, en þetta yrði al- farið á mína eigin ábyrgð. Það var því talsverð spenna meðal starfsmanna Hitaveitunnar, þeg- ar ég mætti í fyrsta skipti til að baða mig, enda höfðu þeir á orði að ég væri sá fyrsti sem reyndi þessa böðun. En svo ég geri langa sögu stutta að þá fann ég strax að þarna hafði eitthvað merkilegt átt sér stað. Mig hætti t.d. að klæja á 3ja degi og áður en mánuðurinn var liðinn var ég nánast bletta- laus. Eitthvað sem ég hafði ekki verið, frá því að ég fékk sjúk- dóminn á unga aldri. Þegar fregnir spurðust út um þennan bata minn, kom dag- blaðið Vísir að máli við mig til að forvitnast um það „krafta- verk“, sem þarna hafði átt sér stað og enginn hafði vitað um áður, endar var viðtalið tekið við mig sem upphafsmann böð- unar þarna. Ég man að þessi ungi fréttamaður, vildi endilega kalla þetta svæði einhverju nafni, það hljómaði svo miklu betur í fréttinni, eins og hann orðaði það. Ég tjáði honum að þessar hitaveituframkvæmdir væru undir fjallinu Þorbirni, en ég kallaði sjálfan pollinn, Bláa lónið, því það var svo fagur- blátt. Þarna kemur þetta orð í fyrsta skipti fram á prenti. Greinilega hefur mönnum litist vel á þetta nafn, því það festist við staðinn eftir að ég hafði gef- ið staðnum þessa nafngift. Ég vil því meina að ég undirrit- aður, sé upphafsmaður að kalla þennan stað, Bláa lónið, auk þess sem ég tel mig hafa verið fyrstan til að baða mig þarna til að kanna lækningamátt þessa jarðsjávar. Ég minnist þess, að áður en ég fór í þessa böðun, að þá hafði ég samband við húðlækni minn, þar sem ég tjáði honum fyrir- ætlanir mínar. Hann hafði enga fordóma gagnvart þessum hug- myndum og hvatti mig til að prófa. Yfirlæknir húðdeildar- innar á Landspítalanum var hinsvegar á öðru máli og taldi að þetta væri drullupollur sem engin áhrif myndu hafa. Þess má svo geta að sífellt fleiri og fleiri fóru að mæta þarna og baða sig með sömu áhrifum og ég hafði upplifað. Frá upphafi lá ég aldrei á þessum upplýsing- um og vildi að sem flestir gætu notið þessa lækningamáttar sem ég hafði uppgötvað á eigin spýt- ur. Með þessum orðum mínum er ég hvorki að státa mig af þessu né að agnúast yfir áframhald- andi uppbyggingu við Bláa lón- ið fyrir psoriasis-sjúklinga, síð- ur en svo. Mér finnst hinsvegar þegar menn á tyllidögum sem þessum eru að rifja upp tilurð Bláa lónsins þar sem verið er að eigna hinum og þessum heiður- inn af því að hafa uppgötvað þennan lækningamátt, að þá megi sannleikurinn fá að njóta sín. Valur Margeirsson, psorisissjúklingur. ➤ V A L U R M A R G E I R S S O N S K R I F A R Leiðrétt útgáfa um tilurð Bláa lónsins Valur Margeirsson við böðun í Bláa lóninu fyrir nokkrum árum. Lögreglan í Keflavík hefurþurft að hafa síendurtek-in afskipti af pramma sem stendur í Njarðvíkurhöfn vegna æðarfugla sem þar hafa drepist. Undir prammanum eru göt sem æðarfuglinn kafar upp um og festist með því inn í lest prammans og kemst fugl- inn ekki út nema stuggað sé við honum. Pramminn hefur verið bundinn við bryggju í Njarðvíkurhöfn í nokkur ár, en hann var notaður við uppbyggingu grjótgarðs við Keflavíkurhöfn. Að sögn Svavars Einarssonar framkvæmdarstjóra SEES ehf. hefur fyrirtækið nokk- uð lengi reynt að selja pram- mann. „Það hefur staðið til í nokkur ár en lítið gengið í því máli,“ sagði Svavar í samtali við Víkurfréttir. Víkurfréttir könnuðu prammann í síðustu viku og á prammanum var nokkuð stórt op sem auð- veldlega er hægt að detta niður um, en um fjórir metrar eru niður á botn lestar prammans. Svavar vildi að það kæmi skýrt fram að hann teldi prammann og svæðið í kring ekki vera leiksvæði barna. Tæplega tuttugasti hveríbúi Suðurnesja er af er-lendu bergi brotinn eða 761 einstaklingur. Flestir koma íbúarnir frá Póllandi eða 309 einstaklingar. Frá Danmörku og Taílandi koma 59 einstak- lingar frá hvoru landi og frá Filippseyjum koma 46 íbúar. Íbúar á Suðurnesjum með er- lent ríkisfang eru alls af 49 þjóðernum. Hæst hlutfall íbúa með erlent rík- isfang er í Garðinum en þar eru um 10% íbúa af erlendu bergi brotnir. Í Sandgerði búa 105 íbú- ar með erlent ríkisfang eða rúm 7,5% af heildaríbúafjöldanum. Í Vogum á Vatnsleysuströnd eru 54 íbúar af erlendu bergi brotnir eða tæp 6%. Í Grindavík eru 120 íbúar með erlent ríkisfang eða tæp 5% af íbúafjöldanum og 3,25% af íbúum Reykjanesbæjar eru íbúar með erlent ríkisfang eða 354 einstaklingar. Tíundi hver Garðmaður af erlendu bergi brotinn Dauðagildra æðafugla við Njarðvíkurhöfn 9. tbl. 2004 umbrot hbb 25.2.2004 15:22 Page 28

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.