Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.11.2014, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 13.11.2014, Blaðsíða 19
19VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 13. nóvember 2014 Seinna haustmót fimleikasam-bands Íslands fór fram um sl. helgi. Keppt var í 1., 2. og 3. þrepi íslenska fimleikastigans sem og frjálsum æfingum. Fimleikadeild Keflavíkur sendi þrjá keppendur á mótið. Stúlkurnar stóðu sig með stakri prýði. Hérna fyrir neðan má sjá úrslitin frá mótinu. Laufey Ingadóttir keppti í 1. þrepi í 11 ára flokki. Hún hafnaði í 2. sæti á stökki, 1. sæti á gólfi og 3. sæti samanlagt. Alísa Rún Andrésdóttir keppti í 1. þrepi 12 ára og eldri. Hafnaði í 2.sæti á slá og 1.sæti á gólfi. Katla Björk Ketilsdóttir keppti í 1. þrepi 12 ára og eldri hafnaði í 1. sæti í stökki. Frábær árangur fimleikastúlkna Bakvörðurinn sterki Guðjón Árni Antoníusson mun leika með Keflvíkingum næstu tvö árin. Gengið var frá samningum þess efnis í vikunni. Guðjón, sem lék með FH undanfarin ár, mun auk þess sjá um að halda Keflvík- ingum við efnið í líkamsræktinni, en hann verður styktarþjálfari liðsins. Hann sagðist ánægður með ákvörðun sína en hann tók sér dágóðan tíma í að ákveða hvar hann skildi leika, enda vildu Hafnfirðingar áfram nýta sér starfskrafta hans. Guðjón hefur verið að glíma við höfuðmeiðsli sem héldu honum frá keppni lengi vel, jafnvel var óttast að hann gæti ekki leikið fótbolta framar. „Ástandið á mér er mjög gott og ég finn ekki fyrir neinu. Ég fékk að vita að ég mætti leika fót- bolta áfram og ég tók þá ákvörðun að gera það, og er sáttur við hana. Á tímabili var það ofaná að ég myndi jafnvel hætta í fótbolta. Mér leið mjög illa með það,“ sagði Garð- búinn Guðjón. „Það eru spennandi tímar fram- undan, bæði að þróa þessa ungu stráka áfram og vera aftur með þessum gömlu hundum. Svo það að vinna með Kristjáni og gera eitt- hvað spennandi í Keflavík.,“ bætti Guðjón við. X■ Guðjón vill gera eitthvað spennandi með Keflvíkingum Heill heilsu og klár í slaginn Þær Alísa, Katla og Laufey stóðu sig með prýði. STEIKARKVÖLD KKDK föstudaginn 14. nóvember, TM-höllin Nautalund // Lambalæri // Kalkúnabrina m/fyll- ingu // Bernaise & Villisveppasósa // Meðlæti Húsið opnar kl. 19:00. Miðaverð: 6.900,- Miðapantanir hjá eftirtöldum aðilum: Ásgeir Elvar - asgeir@geysir.is - s, 663 2346 Garðar Örn - gardarorn@stod2.is - s. 848 5375 Sævar Sævars - saevar03@gmail.com - s. 869 1926 Hafnargata 29 Sími: 4214017 FROSTI JÖKULL LEIKA YLJA ÍSA GOÐAFOSS GLANNI TILBOÐ fimmtudag | föstudag | laugardag | mánudag kr 12.990 kr 16.990 kr 7.990 kr 9.990 kr 9.990 kr 12.990 kr 13.990 kr 17.990 kr 11.990 kr 14.990 kr 2.390 kr 2.990 kr 2.790 kr 3.490 -fréttir pósturX vf@vf.is Norræn veisla í Grindavík á laugardaginn XXÞað verður heldur betur Norræn menningarveisla næsta laugardag í Kvikunni í Grindavík en þá verður m.a. málþing um Norræna sam- vinnu og Norræn deild í Grindavík endurvakin kl. 14:00. Jafnframt verður Norrænt ljóða- og vísnakvöld í Kvikunni kl. 17:00 í umsjá Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar rithöfundar og tónlistarmanns. Upphitun hefst um morguninn kl. 10:00 í Kvikunni en þá heldur Aðal- steinn Ásber hraðnámskeið í nútíma ljóðagerð. Starfsemi Norrænu deildarinnar í Grindavík hefur legið niðri mörg undanfarin ár en nú er áhugi fyrir að endurvekja hana. Í tilefni þess og að Grindavíkurbær heldur upp á 40 ára kaupstaðarafmæli sitt, stendur Kvikan fyrir þessum skemmtilega viðburði. Sérstakur gestir gestir á ljóða- og vísnakvöldinu verða Satu Takkinen frá Piteå, vinabæ Grindavíkur í Svíþjóð, sem flytur frumsamin ljóð og lög, Halldór Lárusson bæjarlista- maður og fleira tónlistarfólk tengt Norðurlöndunum. Ýmis tækifæri eru í Norrænni samvinnu og verður sérstakt málþing um það um leið og Grindavíkudeildin verður endurtakin. Sérstakir gestir á málþingionu veðra Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, formaður Norræna félagsins á Ís- landi og deildarstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu og Ásdís Eva Hannesdóttir framkvæmdastjóri Norræna félagsins. Þá mun Kristín Pálsdóttir fara yfir sögu deildar Norræna félgsins í Grindavík. Allir eru velkomnir í Kvikuna á laugardaginn. Viðburðurinn er styrktur af Menn- ingarráði Suðurnesja. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu bæjarins, www.grindavik.is Notalegt í nóvember í Eldey – Opið hús í Eldey frumkvöðlasetri 13. nóvember XXÞað verður notalegt í nóvember í Eldey frumkvöðlasetri en þá verður opið hús hjá hönnuðum og frum- kvöðlum í húsinu. Fyrsta kvöldið hefst í kvöld, fimmtudaginn 13. nóvember kl. 20:00, en þá verður boðið upp á pop-up markað fjölda hönnuða af svæðinu, vinnustofur hönnuða og frumkvöðla verða opnar og fiskland býður upp á ný- stárlegar kræsingar auk þess sem boðið verður upp á léttar veitingar. Hljómsveitin Klassart, sem nýverið gaf út nýtt efni, leikur ljúfa tóna á staðnum og ljósmyndastofan Ozzo býður myndatöku á vinnustofu sinni með jólaívafi. Ver heilli vinnuviku í hverja konu Sjónvarp Víkurfrétta tekur púlsinn á mannlífinu Þáu verður eiig aðgengiler á vef Víku réa í háskeu Bóbi með fu hús af konum Viibráð og Aiaves í Bláa lóninu Ráðstefnur og ga aver í Reykjanesbæ Þórdís býr á „by ðasafni“ í G ndavík Sjón„ Víku réa á ͆ ö ˆ‰tudagskvöld kl. 21:30

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.