Víkurfréttir - 26.02.2004, Síða 24
24 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Umsjón: Þorgils Jónsson • sími 868 7712
sport@vf.issportið
Úrslit og staða
KEFLAVÍK-GRINDAVÍK 94-90
Keflavík: Nick Bradford 24/14, Derrick Allen 21/15, Gunnar Einars-
son 13.
Grindavík: Darrel Lewis 32, Páll Axel Vilbergsson 24, Jackie Rogers
17/10.
NJARÐVÍK-HAUKAR 79-70
Njarðvík: Brandon Woudstra 34, Friðrik Stefánsson 16/11, Brenton
Birmingham 16.
Haukar: Sævar Haraldsson 17, Whitney Robinson 13.
KEFLAVÍK-KFÍ 124-89
Keflavík: Derrick Allen 27, Fannar Ólafsson 22/10, Nick Bradford
13/14, Gunnar Einarsson 15, Gunnar Stefánsson 13, Magnús Þór
Gunnarsson 10, Jón Norðdal 8/9/9.
KFÍ: Troy Wiley 30/14, Pétur Sigurðsson 21, JaJa Bey 15, Bethuel
Fletcher 12.
1. Snæfell 19 16 3 32
2. Grindavík 19 15 4 30
3. Keflavík 19 13 6 26
4. Njarðvík 19 12 7 24
5. Haukar 19 11 8 22
6.Tindastóll 19 10 9 20
7. KR 19 10 9 20
8. Hamar 19 9 10 18
9. ÍR 19 6 13 12
10. KFÍ 19 4 15 8
11. Breiðablik19 4 15 8
12. Þór 19 4 15 8
V íkurásmót 4. flokks pilta íknattspyrnu fór fram íReykjaneshöllinni s.l.
laugardag. Um var að ræða
hraðmót þar sem leiknir voru 1 x
27 mín. leikir. Þátttökulið voru:
Keflavík, Njarðvík, Selfoss, Ung-
mennafélag Bessastaðahrepps og
Víkingur Reykjavík.
Keppnin var gríðarlega jöfn og réð-
ust úrslitin í síðasta leik, sem var
viðureign Keflavíkur og Umf.
Bessastaðahrepps. Fyrir þann leik
áttu þrjú lið möguleika á sigri í
mótinu þar sem sigur hjá öðru
hvoru liðinu myndi færi þeim titil-
inn en jafntefli þýddi að Víkingar
stæðu uppi sem sigurvegarar. Leik-
ar fóru þannig að Keflavíkurpiltar
stóðu uppi sem sigurvegarar eftir
sannfærandi sigur í síðasta leiknum
gegn Umf. Bessastaða, 4-1. Kefl-
víkingar spiluðu mjög vel á mótinu
og var mikill stígandi í þeirra leik.
Mótið tókst í alla staði mjög vel og
fóru allir sáttir heim í mótslok vel
mettir af pizzum frá Langbest.
Lokastaðan á mótinu:
Sæti Lið Stig Mörk
1. Keflavík 9 5+
2. Víkingur 9 2+
3. Umf. Bess. 6 3+
4. Njarðvík 3 -4
5. Selfoss 3 -6
5. flokkur Njarðvíkinga vann til
silfurverðlauna á Íslandsmeist-
aramótinu í knattspyrnu innan-
húss sem kláraðist um síðustu
helgi. Njarðvíkingar unnu alla
leiki sína í riðlakeppninni og
unnu Hött í undanúrslitum, 3-1.
Á heimasíðu Njarðvíkinga kem-
ur fram að þeir töpuðu, 1-3, í úr-
slitum gegn ÍA eftir skemmtileg-
an leik. Skagamenn náðu foryst-
unni í fyrri hálfleik með slysa-
legu sjálfsmarki og juku svo for-
skotið í byrjun seinni hálfleiks.
Lúkas Malesa kom Njarðvíking-
um aftur inn í leikinn með góðu
marki, en þrátt fyrir þunga sókn
náðu þeir ekki að jafna. Þriðja
mark Skagamanna kom svo rétt
áður enn lokaflautið gall og
tryggði þeim sigurinn endanlega.
Þetta var í fyrsta skipti sem
Njarðvíkingar hafna í verðlauna-
sæti í úrslitum innanhúss, en þeir
hafa nokkrum sinnum áður náð
inn í úrslitakeppnina. Þetta verð-
ur að teljast mjög góður árangur
því þeir æfa ekkert við þessar að-
stæður og eini undirbúningurinn
fyrir þetta mót var æfingaleikur
út í Garði í síðustu viku.
Þess má einnig geta að þessir
sigursælu drengir eru úr þeim
tveimur liðum sem náð hafa að
sigra á Shell-mótinu í Vest-
mannaeyjum síðustu tvö ár.
