Víkurfréttir - 26.02.2004, Síða 15
VÍKURFRÉTTIR I 9. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 26. FEBRÚAR 2004 I 15
Áttu muni sem
tengjast tíma-
bili Hljóma?
Undirbúningur fyrirsöngleik nemenda Fjöl-brautaskóla Suðurnesja,
„Bláu augun þín“ gengur vel.
Allt er í fullum gangi og ganga
æfingar vel. Frumsýnt verður
þann 19. mars í Stapa og verða
um 5 sýningar á söngleiknum.
Nemendur FS vantar leikmuni
og búninga til að nota í sýning-
unum. Suðurnesjamenn eru
því hvattir til að fara í geymsl-
urnar sínar og athugað hvort
þeir eigi ekki eitthvað sem þeir
geta lánað til sýningarinnar.
Það vantar sem sagt allt mögu-
legt frá tímabilinu 1963 til dags-
ins í dag. S.s. hárkollur og fatn-
að. Einnig vantar fylgihluti eins
og t.d. gleraugu, sólgleraugu,
skartgripi (plast), skó, hatta o.fl.
Hljóðfæri (gítar, gítarkassa),
bassi, trommusett, munnharpa,
gamla hljóðnema. Þá vantar
dýragrímur (helst úr gúmmíi).
Þeir sem geta hjálpað okkur eru
beðnir um að hafa samband við
nemendurna Kristínu Rúnars í
síma: 867-2090 og Kristínu
Björk í síma: 866-8813, segir í
tilkynningu frá nemendum við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
SÖNGLEIKUR Í FS
9. tbl. 2004 umbrot hbb 25.2.2004 14:08 Page 15