Víkurfréttir - 13.11.2014, Blaðsíða 2
2 fimmtudagurinn 13. nóvember 2014 • VÍKURFRÉTTIR
Í dag, fimmtudaginn 13.
nóvember kl. 18:00, verða
menningarverðlaun
Reykjanesbæjar, Súlan,
afhent í Bíósal Duushúsa.
Við sama tækifæri verður
styrktar- og stuðnings-
aðilum Ljósanætur
færðar þakkir. Fulltrúar
þeirra, ásamt stjórnum
menningarhópa og aðrir
velunnarar menningarlífs
bæjarins eru hvattir til að
mæta.
Stutt og skemmtilegt námskeið í
andlitsmálun, fyrir foreldra og börn, á
vegum Listaskóla barna í Fjölskyldu-
setri Reykjanesbæjar, Skólavegi 1.
• Laugardaginn 22. nóvember
frá kl. 10-12.
• Skráning á fjolskyldusetur@
reykjanesbaer.is eða í s. 421-2250.
• Verð kr. 1.500 á fjölskyldu. Greitt á
staðnum með peningum.
• Efni og áhöld á staðnum en þeir sem eiga hvattir
til að taka það með.
• Skráningarfrestur er til 20. nóvember.
• Leiðbeinandi Sara Dögg Gylfadóttir.
Auglýsing einnig á facebook Fjölskylduseturs
Reykjanesbæjar og upplýsingar veittar í s. 421-2250.
Skólaþing verður haldið í
Heiðarskóla, laugardaginn
15. nóvember kl. 10:30 – 13:30. Á
þinginu gefst skólasamfélaginu
tækifæri til þess að hafa áhrif á skólastarfið og hvert
skólinn stefnir í menntun nemenda.
Dagskrá :
10:30 - Setning og söngur nemenda skólans
10:40 - Nýir tímar
10:50 - Nýir kennsluhættir
11:00 - Hvernig manneskja vil ég vera
11:10 - Nýtt námsmat
11:20 - Læsi í víðum skilningi
11:30 - 12:00 - Matarhlé - Íslensk kjötsúpa
í boði Skólamatar
12:00 - Sýn nemenda á skólastarf - Fulltrúar nemenda
12:10 - 13:30 - Málstofur
Á þinginu verður formlega opnuð vefsíða með
speglaðri kennslu í stærðfræði á unglingastigi.
Ráðstefnustjóri : Helgi Grímsson formaður Samtaka
áhugafólks um skólaþróun.
Foreldrar, forráðamenn, nemendur og allir aðrir sem
áhuga hafa á skólamálum eru hvattir til þess að mæta
og hafa áhrif á
þróun skólastarfs
í Heiðarskóla.
Rafræn skráning er á
www.heidarskoli.is
MENNINGAR-
VERÐLAUN
REYKJANESBÆJAR
MÁ ÉG FÁ
ANDLITSMÁLUN?
SKÓLAÞING HEIÐARSKÓLA
MEÐ NESTI
OG NÝJA SKÓ
-HORFT TIL FRAMTÍÐAR-
Í síðustu viku bárust fréttir af því að 64 vændismál hefðu
verið unnin af lögreglunni á
Suðurnesjum og afhent embætti
Ríkissaksóknara. Þar af hafi 40
manns verið ákærðir fyrir kaup
á vændi. Einhverjir gætu hugsan-
lega haldið að öll vændismálin
ættu uppruna sinn að rekja til
Suðurnesja, en svo er alls ekki.
„Lögreglan á Suðurnesjum hafði
með rannsókn allra þessara mála
að gera. Hins vegar að brotavett-
vangurinn hafi verið á Suður-
nesjum er alls ekki rétt. Í þessu
tilviki áttu brotin sér stað á höfuð-
borgarsvæðinu. Upphaflega bárust
lögreglunni á Suðurnesjum vís-
bendingar um brotastarfsemina og
síðan leiddi eitt af öðru og rann-
sókn varð sífellt yfirgripsmeiri. Á
endanum urðu þetta ein 65 mál er
vörðuðu kaup á vændi. Þessi mál
eru meira og minna tengd,“ segir
Gunnar Schram, yfirlögregluþjónn
hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Að
sögn Gunnars komu kaupendur í
málunum víða að af landinu.
Af hverju er þá lögreglan á
Suðurnesjum að rannsaka mál
sem ekki koma hér upp?
„Þegar okkur berast upplýsingar
um ákveðið mál líkt og þessi og
þræðirnir liggja svo eitthvað
annað, þá höldum við samt oft á
tíðum áfram með málin, en þá í
góðri samvinnu við lögreglulið í
því umdæmi sem um er að ræða.
