Víkurfréttir - 28.05.2014, Side 34
ÁSBRÚ 7
n TÓNLISTARHÁTÍÐIN ATP HALDIN Á ÁSBRÚ Í SUMAR
A TP tónlistarhátíðin vakti mikla lukku þegar hún var haldin í fyrsta sinn í fyrra á Ásbrú. Gamla varnarsvæðið
brá sér þar í nýjan búning sem féll vel í kramið
hjá tónþyrstum gestum sem komu hvaðan-
æva að úr heiminum. Keflvíkingurinn Tómas
Young skipulagði hátíðina en hann segir að
allt hafi gengið snurðulaust fyrir sig. „Það
er í raun lyginni líkast hvað þetta heppnað-
ist vel. Ég vissi að ég væri með góðan hóp
af fólki í kringum mig en það gekk allt upp.
Við fengum ekki eina kvörtun vegna hátíðar-
innar,“ segir Tómas.
Ótrúleg fjölgun erlendra gesta
Allir gestir virðast hafa farið sáttir heim. Nú í
ár er mikil aukning á erlendum gestum, en í
fyrra voru rúmlega 200 gestir erlendis frá sem
borguðu sig inn á hátíðina. Eins og staðan er
í dag þá eru um 1.300 erlendir gestir væntan-
legir erlendis frá á hátíðina í júlí. Byrjað var að
undirbúa hátíðina um leið og þeirri síðustu lauk
og Tómas segir það vera að skila sér í töluverðri
aukningu. Gott orð fór auk þess af hátíðinni og
það hefur óneitanlega sitt að segja.
„Fólk kepptist við að lofa hátíðina. Þetta var
eftirminnileg hátíð og nægir þar að nefna þegar
Nick Cave datt af sviðinu. Hann var í miklu
stuði þrátt fyrir byltuna, kannski að hún hafi gert
honum gott,“ segir Tómas léttur.
Öll gisting uppseld
Gistingin varð fljótlega af skornum skammti
en öll gisting í Reykjanesbæ er fyrir löngu upp-
seld. Einhverjir gestirnir gista í Reykjavík en
þeir nýta sér rútuferðir á milli. „Það sem er
að hamla mér í að taka á móti fleiri erlendum
gestum er sú staðreynd að gistingin er búin að
sprengja utan af sér. Ég myndi vilja geta tekið við
fleiri gestum. Við erum að nýta alla þá gistiaðila
sem eru uppi á Ásbrú.“ Það geta verið um 5000
manns í Atlantic Studios þar sem tónleikarnir
eru haldnir. Þar er aðstaða með besta móti og
voru margar stórstjörnurnar yfir sig hrifnar í
fyrra. Tómas segir að margir hafi hrifist af hús-
næðinu. Þar sé hljómburður góður og aðstaða
öll til fyrirmyndar. „Þetta hús er fullkomið til
tónleikahalds. Þar er allt til alls. Hljómsveitirnar
voru alveg að missa sig yfir aðstæðum þar,“ segir
Tómas og bætir því við að hljómsveitir hafi m.a.
sent þakkarbréf þar sem umgjörð og skipulag
hátíðarinnar voru lofuð í hástert.
Bæjarbragurinn breytist
Bæjarlífið í Reykjanesbæ breyttist óneitanlega
nokkuð á meðan á hátíðinni stóð enda tölu-
vert af fólki á ferli sem þurfti afþreyingu og
veitingar. „Ég hef heyrt af því að margir útlend-
ingar hafi verið á ferðinni í Reykjanesbæ. Það
voru t.d. frægar hljómsveitir að skemmta sér í
miðbænum og segja mætti að bæjarbragurinn
hafi verið með öðrum hætti. Það var mikið af
fólki frá okkur í Bláa lóninu og sundlaugunum
í bænum. Þetta hefur í raun mjög góð áhrif á
bæjarfélagið. Ég hef kynnt mér það vel hvað
ferðamenn eru að eyða í kringum svona hátíðir.
Þetta er að skila gríðarlega miklu til bæjarfélags-
ins,“ en Tómas telur að lengri undirbúningur
fyrir hátíðina í ár muni skila sér í töluvert fleiri
gestum. „Það að öll gisting skuli vera uppbókuð
í janúar vegna viðburðar sem fer fram í júlí, er
ótrúlega jákvætt. Það segir sig sjálft að þessir
erlendu gestir munu þurfa að sækja í mat og
aðra afþreyingu hérna, þannig að það er ljóst
að þeir munu nýta sér það sem við höfum upp
á að bjóða.“
„Sexý“ hugmynd í augum útlendinga
Útlendingunum leist afskaplega vel á Ásbrú.
Fyrir þeim er þetta mjög „sexý“ hugmynd að
halda tónlistarhátíð á yfirgefnum NATO-her-
velli sem er búið að breyta í nýsköpunarsvæði.
„Það er einn af okkar bestu sölupunktum, að
hátíðin sé haldin á yfirgefnum NATO-velli sem
liggur á hraunbeði ef svo má segja. Það að stutt
sé í Bláa lónið og flugvöllinn er heldur ekkert að
skemma fyrir. Það er gott að geta sagt við hljóm-
sveitirnar að það séu ekki nema fimm mínútur
frá flugvellinum og inn á hótelherbergi.“ Gert
er ráð fyrir því að tjaldsvæði verði starfrækt á
Ásbrú á meðan á hátíðinni stendur í ár. „Ég tel
að það myndi eflaust breyta hugarfari innlendra
gesta ef möguleiki væri á því að tjalda.“ Svæðið
verður afgirt og þar verður öryggisgæsla allan
sólarhringinn.
