Víkurfréttir - 10.02.2005, Blaðsíða 11
VÍKURFRÉTTIR I 5. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 3. FEBRÚAR 2005 I 11
Samkvæmt áætlunum er gert ráð fyrir að kostn-aður við tvöföldun þess
kafla sem samgönguráðherra
hefur ákveðið að boðinn verði
út sé um 2 milljarðar króna. Er
þá gert ráð fyrir gatnamótum
við Grindavíkurafleggjara og
á Fitjum.
Kaflinn frá tvöfölduninni austan
Vogaafleggjara og að Fitjum
er um 10,5 kílómetra langur. Í
máli samgönguráðherra kom
fram að hann teldi tækifærið til
að fá hagstætt tilboð í verkið í
heild sinni vera gott. Sagði hann
að miðað við útboð verktaka-
fyrirtækja upp á síðkastið ætti
hann von á því að kostnaðartöl-
urnar myndu lækka. Jafnvel er
talið að kostnaðartölurnar lækki
niður í um einn milljarð króna.
Vonast eftir hag-
stæðu tilboði
Hjálmar Árnason þingmaður Framsóknarflokks
Ég er mjög ánægður með fundinn. Hann er ávöxtur mikillar sam-
stöðu þar sem margir hafa komið að máli. Forsætisráðherra tók
akkúrat þennan veg inn í fyrstu stefnumótunarræðu sína við setn-
ingu alþingis í áramótaávarpi. Þingmannahópurinn hefur átt mjög
gott samstarf við samgönguráðherra. Hópurinn er mjög samhentur
og samstaðan suðurfrá er mikil og allt skiptir þetta máli. Þessi ár-
angur er gott dæmi um það hvernig samstaða skilar góðu verki. Ég
lít svo á að draumurinn um tvöföldun Reykjanesbrautar verði að
veruleika þegar á næsta ári.
Jón Gunnarsson þingmaður Samfylkingar
Mér leist mjög vel á fundinn og er ánægður með að ráðherra skyldi
lofa okkur því að þetta verði boðið út í vor í einu lagi. Ég hef enga
trú á öðru en það komi skikkanleg tilboð í verkið sem þýðir þá að
verkið verður klárað í einum rykk, en samkvæmt vegaáætlun verði
verkið þá borgað á einhverju ára bili. Ég vona að mönnum detti það
ekki í hug að hætta í miðju verki og slíta þetta í sundur. Ef að það er
rétt sem haft er eftir verktökum að verkið geti tekið frá einu ári til
eins og hálfs árs þá er maður að vona að verkið klárist í lok árs 2006
eða byrjun árs 2007.
Ávöxtur samstöðu
-segja Suðurnesjaþingmenn
Æfingarnar hafa gengið rosalega vel
og á morgun verður
gener alpru fan og
frum sýn ing in á
föstudag,” segir Jón
Marinó Sigurðsson
leikstjóri söngleiks-
ins Er tilgangur?
Söngleikurinn er eftir
Júlíus Guðmundsson
sem fyrst var settur
upp í Félagsbíói fyrir
u m 1 0 á r u m v i ð
góðar undirtektir.
„Það hefur komið
mér virkilega á óvart
hvað það er mikill
kraftur í krökkunum
og hér eru mikil efni
á ferð,” seg ir Jón
Marinó um leikhóp-
inn. „Aðstaðan í 88
Húsinu er frábær,
bæði stærri og betri
en í Frumleikhúsinu.
Þetta verður pott-
þétt sýn ing og ég
hvet alla til þess að
mæta því krakkar úr
öllum bæjarfélögum
Suðurnesja taka þátt
í sýningunni,” sagði
Jón að lokum. „Er
tilgangur?” verður
f r u m s ý n d u r á
morgun kl. 20:00 en
uppselt er á þá sýn-
ingu. Næsta sýning
verður svo sunnudag-
inn 13. febrúar og þá
eru örfá sæti laus.
Kraftur í krökkunum
500 bollur
Bolludagurinn var haldinn hátíðlegur á borgara-
fundinum og fengu fundargestir að bragða á vatns-
deigsbollum frá Sigurjónsbakaríi. Um 500 bollur
fóru í fundargesti og var það mál manna að bollu-
dagurinn sé kjörinn til að halda borgarafundi í
Reykjanesbæ.
Vill slökkva ljósin á ákveðnum tímum
Þorvaldur Örn Árnason íbúi í Vogum kom með
þá tillögu að ljósin á Reykjanesbrautinni yrðu
slökkt á ákveðnum tímum. Sagði hann það mikil-
vægt fyrir stjörnuskoðunarmenn á Suðurnesjum
að slökkt yrði á lýsingunni svo betra yrði að rýna
í stjörnurnar.
Upphituð Reykjanesbraut?
Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna
náði fundarmönnum á sitt vald þegar hann sagði
að erfitt yrði að toppa ræðu samgönguráðherra.
„Ekki nema ég myndi kannski lofa því að
brautin yrði upphituð og að öðru megin við
hana verði settur reiðvegur og hinumegin komi
hjólreiðabraut.“ Kunnu fundarmenn vel að meta
þessi orð.
Vill nýjan samgönguráðherra eftir
tvöföldun
Jón Gunnarsson Suðurnesjaþingmaður sagðist
vilja sjá nýjan samgönguráðherra úr öðrum flokki
- þegar tvöföldun brautarinnar væri lokið. Sagði
hann það nauðsynlegt svo innanlandsflugið verði
fært til Keflavíkurflugvallar.
BRAUTAR
MOLAR