Víkurfréttir - 10.02.2005, Qupperneq 17
VÍKURFRÉTTIR I 5. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 3. FEBRÚAR 2005 I 3
wGrinda-
v í k u r -
s t ú l k u r
hafa einu
sinni áður
kom ist í
úrslitaleik bikarkeppninnar, en
það var árið 1994 þegar þær töp-
uðu naumlega fyrir nágrönnum
sínum úr Keflavík, 56-53.
wErla Þorsteinsdóttir, leikmaður
Grindavíkur, lyfti bikarnum í
fyrra sem fyrirliði Keflavíkur.
Hún var einmitt á bekknum
í sigri Keflavíkur á Grindavík
árið 1994.
wSvandís Sigurðardóttir, leik-
maður Grindavíkur, fagnaði
bikarmeistaratitlinum með liði
ÍS árið 2003. Hún átti stórleik
undir körfunni og tók 19 frá-
köst þar sem Stúdínur unnu
góðan sigur á Keflavík í fram-
lengdum leik.
wHaukastúlkur hafa fjórum
sinnum leikið til úrslita í kvenna-
flokki og verður leikurinn í ár
sá fimmti. Tveir leikjanna hafa
unnist, gegn ÍS árið 1984 og
gegn Keflavík árið 1992.
wHaukastúlkur eru þess vafa-
sama heiðurs aðnjótandi að
hafa tapað með mestum mun í
bikarúrslitum, en það var árið
1993. Keflavík tryggði sér þá titil-
inn með 33 stiga mun, 62-29.
Henning Henningsson, þjálfari Grindvíkinga, segir ágætis stíganda
hafa verið í leik liðsins eftir ára-
mót og spilið hafi verið að slíp-
ast til.
„Svo er sjálfstraustið hjá okkur
í góðum gír, en ef þú ert alvöru
íþróttamaður ertu tilbúinn í
svona leiki.”
Henning bætir því við að tapið
í síðustu rimmu liðanna eigi
eftir að kveikja í hans stelpum.
„Við eigum harma að hefna og
förum í þennan leik með ekkert
annað en sigur í huga. Okkar
markmið verður að halda þeim
frá körfunni og láta þær taka
skotin fyrir utan. Þá eigum við
góðan möguleika á sigri. Þetta
er spurning um það hvort liðin
hafi vilja og þor til að klára þetta
og ég hef fulla trú á því að bæði
liðin hafi slíkt.”
AÐALSTYRKTARAÐILI KÖRFUKNATTLEIKSDEILDAR NJARÐVÍKUR
Grindavík Haukar
Grinda vík og Hauk ar mætast í úrslitaleik Bik-arkeppni KKÍ og Lýs-
ingar í kvennaflokki.
Óhætt er að búast við spennandi
leik þar sem allt getur gerst enda
hafa bæði liðin verið að sækja í
sig veðrið að undanförnu. Grind-
víkingar hafa verið á uppleið í 1.
deildinni og eru sem stendur í
öðru sæti deildarinnar og hafa
á að skipa þaulreyndum lands-
liðsmönnum í flestum stöðum
og eru auk þess með einn besta
erlenda leikmann deildarinnar í
Myriuh Spence.
Lið Haukanna er að mestu leyti
byggt upp af ungum og efni-
legum leikmönnum þar sem
hin öfluga Helena Sverrisdóttir
fer fremst í flokki. Helena hefur,
þrátt fyrir ungan aldur sannað
sig sem einn allra besti miðherji
landsins og verður sérstaklega
athyglisvert að fylgjast með
rimmu hennar og Erlu Þorsteins-
dóttur undir körfunni.
Grindvíkingar hafa unnið tvo af
þremur leikjum liðanna í deild-
inni, en Haukastúlkur unnu
þann síðasta, 62-44 á heimavelli
sínum.
Molar
Tvö sjóðheit lið bítast um bikarinn
„Spurning um
vilja og þor“
Nr Nafn F. ár Hæð
4 Svandís Sigurðardótir 1982 176cm
5 Elva Rut Sigmarsdóttir 1986 176cm
6 María Guðmundsdóttir 1983 164cm
7 Ólöf Helga Pálsdóttir 1985 172cm
8 Sólveig Gunnlaugsdóttir 1981 174cm
9 Berglind Magnúsdóttir 1989 188cm
10 Theodóra Káradóttir 1985 172cm
11 Erla Reynisdóttir 1978 170cm
12 Erla Þorsteinsdóttir 1978 182cm
13 Guðrún Guðmundsd. 1984 174cm
14 Íris Sverrisdóttir 1990 171cm
15 Myriah Spence 1982 181cm
Þ: Henning Henningsson
Nr Nafn F. ár Hæð
4 Helena Sverrisdóttir 1988 184cm
5 Ebony Shaw 1982 180cm
6 Ragnheiður Theodórsd. 1988 176cm
7 Svahvít Skjaldardóttir 1987 178cm
8 Hanna Hálfdanardóttir 1985 184cm
9 Ösp Jóhannsdóttir 1986 176cm
10 Ingibjörg Skúladóttir 1988 172cm
11 Pálína Gunnlaugsdóttir 1986 168cm
12 Sigrún Ámundadóttir 1988 180cm
13 Eva Dís Ólafsdóttir 1986 176cm
14 Guðrún Ámundadóttir 1987 178cm
15 Kristrún Sigurjónsdóttir 1985 178cm
Þ: Ágúst Björgvinsson
Anna María Sveinsdóttir er í óvenjulegum sporum þetta árið því hun hefur lungann úr ævi sinni leikið sjálf í úr-slitum með Keflavík á þessum tímapunkti, en hún segist
samt munu fylgjast vel með leik Hauka og Grindavíkur.
„Þetta verður hörkuleikur þar sem liðin eru nokkuð jöfn að getu.
Grindvíkingar eru kannski með betri mannskap en mér finnst eins
og liðsstemmningin sé betri hjá Haukum. Þetta verður örugglega
spennandi og jafn leikur.
Haukarnir hafa verið á góðri siglingu undanfarið og eru með góðan
Kana og einfaldlega besta íslenska leikmanninn í deildinni í dag.
Úrslitaleikir velta oft á dagsformi, en reynslan ætti líka að nýtast
Grindvíkingum því að Erlurnar og Svandís hafa margoft spilað í
svona stórum leikjum. Reynslan gæti skipt sköpum í þessum leik.”
Veltur á dagsformi