Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.02.2004, Page 10

Víkurfréttir - 26.02.2004, Page 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Nýr plastbátur, Ósk KE-5var sjósettur á dögun-um og er það stærsti plastbátur sem smíðaður hefur verið á Íslandi, 25 brúttótonn að stærð. Bátasmiðjan Seigla smíðaði bátinn. Einar Magnús- son útgerðarmaður er eigandi bátsins, en sem kunnugt er gerði hann Ósk KE-5, 90 tonna stálskip út frá Keflavík. Nýi báturinn er vel tækjum bú- inn. Um borð er f imm tonna krani sem notaður er fyrir neta- niðurleggjara og löndun. Í bátn- um eru tvær 450 hestafla Cumm- ins vélar og er ganghraði bátsins um 30 sjómílur. Hliðarskrúfa er í bátnum sem tengd er sjálfstýr- ingu og sjótankar sem taka 4 tonn af sjó, en magninu í tönkun- um er stýrt með tölvu. Í bátnum eru fullkomin siglinga-, fiskileit- ar- og fjarskiptatæki frá fyrirtæk- inu Brimrún. Í bátnum eru þrír tölvuskjáir og er internettenging um borð í bátnum. Á bátnum er fellikjölur sem er nýjung í flatbotna bátum sem þessum, en hlutverk kjölsins er að gera bátinn stöðugri þegar hann er á veiðum. Kjölurinn er 10 metra langur og gengur 40 sentimetra niður úr bátnum þegar hann er felldur niður. Að sögn Einars Magnússonar skipstjóra er hann alveg í skýjun- um með bátinn. „Við erum að- eins búnir að prófa hann og þurf- um aðeins að slípa nokkra hluti til,“ sagði Einar í samtali við Víkurfréttir. A tvinnuráðgjafi SSS,Svæðisvinnumiðlun ogMiðstöð símenntunar á Suðurnesjum buðu aðilum í ferðaþjónustu í óvissuferð á dögunum. Markmiðið með ferðinni var að kynna starfs- semi þessarra stofnanna ásamt því að þátttakendur kynnist innbyrðis og heyri hvaða verkefni eru í gangi. Þátttakendur mættu í Miðstöð símenntunar þar sem rúta beið þeirra og haldið var út á Reykjanes. Helga Ingimundar- dóttir leiðsögumaður fór fyrir hópnum og sagði frá áhuga- verðum stöðum og staðreynd- um um svæðið. Farið var í Salt- fisksetrið þar sem þátttakendur fengu léttar veitingar. Guðbjörg Jóhannsdóttir atvinnufulltrúi fór yfir átak í atvinnumálum sem hrundið var af stað fyrir stuttu og verkefnum sem eru í gangi tengd ferðaþjónustunni. Guð- jónína Sæmundsdóttir forstöðu- maður Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum kynnti náms- framboð miðstöðvarinnar sem tengist ferðaþjónustu. Ketill Jósefsson greindi frá möguleik- um fyrirtækja til að sækja um í sjóði atvinnuleysistrygginga- sjóðs. Fyrirtæki geta sótt um fyrir sérstökum átaksverkefn- um, til að taka starfsfólk í starfsþjálfun, reynsluráðningu og starfskynningu. Að loknum erindum kynntu þátttakendur sig og sögðu frá verkefnum í þeirra fyrirtækjum. Að sögn Guðbjargar tókst vel til og er hugsanlegt að endurtaka með öðrum starfsstéttum. ➤ N Ý Ó S K K E 5 S J Ó S E T T Stærsti plastbátur sem smíð- aður hefur verið á Íslandi Ferðaþjónustufólk í óvissuferð 9. tbl. 2004 umbrot hbb 25.2.2004 14:06 Page 10

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.