Víkurfréttir - 09.01.2014, Qupperneq 2
fimmtudagurinn 9. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR2
BÓKASAFN
REYKJANESBÆJAR
Opnunartíma safnsins hefur verið brey.
Framvegis verður opið kl. 09:00 til 18:00 virka daga
og kl. 11:00 til 17:00 laugardaga.
Engar breytingar voru gerðar
á gjaldskrá safnsins um áramót.
VANTAR ÞIG SAL FYRIR
AFMÆLISVEISLUR?
Fjörheimar Hafnargötu 88 eru leigðir út
virka daga frá kl.16.00 - 19.00.
Í salnum eru borð og stólar, þythokkí,
danssalur, bíósalur o.fl.
Bókanir eru á orheimar@reykjanesbaer.is
Verð kr. 7.000.
HÚSALEIGUBÆTUR
2014
Endurnýja þarf umsóknir um húsaleigubætur vegna
ársins 2014 fyrir 16. janúar nk.
Só er um á Mi Reykjanes (www.mireykjanes.is).
Þar er einnig hægt að sækja um lykilorð og hægt að
velja um að fá lykilorð sent í pósti eða netbanka.
Með umsókninni þarf að skila inn:
• Staðgreiðsluyfirliti þar sem fram koma heildartekjur
ársins 2013.
• Launaseðlum síðustu þriggja mánaða.
• Yfirliti frá Tryggingastofnun, lífeyrissjóðum,
Vinnumálastofnun eða öðrum launagreiðendum og
öðrum gögnum er varða laun.
• Skaframtali fyrir árið 2013 hafi því ekki þegar
verið skilað inn.
• Endurnýjuðum húsaleigusamningi sé hann ekki
í fullu gildi.
Umsókn inn á www.mireykjanes.is þarf að hafa borist
eigi síðar en 16. janúar 2014.
Sigurbjörg Gísladóir húsnæðisfulltrúi
EKUR ÞÚ VARLEGA?
30 km hámarkshraði er í
íbúðahverfum. Hvetjum íbúa til
að aka varlega
Sýnum tillitssemi
– ökum varlega.
30
-fréttir pósturu vf@vf.is
Brunaútkall!
Tvö útköll!
Frá vettvangi brunans á Mávabraut á
þriðjudagskvöld. VF-mynd: Hilmar Bragi
Frá slökkvistarfi við Bakkastíg á
gamlárskvöld. VF-mynd: Hilmar Bragi
Allt tiltækt slökkvilið Brunavarna Suðurnesja þurfti tvívegis að ráða niðurlögum elds í þaki
atvinnuhúsnæðis við Bakkastíg í Njarðvík á gaml-
árskvöld. Fyrra útkallið kom rétt fyrir kl. 22. Talið
er að sá eldur hafi kviknað út frá flugeldi sem fór í
þak hússins.
Rétt fyrir miðnætti fór svo annar flugeldur í þak húss-
ins og kveikti þar eld. Slökkviliðsmenn voru flestir
komnir til baka á slökkvistöðina í Keflavík og voru
aftur sendir á vettvang. Vel gekk að slökkva eldinn.
Tjón vegna þessara flugeldabruna er nokkuð. Tals-
verður reykur myndaðist en í atvinnuhúsnæðinu eru
mörg fyrirtæki og þar voru jafnframt talsverð verð-
mæti í geymslu eins og húsbílar og fleira sem voru í
rými sem fylltist af reyk.
hilmar@vf.is
Karl og kona sem bjargað var út úr brennandi íbúð við
Mávabraut á þriðjudagskvöld
voru útskrifuð eftir skoðun á
slysadeild Landspítala í Foss-
vogi. Þangað voru þau flutt vegna
gruns um reykeitrun.
Tilkynnt var um eldinn kl. 20:55 á
þriðjudagskvöldið og var fjölmennt
lið lögreglu og slökkviliðs Bruna-
varna Suðurnesja sent á staðinn.
Fólkið hafði brotið rúðu í svefnher-
bergi og var annað þeirra komið
út um gluggann en lögreglu- og
slökkviliðsmenn hjálpuðu hinu að
komast út.
Fólkið var fyrst flutt á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja og síðan áfram
á Landspítala til frekari skoðunar.
Þaðan var fólkið útskrifað en því
hafði ekki orðið meint af reyknum
í íbúðinni.
Íbúðin er mikið skemmd af völdum
elds, reyks og sóts. Lögreglan á
Suðurnesjum fer með rannsókn á
brunavettvangi.
hilmar@vf.is
n Karl og kona björguðust úr brennandi íbúð við Mávabraut:
Útskrifuð eftir skoðun á slysadeild
FLUGELDUR KVEIKTI
TVÍVEGIS Í SAMA ÞAKINU
Húsbílar voru geymdir í hluta
hússins sem fylltist af reyk.
Slökkviliðsmenn berjast
við eldinn í þaki hússins.