Hátíðin er að erlendri fyrirmynd en upphaf-
lega var hátíðin eingöngu í Englandi, en hefur
nú náð bólfestu í fleiri löndum. Hátíðinni er
ætlað að skapa sérstakt andrúmsloft sem virðist
vera til staðar á Ásbrú. Hátíðin ATP væri ekki
haldin á Íslandi ef ekki væri fyrir Ásbrú, það er
bara þannig. Þegar ég var að byrja að reyna selja
ATP hugmyndina um að halda hátíðina sína
hér á landi þá var Ásbrú aðal sölupunkturinn
minn til stjórnenda hátíðarinnar. Ég útskýrði að
þarna væri fullkomin aðstaða til tónleikahalds
í aðeins fimm mínútna fjarlægð frá alþjóða-
flugvellinum. Auk þess væri fullt af húsum á
svæðinu þar sem gestirnir gætu gist, eins og
tíðkast á hátíðinni í Englandi. Með smá þrjósku
tókst mér að sannfæra þau, hjónin sem stýra
hátíðinni, um að koma til Íslands. Þegar þau sáu
svæðið og aðstöðuna þá var þetta bara komið.
Þau kolféllu fyrir svæðinu. Þeim fannst svæðið
henta fullkomlega fyrir ATP og auk þess líkjast
staðnum þar sem hátíðin var haldin uppruna-
lega í Camber Sands þannig að við byrjuðum
strax að skipuleggja hátíðina í fyrstu heimsókn-
inni þeirra“ segir Tómas.
En telur Tómas að hátíðin sé komin til að vera?
„Það er í raun engin trygging fyrir því. Maður
gerir þetta á meðan maður nennir að standa í
því. Þetta er mikil vinna og töluvert álag sem
fylgir þessu. Þetta kannski lítur út fyrir að maður
þurfi bara að bóka hljómsveitir og útvega hljóð-
kerfi, en það eru ótalmörg smáatriði sem þarf að
huga að. Listinn er í raun endalaus. Við munum
gera þetta svo lengi sem fólk kaupir miða. Ég
vona að þetta sé komið til að vera um ókomna
framtíð,“ segir tónleikahaldarinn að lokum.
-Ásbrú hentar fullkomlega fyrir ATP
Fjöldi starfa á Ásbrú:
Um 70%
af störfum
sem hurfu
með Varn-
arliðinu
eru komin
aftur
Á Ásbrú hefur frá árinu 2006 tekist að mynda samfélag frumkvöðla,
fræða og atvinnulífs. Þar hafa
orðið til um 70% af fjölda
þeirra starfa sem hurfu með
brotthvarfi varnarliðsins. Á
Ásbrú búa í dag um 2000 íbúar
og þar starfa um 700 manns í
yfir 115 fyrirtækjum. Ástæða
þess að fjöldi fyrirtækja horfa
til Ásbrúar er m.a. sú að við
mótun þess samfélags sem er til
staðar á Ásbrú hefur verið litið
til þeirra styrkleika sem svæðið
býður upp á. Þar er helst horft
til nálægðar við flugvöll, heilsu
og grænnar orku. Störfin eru
unnin af fólki frá öllum Suður-
nesjum, þó svo að stærsti hluti
starfsfólksins búi annað hvort
á Ásbrú eða í öðrum hverfum
Reykjanesbæjar.
Í tækni- og heilsuþorpinu má
finna fjölda fyrirtækja sem
styrkja stoðir Ásbrúar í augum
íbúa svæðisins og einnig í augum
fjárfesta. Mikil uppbygging hefur
átt sér stað í tækniþorpinu á
Ásbrú þar sem landnotkun er
fyrir rýmisfreka og hugsanlega
orkufreka starfsemi sem hefur
litla hættu í för með sér. Áhersla
er lögð á starfsemi sem tengist
tækni og þróunarstarfsemi.
Í því húsnæði sem þegar er til
staðar á iðnaðarsvæðinu á Ásbrú
hefur tekist að koma fyrir fjölda
fyrirtækja, stórum sem smáum.
Gagnaverið Verne Global og
örþörunarverksmiðjan Algalíf
sýna fram á styrkleika svæðis-
ins auk nýtingarmöguleika þess
húsnæðis sem Ásbrú hefur upp
á að bjóða.
Nú þegar hefur verið byggt upp
frumkvöðlasetur og skrifstofu-
hótel á Ásbrú, sem geta boðið
litlum fyrirtækjum aðstöðu, þar
starfa í dag um 40 fyrirtæki.
Frumkvöðlasetrið Eldey á Ásbrú
er eitt stærsta og glæsilegasta
frumkvöðlasetur landsins og
þjónar frumkvöðlum, sprota-
fyrirtækjum og fyrirtækjum
sem vilja efla nýsköpun og vöru-
þróun. Í Eldvörpum er glæsi-
legt skrifstofuhúsnæði þar sem
frumkvöðlar og fyrirtæki geta
tekið á leigu aðstöðu í samræmi
við þarfir sínar hverju sinni.
HÁTÍÐIN GÆTI HVERGI
ANNARS STAÐAR VERIÐ
Tómas Young.
Ljósmynd: Magnús Elvar Jónsson