Víkurfréttir - 20.03.2014, Blaðsíða 22
fimmtudagurinn 20. mars 2014 • VÍKURFRÉTTIR22
-safnahelgin pósturu vf@vf.is
Sýningin Mannlegar víddir var opnuð í Listasafni Reykja-
nesbæjar um síðustu helgi.
Meðal gesta við opnunina var
Vigdís Finnbogadóttir fyrrum
forseti Íslands Á sýningunni er
að finna verk eftir tvo listamenn,
Stefán Boulter og Stephen Lárus
Stephen, sem báðir hafa sérhæft
sig í gerð mannamynda. Báðir
eiga þeir erlenda feður og hafa
sótt listmenntun sína til annarra
landa, Stefán til Noregs og Ítalíu,
Stephen Lárus til Bretlands.
Að öðru leyti eru þeir afar ólíkir.
Mannamyndir Stefáns Boulter eru
mestmegnis lágstemmd einka-
samtöl hans við vini og kunningja,
eða einræður hans sjálfs, tilraunir
til að laða fram og festa á striga
kenndir og hugsanir þeirra sem
hann fjallar um, með útlistun á
látbragði þeirra. Um leið einkenn-
ast mannamyndir hans af dulúð,
sem er eins konar staðfesting þess
að sérhver manneskja sé „eyland“,
varðveiti innra með sér einkaver-
öld sem enginn annar hafi aðgang
að.
Stephen Lárus hefur hins vegar
getið sér gott orð fyrir portrett-
myndir af ýmsum „opinberum“
Íslendingum. Málverk hans af Sól-
veigu Pétursdóttir, fyrrverandi al-
þingismanni og forseta Alþingis,
vakti nokkuð umtal þegar það
var vígt fyrir tveimur árum; þetta
málverk er að finna á sýningunni.
Yfirlýst markmið Stephens er að
koma á framfæri viðmóti fyrirsæta
sinna, án þess að ganga of nærri
einkalífi þeirra.
Sýningunni er framar öðru ætlað
að sviðsetja samspil þessara ólíku
viðhorfa til mannamyndagerðar,
í því augnamiði að skerpa á sér-
kennum beggja. Á sýningunni er
einnig að finna formyndir lista-
mannanna að nokkrum sýndum
verkum, allt frá frumdrögum til
nákvæmra lokaútlistana. Sýningin
stendur til 27. apríl 2014.
Í sjötta sinn tóku söfnin á Suðurnesjum höndum saman og buðu upp á sam-
eiginlega dagskrá undir merkjum Safna-
helgar á Suðurnesjum um liðna helgi.
Markmiðið hefur frá fyrstu tíð verið hið
sama þ.e. að kynna fyrir Íslendingum hin
frábæru söfn og sýningar sem við bjóðum
upp á Suðurnesjum. Þetta er liður í menn-
ingarferðaþjónustu svæðisins og upplagt
fyrir íbúa næsta nágrennis að upplifa eitt-
hvað af því fjölmarga sem hér er í boði.
Safnahelgin á Suðurnesjum heppnaðist mjög
vel að þessu sinni og hafa aldrei mætt eins
margir gestir á auglýsta viðburði. Forstöðu-
menn safna sem Víkurfréttir hafa heyrt frá
eru mjög sáttir með hvernig til tókst.
Söfn,setur og sýningar á svæðinu eru mörg
og fjölbreytt og því margt á döfinni og fjöl-
breytt dagskrá. Auk þess voru ýmis gallerí
opin þar sem handverk og listmunir eru til
sýnis og sölu. Ókeypis var inn á öll söfnin af
þessu tilefni.
Meðfylgjandi myndir voru teknar
á byggðasafninu á Garðskaga.
SAFNAHELGIN VEL SÓTT
Vigdís skoðar
Mannlegar víddir
í Listasafni Reykjanesbæjar
Valgerður Guðmundsdóttir, Stephen Lárus Stephen, Stefán Boulter,
Árni Sigfússon og Aðalsteinn Ingólfsson við opnun sýningarinnar.