Víkurfréttir - 26.02.2004, Side 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Tónlistarfélag Reykjanesbæjarstendur fyrir hádegistónleikum íListasafni Reykjanesbæjar þriðju-
daginn 2. mars n.k. í samstarfi við Ís-
lensku Óperuna.Yfirskrift tónleikanna
er „Nú er það svart“ og mun Davíð
Ólafsson bassasöngvari flytja „negra-
sálma“ við undirleik hljómsveit-
ar. Davíð starfar við Ís-
lensku Óperuna og er
um þessar mundir á
lokaæfingum fyr-
ir Brúðkaup Fig-
arós. Samstarf-
ið við Íslensku
Óperuna er
tilrauna-
verkefni
og ef
undirtektir
verða góðar
er hugsanlegt
að Tónlistarfé-
lagið standi fyr-
ir fleiri hádegis-
tónleikum í fram-
tíðinni. Davíð segir
slíka tónleika næringu á
líkama og sál og brjóta upp dag-
inn hjá fólki.
Nú er það svart - fyrir hvað stendur
það?
Þetta stendur ekki fyrir slæmum horf-
um. Þetta er bara fallega meintur
útúrsnúningur. Ég var bara í
vandræðum með nafn-
giftina á þessari
dagskrá.
Þetta er blanda
af gospel-
sálmum og blökkumannasöngvum og það
var bara mjög erfitt að finna samheiti yfir
þetta. Þetta eru því söngvar svartra manna,
svo að nú er það svart!
Á þessi tónlist erindi við okkur?
Þetta eru söngvar þræla sem biðja fyrir
betra lífi. Þeir eru kúgaðir og njóta engra
mannréttinda og þeir leita sér huggunar í
söng. Þetta er ekki haturs og hefndarboð-
skapur heldur óska þeir sér frelsis, ef ekki
hér á jörðu þá í hinu eilífa lífi hjá guði.
Þeir voru svo undirokaðir að þeir
urðu að leita út fyrir hið jarðneska
til að finna vonina og héldu
mjög fast í hana. Við erum oft
undirokuð af veraldlegum hlut-
um og dótinu sem við erum að
safna í kringum okkur en
gleymum oft því sem skiptir
máli. Það verða allir að eiga
einhverja von. Það er
sammannlegt.
Eru hádegistónleikar að vera
vinsælir? Hvað er það sem
heillar fólk við það fyrirkomu-
lag?
Þetta hefur slegið í gegn í Reykja-
vík og það er örtröð fyrir utan óperuna
fyrir hverja tónleika. Við byrjum 12:15 og
klárum um 12:50. Passar nákvæmlega
fyrir þá sem fá bara klukkutíma hádegis-
hlé. Það er alltaf eitt ákveðið þema og
margir eru áhugasamir að kynnast ein-
hverju nýju. Þetta brýtur daginn upp hjá
fólki og mér er sagt að afköst þeirra sem
sæki þessa tónleika margfaldist eftir há-
degi. Svo er þetta alveg kaloríusnautt
og ef að fólk klappar mikið
næst út úr þessu töluverð
brennsla. Reyndar
eru seldar
léttar
veit-
ingar fyrir og eftir tónleika en endurnær-
ingin er algjör á líkama og sál.
Hvaða lög verða á efnisskránni?
Ég valdi lögin með Daníel Bjarnasyni pí-
anóleikara en hann útsetti þetta fyrir klar-
inettu, fiðlu, selló og píanó. Við tökum
dýpri deildina með lögum eins og Go
down Moses, Ol man river og Deep river
Jordan. Svo erum við með lög úr Porgy
and Bess og fleira í þeim dúrnum. Þessi
dagskrá fékk frábærar viðtökur í óper-
unni og við höfum spilað úr þessu t.d. í
sjónvarpinu og vakið mikla athygli.
En hvers vegna að koma með þetta til
Reykjanesbæjar?
Það var aldrei á dagskrá. En í jólaboðun-
um hér syðra var mikið spurt um þetta og
fólk mjög áhugasamt. Ég hafði því sam-
band við tónlistarfélagið og í samvinnu
við Íslensku óperuna var látið vaða. Það er
komin stórkostleg aðstaða í kringum
Duushúsin og ég held að bæjarbúar séu að
ranka við sér.
Öll sú athygli sem menningarlífið er að fá
á landsvísu er allveg gríðarleg söluvara
fyrir bæjarfélagið. Svo er öflugt menning-
arlíf líka lífsgæði sem bætir sjálfsímynd
fólks, og skapar þannig vænlegt bæjarfé-
lag sem eftirsótt er að búa í.
Tónleikarnir hefjast kl. 12.15 í Listasafni
Reykjanesbæjar og standa til 12.50. Miða-
sala er við innganginn
og er miðaverð kr.
1.000.
Söngvar svartra manna
➤ H Á D E G I S T Ó N L E I K A R T Ó N L I S TA R F É L A G S R E Y K J A N E S B Æ J A R Í D U U S H Ú S U M
- Davíð Ólafsson bassasöngvari flytur „negrasálma“ við undirleik hljómsveitar
„Öll sú athygli sem menningarlífið er að fá á landsvísu er all-
veg gríðaleg söluvara fyrir bæjarfélagið. Svo er öflugt menn-
ingarlíf líka lífsgæði sem bætir sjálfsímynd fólks, og skapar
þannig vænlegt bæjarfélag sem eftirsótt er að búa í“
9. tbl. 2004 umbrot hbb 25.2.2004 14:07 Page 14