Það að færa svona umsvifamikla
rannsókn geti valdið töfum og mis-
skilningi og það skilar sér e.t.v. í
ekki nógu vel unnum málum. Við
einfaldlega klárum það sem við
tökum að okkur,“ segir Gunnar.
„Þetta getur þó valdið misskilningi,
að setja hlutina fram með þeim
hætti hefur verið gert í stuttum
fréttagreinum undanfarið, það er
alveg rétt,“ bætir hann við.
Upplýsingar um vændismál geta
verið að koma upp í tengslum
við farþega sem fara um Flugstöð
Leifs Eiríkssonar að sögn Gunnars.
Hann segir mikla vinnu liggja að
baki rannsókn á þessum vændis-
málum, enda sé þetta mikill fjöldi
mála. „Flugstöðin er auðvitað í
okkar umdæmi og ýmis mál sem
koma þar upp hafa teygja anga sína
inn á höfuðborgarsvæðið og einnig
út á land. Sem dæmi má líka nefna
að þau fíkniefnamál sem koma þar
upp tengjast alls ekki öll Suður-
nesjum beint.“
Gunnar rifjar einnig upp man-
salsmál sem kom upp árið 2009,
en lögreglan á Suðurnesjum hafði
rannsókn á því máli að gera. „Þegar
við tökum að okkur rannsóknina
þá höldum við henni til streitu. Í
því máli var brotavettvangurinn
ekki á Suðurnesjum.
-fréttir pósturX vf@vf.is
Ekki um 40 vændiskaupendur
af Suðurnesjum að ræða
Tónlistarnemendur eru farnir að finna verulega fyrir því að
kennarar í Félagi tónlistarskóla-
kennara, FT, hafa verið í verkfalli
síðan 22. október. Hjá Tónlistar-
skóla Reykjanesbæjar eru 28 tón-
listarkennarar í verkfalli en 16
eru við störf en þeir kennarar eru
í öðru stéttarfélagi.
Verkfall tónlistarskólakennara
snertir við mörgum í Reykja-
nesbæ, enda fjölmargir sem leggja
stund á tónlistarnám. Samningar
milli viðsemjenda ganga illa og
þegar tíðindamaður Víkurfrétta
tók hús á tónlistarskólakennurum
á þriðjudagsmorgun var þungt
hljóð í þeim, enda stál í stál hjá
samninganefndum. Á meðan ekki
semst verða áhrif verkfallsins alvar-
legri með hverjum deginum. Nú
þegar jólin nálgast þá getum við
horft upp á það að jólatónlistin í
Reykjanesbæ sé í hættu. Lúðrasveit
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar sé
óstarfhæf vegna verkfalls kennara.
Því geti blásarar sveitarinnar ekki
mætt á hina ýmsu viðburði nú í
aðdraganda jóla á meðan verk-
fallið varir. Bjöllukór Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar hefur þó fengið
undanþágu til að fara í sjónvarps-
upptöku og einnig til að taka þátt í
tónleikum með Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Óskað hefur verið eftir
bjöllukórnum með sveitinni í ár og
einnig hefur hann verið bókaður
fyrir næsta ár.
Tónlistarskólakennarar sem Víkur-
fréttir hittu að máli á þriðjudags-
morgun segja það alls ekki auðvelt
að standa í verkfalli þessa dagana
og finnst lítið miða í samkomu-
lagsátt hjá viðsemjendum. Þeim
finnist mikið bera í milli enda vilja
tónlistarskólakennarar njóta sömu
kjara og grunnskólakennarar og
segja muninn á milli þessara kenn-
arastétta vera of mikinn í dag.
Tónlistarskólakennurum í Reykja-
nesbæ hefur frá því verkfallið hófst
borist fjöldinn allur af stuðnings-
yfirlýsingum og baráttukveðjum
frá einstaklingum, starfsmanna-
hópum og félagasamtökum. Slíkur
stuðningur eflir baráttuanda innan
hópsins, segja þau sem standa í
verkfallinu.
Síðan verkfall hófst hafa kennarar
í FT við Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar haldið hópinn og fundað
reglulega. Á fundi sínum á dög-
unum fengu þeir óvænta heim-
sókn, þegar fulltrúar framhalds-
skólakennara við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja bönkuðu upp á og
færðu kennurum TR táknræna
gjöf og fluttu þeim stuðnings- og
baráttukveðjur félaga sinna í FS.
Slíkt vinarþel er ómetanlegt og vilja
kennarar í FT við Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar koma á framfæri
innilegu þakklæti til kennara við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja fyrir
stuðninginn.
Jólatónlistin í hættu vegna verkfalls
– Tónlistarskólakennarar hittast reglulega og stappa í sig stálinu
Tónlistar-
skólakennarar
í verkfalli
komu saman á
heimili í Njarð-
vík í vikunni
til skrafs og
ráðagerða.