11. flokkur Keflavíkurdrengja
hefur verið að gera góða hluti í
körfuboltanum að undanförnu
þar sem þeir eru komnir í bik-
arúrslitin gegn Fjölni eftir
sigra gegn Snæfelli, Haukum
og Skagamönnum. Þá keppa
þeir á Íslandsmótinu um næstu
helgi, en leikirnir fara fram í
Valsheimilinu.
11. flokkur Keflavíkur verða
ekki einu fulltrúar Suðurnesja
í bikarúrslitum yngri flokka
þar sem Njarðvíkingar eiga
fjögur lið og Grindvíkingar
þrjú auk þess sem Keflvíkingar
eiga lið í úrslitum unglinga-
flokks kvenna og 10. flokks
kvenna. Úrslitaleikirnir fara
fram helgina 6.-7. mars.
Damon
Johnson
spilar í
efstu deild
á Spáni
Körfuboltakempan ogKe f l v í k i n g u r i n nDamon Johnson
skrifaði fyrir nokkru undir
samning við lið Murcia sem
leikur í efstu deildinni á
Spáni. Spænska deildin er
ein sú sterkasta í heimi í
dag og þykir því mikið af-
rek hjá Damon að komast
að þar, en Murcia vermir
botnsæti deildarinnar um
þessar mundir.
Damon lék með Caceras í
næstefstu deild Spánar fram-
an af vetri og stóð sig mjög
vel þar, en félagið hafði hins-
vegar verið í vandræðum
með að standa við launa-
greiðslur til Damons og því
tók hann boði Murcia um að
leika með þeim út tímabilið.
Hann hefur leikið þrjá leiki
með Murcia til þessa og
skorað tæp 14 stig að meðal-
tali, en leikirnir hafa allir tap-
ast.
Guðmundur
Jónsson
fingurbrotinn
Guðmundur Jónsson,bakvörður körfu-knattleiksliðs Njarð-
víkur, fingurbrotnaði á
dögunum og verður frá í
fjórar vikur. Hann varð
fyrir meiðslunum í ung-
lingaflokksleik gegn Fjölni
og spilaði brotinn allan
seinni hálfleikinn. Þetta er
nokkuð áfall fyrir Njarð-
víkinga þar sem Guðmund-
ur hefur verið að festa sig í
sessi sem meistaraflokks-
maður í vetur, en þar að
auki er Egill Jónsson, mið-
herji, að ná sér eftir erfið
veikindi og verður varla
leikfær fyrr en á sama tíma
og Guðmundur.
Úrslit og staða
NJARÐVÍK-GRINDAVÍK 48-59
Njarðvík: Andrea Gaines 16/12, Auður Jónsdóttir 13, Ingibjörg Vil-
bergsdóttir 12.
Grindavík: Kesha Tardy 23/16, Sólveig Gunnlaugsdóttir 15, Petrúnella
Skúladóttir 13.
KEFLAVÍK-KR 73-57
Keflavík: Rannveig Randversdóttir 17, Birna Valgarðsdóttir 14, Anna
María Sveinsdóttir 13/14, Erla Þorsteinsdóttir 11/14.
KR: Sigrún Skarphéðinsdóttir 11, Lilja Oddsdóttir 11, Katie Wolfe 10
GRINDAVÍK-ÍS 73-68
Grindavík: Ólöf Pálsdóttir 21, Kesha Tardy 15.
ÍS: Hafdís Helgadóttir 17, Stella Kristjánsdóttir 16, Alda Leif Jónsdótt-
ir 15/11.
NJARÐVÍK-ÍR 51-77
Njarðvík: Andrea Gaines 32/16, Sæunn Sæmundsdóttir 13/8
ÍR: Eva Grétarsdóttir 14, Ragnhildur Guðmundsdóttir 12, Hrefna
Gunnarsdóttir 10.
Staðan:
1. Keflavík 18 15 3 30
2. ÍS 18 12 6 24
3. KR 18 10 8 20
4. Grindavík 18 8 10 16
5. Njarðvík 18 7 11 14
6. ÍR 18 2 16 4
■ 1. DEILD KVENNA Í KÖRFUKNATTLEIK
■ INTERSPORT-DEILDIN Í KÖRFUKNATTLEIK
5. flokkur Njarðvíkur í öðru sæti
Íslandsmót í knattspyrnu innanhúss:
Góður árangur 11. flokks
drengja frá Keflavík
Keflvíkingar vinna gullið
Víkurásmót 4. flokks:
FRÉTTASÍMINN
898 2222
Vaktaður allan sólarhringinn!
9. tbl. 2004 umbrot hbb 25.2.2004 14:23 Page 24