Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.02.2004, Blaðsíða 21

Víkurfréttir - 26.02.2004, Blaðsíða 21
VÍKURFRÉTTIR I 9. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 26. FEBRÚAR 2004 I 21 Ég tel Suðurnesin vera í lykil- stöðu í þessum efnum, bæði hvað varðar nálægðina við flutn- ingsleiðir og ekki síður nálægð- ina við fiskimiðin sem gefa besta fiskinn í þessa vinnslu. Það þarf t.d. rétt að fara út fyrir bryggju- sporðana á haustin hérna í Flóan- um til að sækja aflann að landi á snurvoðinni.“ Mikil tækifæri fyrir Suðurnesjamenn En finnst Sæmundi nóg að gert við að benda á þessa möguleika hér á Suðurnesjum? „Það er vakning í gangi varðandi ferska fiskinn sem hefur haft töluvert forskot á frosinn fisk. Ég reikna með því að menn nýti sér þá kosti sem Suðurnesin hafa fram yfir aðra landshluta. Ég get bara ekki ímyndað mér annað,“ segir Sæmundur og hann telur að Suð- urnesjamönnum vaxi fiskur um hrygg á nýjan leik. „Það er bara svo margt sem mælir með því. Bara það að geta hámarkað af- raksturinn af því sem við erum að veiða er náttúrulega broddur- inn í þessu kerfi og þannig þurf- um við að hugsa.“ Það er flókið að sjá um sölumál fyrir ferskan fisk og segir Sæ- mundur að þau sjái einungis um þau mál að hluta. „Við höfum verið svo lánsöm að vera í góðu samstarfi við aðila sem hafa séð um þessa þætti fyrir okkur. Það er eitt að vera framleiðandi og annað að vera söluaðili og þurfa m.a. að berjast í því að ná pláss- um í flugvélunum.“ Helstu markaðir fyrirtækisins í dag eru í Bandaríkjunum og Bretlandi, en til skamms tíma var megnið af útflutningi fyrirtækis- ins á Bandaríkjamarkað. „Við þróuðum okkar ferskfiskvinnslu fyrir Bandaríkjamarkað og til skamms tíma vorum við eina húsið á landinu sem hafði sér- hæft sig í því að vinna ferskan flatfisk. Í dag hafa markaðirnir færst meira yfir á Evrópu mest vegna veikrar stöðu dollarans.“ Ein og hálf milljón á góðum degi Þegar talið berst að veltunni segir Sæmundur að fyrsta daginn sem þau ráku fiskbúðina hafi þau selt fyrir sjö þúsund krónur. Á góð- um degi eru þau að selja fisk fyr- ir eina og hálfa milljón. Þegar hann er spurður hvort hann hafi ekki gott upp úr þessu svarar hann: „Ég held að það verði eng- inn stórefnaður á þessu. Þegar ég fór í land var markmiðið hjá mér að hafa ofan í okkur og á og það er það sem hefur tekist hjá okkur hjónunum. Ég setti mér aldrei þau markmið að verða ríkur á þessu,“ segir Sæmundur og bros- ir. En hvert er markmiðið í dag? „Markmiðin í dag eru þau að sjá þennan atvinnurekstur okkar plumma sig í framtíðinni. Við höfum nú verið í þessu í 20 ár og við höfum komið þessu í gott horf í dag. Við erum að framleiða hráefni hér sem ég tel það besta í heiminum í dag til matargerðar, þ.e. íslenska fiskinn. Það var draumur hjá okkur hjónunum að búa umgjörð um þennan rekstur sem við gætum verið stolt af og það erum við í dag.“ Sæmundur ásamt Björgvini Guðmundssyni framleiðslustjóra í pökkuninni, en Björgvin er meðeigandi Sæmundar og Auðar. „Þegar talið berst að veltunni segir Sæ- mundur að fyrsta daginn sem þau ráku fiskbúðina hafi þau selt fyrir sjö þúsund krónur. Á góðum degi eru þau að selja fisk fyrir eina og hálfa milljón á dag“ Daglegar fréttir á Netinu www.vf.is 9. tbl. 2004 umbrot hbb 25.2.2004 14:39 Page 21

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.