Víkurfréttir - 26.02.2004, Side 11
VÍKURFRÉTTIR I 9. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 26. FEBRÚAR 2004 I 11
Æfingahús-
næði fyrir
hljómsveitir
í 88 húsinu
Upplýsinga- og menning-armiðstöð ungs fólks íReykjanesbæ, 88 húsið
í samstarfi við Tómstunda-
bandalag Reykjanesbæjar
hefur í hyggju að bjóða ungu
tónlistarfólki upp á aðstöðu
til æfinga í 88 húsinu.
Verið er að kanna áhuga hljóm-
sveita og tónlistarfólks á því
hvort það hafi áhuga á að koma
sér upp æfingaaðstöðu í hús-
næðinu. Áætlað er að hver
hljómsveit leggi fram 7 þúsund
krónur á mánuði sem leigu, en
hljómsveitirnar verða sjálfar að
útvega tækjabúnað. Allar nánari
upplýsingar veitir Jón Marinó í
síma 864-6795.
Keflavíkurkirkja ogverkalýðsfélög á Suður-nesjum bjóða atvinnu-
lausum á Alfa - námskeið í
Kirkjulundi, safnaðarsal
Keflavíkurkirkju þriðjudaginn
2. mars nk. kl. 12:00.
Alfa er áhugavert og lifandi nám-
skeið sem byggt er á kristnum
grunni og fjallar um ýmsar til-
vistarspurningar sem við öll
erum að glíma við í okkar dag-
lega lífi. Það á uppruna sinn á
Englandi og er nú kennt í 137
löndum. Fyrirhugað er að halda
þetta námskeið í Keflavíkur-
kirkju á þessari önn ef næg þátt-
taka verður. Námskeiðið stendur
yfir í 10 vikur og mæta þátttak-
endur einn dag í viku, frá kl.
12:00 til 15:00. Það hefst með
sameiginlegri máltíð, þá er fyrir-
lestur svo umræður og að lokum
stutt helgistund. Þegar námskeið-
ið er hálfnað er farið út úr bæn-
um yfir eina helgi þar sem haldið
er áfram að fara yfir efni þess.
Námskeiðið er hugsað fyrir at-
vinnulausa hér á Suðurnesjum og
verður þátttakendum að kostnað-
arlausu.
Áhugasamir eru vinsamlegast
beðnir um að tilkynna þátttöku í
síma 420-4300 eða 421-5181 /
864-5436 fyrir kl. 18:00 mánu-
daginn 1. mars nk.
Alfa námskeið í boði
fyrir atvinnulausa
Hundur bítur
sjö ára dreng
í Garðinum
S jö ára drengur var bitinnaf hundi í Garðinum, enlögreglunni í Keflavík
var tilkynnt
um atburðinn.
Faðir drengs-
ins fór með
hann til skoð-
unar á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja, en
drengurinn var með rispur og
mar á báðum höndum. Fram
kemur í dagbók lögreglunnar
að hundurinn hafi verið svart-
ur að lit.
stuttar
f r é t t i r
9. tbl. 2004 umbrot hbb 25.2.2004 14:06 Page 11