Víkurfréttir - 10.02.2005, Blaðsíða 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
8 Samgönguráðherra tilkynnti um tímamótaákvörðun á 500 manna borgarafundi í Stapa á mánudagskvöld:
Borgarafundurinn sem hald inn var í Stap-anum á mánudag mun
verða lengi í manna minnum
á Suðurnesjum. Á fundinum
greindi samgönguráðherra frá
ákvörðun ríkisstjórnarinnar
um að bjóða út tvö föld un
Reykjanesbrautar frá Fitjum
og inn að tvöföldun austan
við Voga af leggjara á vor-
mánuðum. Mikill fögnuður
braust út meðal fundarmanna
og mynd að ist þverpóli tísk
samstaða meðal stjórnmála-
manna sem fundinn sátu um
ákvörðun ráðherra.
Áhugahópur um örugga Reykja-
nes braut hef ur barist fyr ir
tvöföldun brautarinnar í rúm
fjögur ár og hefur sú barátta ein-
kennst af málefnalegum rökum
sem greinilegt er að þingmenn
og ráðherrar hafa tekið mark
á. Þingmenn sem Víkurfréttir
hafa rætt við eftir fundinn eru
sammála um að áhugahópur-
inn hafi „unnið málið” eins og
þeir orðuðu það. Fulltrúar allra
þingflokka kvöddu sér hljóðs
á fundinum og lýstu þeir allir
yfir stuðningi við ákvörðun ráð-
herra.
Á fundinum sagði samgöngu-
ráðherra að taka þyrfti frá skófl-
una sem hann fékk afhenta á
borgarafundinum árið 2001 því
nú hefði verið tekin ákvörðun
um að það þyrfti að nota hana.
Skóflan var notuð til að taka
fyrstu skóflustunguna að fyrsta
áfanga tvöföldunar Reykjanes-
brautar. Áhugahópur um ör-
ugga Reykjanesbraut afhenti ráð-
herra skófluna stuttu síðar við
mikil fagnaðarlæti viðstaddra.
Sá áfangi sem nú hefur verið
ákveðið að bjóða út er stórt
skref í baráttu Suðurnesja-
manna fyrir tvöföldun Reykja-
nesbrautar. Steinþór Jónsson
formaður áhugahóps um ör-
ugga Reykjanesbraut segir að
baráttunni sé þó ekki lokið því
verkið sé ekki enn hafið.
„Við fögnum ummælum sam-
gönguráðherra að sjálfsögðu en
satt best að segja áttum við ekki
von á jafn afgerandi yfirlýsingu
á þessum fundi sem sýnir okkur
hvað fundurinn mikilvægur og
rétt tímasettur. Við hljótum að
vera stolt af samstöðunni sem
við öll lögðum saman í þessa
baráttu sem nú hefur skilað
okkur þessum áfanga sem við
verðum þó að fylgja eftir. Efst í
mínum huga er þakklæti til sam-
gönguráðherra og ríkisstjórnar
fyrir þessa ákvörðun. Þakklæti
til félaga minna í áhugahópnum
sem hafa allir staðið sig með
mikilli prýði, þingmanna vegna
þeirra samstöðu og íbúa svæðis-
ins fyrir stuðning allt til enda,”
sagði Steinþór í samtali við Vík-
urfréttir.
Mikil ánægja er meðal þingmanna Suður-kjör dæm is um þá
ákvörðun samgönguráðherra
að tvöföldun Reykjanesbrautar
verði boðin út á vormánuðum.
Mar grét Fr í manns dótt ir
þingmaður Samfylkingarinnar
o g f y r s t i þ i n g m a ð u r
Suðurkjördæmis afhenti Stein-
þóri Jónssyni formanni áhuga-
hóps um örugga Reykjanesbraut
og samgönguráðherra bleikar
rósir frá þingmannahóp Suður-
kjördæmis. Sagði Margrét við
þetta tækifæri að þótt rósirnar
myndu fölna væri ekki hægt
að segja það sama um loforð
ráðherra - það myndi ekki fölna.
Tók Margrét það sérstaklega
fram að rósirnar hefðu verið
keyptar í versluninni 10-11.
Sturla Böðvarsson sam-g ö n g u r á ð h e r r a e r ánægður með samstöðu
þingmannahóps kjördæmisins
og segir hana mikilvæga fyrir
verkefnið.
Samgönguráðherra segir að
með því að bjóða út tvöföldun
Reykja nes braut ar inn ar frá
Fitjum og inn að fyrsta hluta
tvöföldunarinnar sé mögulegt
að átta sig á verði verksins og að
þannig verði hægt að stilla upp
framkvæmdatímanum.
Aðspurður um tímasetningar
varðandi tvöföldunina segir ráð-
herra ekki skynsamlegt að stilla
upp neinum tímasetningum
í málinu. „Stóra málið er að
þetta verður boðið út í vor. Það
eru verk út um allt land sem
bíða og margir sem þurfa á
framkvæmdum að halda. Við
reynum að gera þetta þannig
að hagkvæmustu leiða sé leitað
og með þvi að bjóða þennan
áfanga Reykjanesbrautar út í
einu lagi þá tel ég að við séum
að fara þá leið sem virðist vera
hagkvæmust,” sagði samgöngu-
ráðherra í samtali við Víkur-
fréttir eftir borgarafundinn.
Tvöföldun Reykjanesbrautar í útboð í vor
Stóra málið er að þetta
verður boðið út í vor
Samgönguráðherra:
Ánægja meðal þingmanna
Stjórn áhugahóps um tvöfalda Reykjanesbraut afhenti
samgönguráðherra skófluna góðu í annað sinn sem hann notaði
til að taka fyrstu skóflustunguna að fyrri áfanga tvöföldunar
brautarinnar. Stjórnin var að sjálfsögðu í skýjunum eftir að
ráðherra hafði tilkynnt ákvörðun sína.
Sjaldan hafa sést jafn margir þingmenn og ráðherrar samankomnir
á Suðurnesjum. Eins og sést á myndinni var salurinn þétt setinn.
Þingmenn allra flokka fluttu ávörp á fundinum og Árni Sigfússon bæjarstjóri
lokaði honum.
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra svaraði fyrirspurnum fundarmanna. Á myndinni eru Sigmundur
Ernir Rúnarsson fundarstjóri, Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri, Steinþór Jónsson formaður
áhugahópsins og samgönguráðherra.