Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.02.2005, Síða 9

Víkurfréttir - 10.02.2005, Síða 9
VÍKURFRÉTTIR I 5. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 10. FEBRÚAR 2005 I 9 Samband íslenskra sveit-arfélaga hefur tilnefnt Árni Sigfússon, bæjar- stjóra Reykjanesbæjar, í nefnd á vegum forsætisráðuneytis til þess að meta stöðu íslensku fjölskyldunnar og koma með tillögur í því augnamiði að styrkja stöðu hennar. Stjórn SÍS tilnefndi jafnframt í nefndina Björk Vilhelmsdóttur, borgarfulltrúa í Reykjavík. Að auki skipa nefndina Björn B. Jónsson, tilnefndur af Ung- menna fé lagi Ís lands, Elín Thorarensen, tilnefnd af Heim- ili og skóla, Fanný Gunnars- dóttir, tilnefnd af félagsmálaráð- herra, Guðný Eydal, tilnefnd af menntamálaráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir, tilnefnd af heil- brigðis- og tryggingamálaráð- herra, séra Ólafur Jóhannsson, tilnefndur af dóms- og kirkju- málaráðherra, Ragnheiður E. Árnadóttir, tilnefnd af fjármála- ráðherra, Stefán Snær Konráðs- son, tilnefndur af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands og séra Þorvaldur Karl Helgason, tilnefndur af biskupi Íslands. Formaður nefndarinnar, skip- aður af forsætisráðherra, er Björn Ingi Hrafnsson aðstoð- armaður forsætisráðherra og starfsmenn nefndarinnar eru einn fulltrúi forsætisráðuneyt- isins og Björg Kjartansdóttir, deildarsérfræðingur í félagsmála- ráðuneytinu. Skipanin kemur í framhaldi af áramótaávarpi Halldórs Ás- grímssonar, forsætisráðherra þar sem hann vék að stöðu fjöl- skyldunnar m.a. með þessum orðum: „Það er bjargföst trú mín að samheldin og ástrík fjölskylda sé kjarninn í hverju þjóðfélagi. Þann kjarna þarf að styrkja og treysta og við höfum komið til móts við breyttar kröfur með fæðingarorlofi fyrir báða for- eldra, sem var mikið jafnréttis- mál. Að sama skapi höfum við lagt áherslu á að allir geti eign- ast sitt eigið húsnæði. En betur má ef duga skal. Ég hef því ákveðið að setja af stað vinnu við að meta stöðu íslensku fjöl- skyldunnar.” Ekki eru tímamörk á störfum nefndarinnar, sem mun hefja störf á næstu dögum. Ferðamálasamtökin og Samband sveitarfélaga á Suð ur nesj um (SSS) munu halda ferða mála ráð- stefnu í Eldborg í Svartsengi föstudaginn 25. febrúar næst- komandi. Ráðstefnan verður með því sniði að fjórir valdir einstaklingar hafa framsögu um ferðatengt efni sem höfðar til Reyknesinga og þeirra mögu- leika sem þar eru og eru í far- vatninu. Framsögumenn á fundinum verða: Forstjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, aðstoðarfor- stjóri Hitaveitu Suðurnesja, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og einn bæj- arstjóranna á Suðurnesjum. Pallborð með frummælendur og sveitarstjórnarmönnum verður að því loknu. Ráðstefnan stendur yfir milli kl. 13:00- 17:00. 8 Nefnd á vegum forsætisráðuneytisins: Bæjarstjóri Reykjanes- bæjar tilnefndur í nefnd um stöðu fölskyldunnar 8 Ferðamálasamtökin og SSS: Ferðamálaráðstefna í Eldborg 25. febrúar ©FRÉTTASÍMINNSÓLARHRINGSVAKT898 2222

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.