Víkurfréttir - 10.02.2005, Blaðsíða 21
VÍKURFRÉTTIR I 6. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 10. FEBRÚAR 2005 I 21
Athvarf fyrir geðfatlaða var opnað í Sjálfsbjarg-arhúsinu sl. föstudag.
Að athvarfinu standa Reykja-
nesbær, Svæðisskrifstofa mál-
efna fatlaðra á Suðurnesjum
og Sjálfsbjörg á Suðurnesjum.
Auk þeirra koma fjölmargir
aðrir að rekstri athvarfsins
með ómetanlegum stuðningi.
Tilgangur athvarfsins er að
skapa vettvang fyrir þá einstak-
linga sem búa við geðfötlun eða
geðröskun, eru utan stofnunar,
óvinnufærir og félagslega ein-
angraðir. Athvarfinu er ætlað
að gera geðfötluðum kleift að
koma reglu á líf sitt og fá þjálfun
í athöfnum daglegs lífs.
Meginmarkmið starfsemi at-
hvarfsins verður að efla sjálf-
stæði fólks með geðræn vanda-
mál og að leita leiða til að auka
samfélagsþátttöku þeirra sem
athvarfið sækja. Verður það
gert með félagslegri samveru,
fræðslu, þjálfun, tómstundum
og persónulegum stuðningi.
Und ir bún ing ur að opn un
athvarfsins hefur staðið yfir í
18 mánuði. Mikil vinna hefur
verið lögði í verkefnið sem mun
nýtast áfram við uppbyggingu á
geðheilbrigðisþjónustu í Reykja-
vesbæ.
Að sögn Hjördísar Árnadóttur
glíma fjölmargir viðskiptavinir
Fjölskyldu- og félagsþjónustu
Reykjanesbæjar við geðsjúk-
dóma eða geðraskanir sem
hamla þeim frá samfélagslegri
virkni. „Félagsþjónustan vildi
leita leiða til að bæta þjónustu
við þessa einstaklinga með það
að markmiði að hjálpa þeim
til sjálfshjálpar. Við áttum í
viðræðum við Sjálfsbjörgu á
Suðurnesjum um samstarf við
uppbyggingu á þjónustu við
geðfatlaða, þegar framkvæmda-
stjóri svæðisskrifstofu málefna
fatlaðra ljáði máls á samstarfi
um rekstur athvarfs fyrir geð-
fatlaða í Reykjanesbæ. Til varð
samstarfshópur þessara aðila
um uppbyggingu á þjónustu við
geðfatlaða”.
Í athvarfinu geta þeir sem glíma
við geðræn vandamál komið
saman og deilt sinni lífsreynslu.
Í slíkum hóp skapast oft sérstakt
andrúmsloft samkenndar og
skilnings. „Það að deila reynslu
og vonum gerir fólki kleift að
sýna gagnkvæman stuðning og
gefa góðar ráðleggingar. Hver
meðlimur hópsins ber ábyrgð
á því að halda hópnum gang-
andi og að spjara sig sjálfur. Í
sjálfshjálparhóp eru allir jafnir
- allir meðlimir hópsins búa yfir
þekkingu sem nýtist við að taka
á sameiginlegum vandamálum.
Í hópnum fær fólk tilfinninga-
legan stuðning, upplýsingar, ráð-
gjöf og vináttu. Þar hittist fólk
á jafningjagrunni og allar upp-
lýsingar sem koma fram innan
hópsins eru trúnaðarmál.”
Athvarf fyrir geð-
fatlaða opnar
8 Sjálfsbjargarhúsið í Reykjanesbæ:
©BLAÐAMAÐURÓSKAST!
Fréttadeild Víkurfrétta vantar nýjan liðsmann til að
takast á við krefjandi verkefni í blaðamennsku. Einn
úr liðinu er að fara til nýrra starfa og það þarf að fylla
skarðið. Þess vegna leitum við nú að starfsmanni
til að takast á hendur fjölbreytt starf blaðamanns
á Suðurnesjum. Við leitum að blaðamanni með
staðgóða þekkingu og mikinn áhuga á fréttum og
mannlífi á Suðurnesjum. Viðkomandi þarf að hafa
gott vald á íslenskri tungu og geta starfað undir álagi
ásamt því að geta starfað sjálfstætt. Það er kostur ef
viðkomandi kann eitthvað fyrir sér í ljósmyndun.
Umsóknir um starf blaðamanns
hjá Víkurfréttum berist til Páls
Ketilssonar ritstjóra á póstfangið
pket@vf.is. Ekki eru veittar
upplýsingar um starfið í síma.
Öllum umsóknum verður svarað.
Séra Baldur Rafn blessaði starfsemina í Sjálfsbjargarhúsinu. Ljósmynd: Héðinn Eiríksson