Víkurfréttir - 10.02.2005, Side 1
8 Fiskimjölsverksmiðja Samherja í Grindavík varð eldi að bráð í gær:
HEKLA_Vikurfrettir021104.FH11 Tue Nov 02 12:47:23 2004 Page 1
Composite
C M Y CM MY CY CMY K
������������������������
���������������
��������������
������������������
������������������
���������������������
6. tölublað • 2
6. árgangur
Stærsta frétta- og auglýsingablaðið á Suðurnesjum
AÐSETUR: GRUNDARVEGUR 23 • 2. HÆÐ • 260 REYKJANESBÆR • SÍMI 421 0000 • WWW.VF.IS • FRÉTTAVAKT: 898 2222
Stórbruni í Grindavík
„Þetta er rosalegt að sjá, húsið
logar stafna á milli og slökkviliðs-
menn úr Grindavík, af Keflavíkur-
flugvelli og Reykjanesbæ sprauta
á það úr öllum áttum,” sagði Jó-
hannes Kr. Kristjánsson, blaða-
maður Víkurfrétta, sem staddur
var við hús Fiskimjöls og lýsis í
Grindavík í gær. Eldur kviknaði
í húsinu á fjórða tímanum í gær
eftir að sprenging varð í katli við
mjölþurrkara í verksmiðjunni
og er talið að tjónið gæti numið
allt að einum og hálfum millj-
arði króna. Enginn slasaðist í
brunanum. Norðurhús verksmiðj-
unnar, sem er í eigu Samherja,
stóð í björtu báli rétt eftir spreng-
inguna. Starfsmenn, sem voru við
vinnu sína, flúðu strax út úr hús-
inu og engan sakaði.
Þorsteinn Már Baldvinsson hjá
Samherja sagði í samtali við
Víkurfréttir undir kvöld í gær
að óvíst væri með framhald
ve r t í ð a r i n n a r í Gr i n d av í k .
Um 2000 tonn af mjöli voru
í ve r k s m i ð ju n n i o g þ a ð e r
óskemmt, eftir því sem næst
verður komist. Verksmiðjan í
Grindavík afkastaði um 1500
tonnum á sólarhring og er hún
önnur stærsta mjölverksmiðja
landsins.
Nánari fréttir af brunanum var
ekki að hafa þegar blaðið fór
í prentun undir kvöld í gær en
á vef Víkurfrétta er að finna ítar-
lega umfjöllun um brunann og
þar má einnig sjá fjölda ljósmynda
af vettvangi sem ljósmyndarar
Víkur fré t ta , þe i r Þors te inn
G. Kristjánsson, Jóhannes Kr.
Kristjánsson og Páll Ketilsson
tóku.
- tjónið gæti numið allt að einum og hálfum milljarði króna.
Víkurfréttamyndir: Þorsteinn G. Kristjánsson
- Sjáið fleiri myndir á vef Víkurfrétta, vf.is
Fimmtudaguri
nn 10. febrúar
2005