Víkurfréttir - 10.02.2005, Side 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Einar Þ. Magnússon út-gerðarmaður snurvoða-báts ins Ósk KE-5 er
ánægður með bátinn en hann
keypti bátinn um miðjan jan-
úar. Með bátnum fylgja 360
þorskígildistonna kvóti en skip-
stjóri á bátnum er Sævar Brynj-
ólfsson.
Báturinn hét áður Rúna RE
er hann um 116 brúttótonn
að stærð en hann er einn af
fjölveiði skipunum níu sem
smíðuð voru fyrir Íslendinga í
Kína árið 2001.
„Þetta fer rólega af stað hjá
okkur. Við höfum nær eingöngu
verið á netaveiðum og þurfum
að byrja á því að læra á snur-
voðina. Ég reikna með að við
verðum fyrsta árið á snurvoð-
inni og þá sjáum við til hvort
við reynum önnur veiðarfæri en
skipið býður upp á þann sveigj-
anleika,” segir Einar.
Með skipinu fylgir svokallað
bugt ar leyfi og mun skip ið
stunda kolaveiðar í Faxaflóa á
haustin en einnig verður lögð
áhersla á þorskveiðar og aðrar
veiðar. Einar mun flytja hluta
kvótans af gömlu Óskinni á nýja
bátinn. „Við munum einnig
leigja aflaheimildir á bátinn
til viðbótar því sem við eigum
því við ætlum að auka sóknina
en það fer þó allt eftir verði á
fiskmörkuðum og verði á leigu-
kvóta,” segir Einar.
Með úrskurði Hér-aðsdóms Reykja-n e s s k v e ð n u m
upp 13. janúar sl. var útgerð-
arfélagið GE ehf. í Garði,
Plastverk-Framleiðsla ehf.
í Sandgerði og S.H. útgerð
ehf. í Keflavík, Útgerðarfé-
lagið Lyngholt ehf. í Kefla-
vík, Útgerðarfélagið Hleri
ehf. í Keflavík, Mölvík ehf.
í Keflavík og Olsen Olsen
og ég ehf. í Keflavík tekin til
gjaldþrotaskipta.
Fyrirtækið EEH Gallerý ehf.
í Sandgerði var úrskurðað
gjaldþrota fyrir héraðsdómi
Reykja ness í októ ber en
skiptum í búinu lauk þann
21. janúar sl. Fjárhæð lýstra
krafna var rúmlega 9 millj-
ónir króna og fékkst engin
greiðsla upp í lýstar kröfur.
stuttar
F R É T T I R
Vinnupalli
bjargað frá foki
Bifreið fauk í rokinu í Njarðvík á sunnu-dagskvöld. Bifreiðin
hafði verið skilin eftir í því
sem kallast „hlutlausum“ og
að auki ekki í handbremsu.
Þegar lögregla kom að var
bifreiðin illa staðsett fyrir
aðra umferð en hafði ekki
valdið tjóni.
Þá var tilkynnt að vinnu-
pallur utan við Sparisjóðinn
í Keflavík, væri að fjúka í
veðurhamnum sem þá var.
Tókst að taka pallinn niður
áður en hætta skapaðist.
Farþegum Express
fjölgaði um 19%
Farþegum Iceland Ex-press fjölgaði um 19% í janúar síðastliðnum
frá sama mánuði í fyrra.
Alls flugu um þrettán þús-
und farþegar með félaginu
í síðasta mánuði. Að mestu
eru það erlendir ferðamenn
sem standa undir fjölgun
farþega Iceland Express í jan-
úarmánuði, einkum þó frá
London Stansted. Þar ekki
aðeins um Breta að ræða
heldur ekki síður farþegar
víðsvegar að úr Evrópu að
því er segir í tilkynningu frá
Iceland Express.
Nokkur fyrirtæki
á Suðurnesjum
gjaldþrota
Ný Ósk KE á snurvoð
8 Fiskiskipaflotinn í Reykjanesbæ tekur breytingum: