Víkurfréttir - 13.11.2014, Blaðsíða 8
8 fimmtudagurinn 13. nóvember 2014 • VÍKURFRÉTTIR
Tímabundið ley til sölu skotelda í smásölu
og ley til skoteldasýninga
Lögreglan á Suðurnesjum
Upplýsingar til umsækjanda tímabundins leys fyrir sölu skotelda í
smásölu og leys til skoteldasýninga frá og með 28. desember 2014
til og með 6. janúar 2015.
Þeir aðilar sem hyggjast sækja um ley fyrir sölu skotelda í smásölu í
Reykjanesbæ, Garði, Grindavík, Sandgerði og Vogum fyrir og eftir
áramót 2014-2015, ber að sækja um slíkt ley til lögreglunnar á
Suðurnesjum fyrir kl. 16:00, 1. desember 2014.
Hægt er að nálgast umsóknirnar á vef Lögreglustjórans á
Suðurnesjum og á lögreglustöðinni í Keavík að Hringbraut 130.
Einnig á lögreglustöðinni í Grindavík, Víkurbraut 25. Ley eru veitt að
fullnægðum skilyrðum vopnalaga nr. 16/1998 og gildandi reglugerðar
um skotelda.
Athugið:
• Umsóknaraðilar skila inn umsóknum 1. desember 2014, - til lögreglu
að Brekkustíg 39, ásamt fylgigögnum.
• Umsóknir um sölustaði sem berast eftir 1. desember 2014 verða ekki
teknar til afgreiðslu.
• Umsóknaraðilar skulu vera komnir með leyn í hendur mánudaginn
22. desember 2014.
• Óheimilt er að hea sölu, nema söluaðilar ha í höndum leysbréf
frá lögreglu.
• Söluaðilar sæki leysbréf á lögreglustöðina við Hringbraut
mánudaginn 22. desember 2014, kl. 09:00.
Sérstök athygli er vakin á eftirfarandi:
• Ley eru aðeins veitt fyrir sölu skotelda að fyrir liggi umsögn
viðkomandi slökkviliðs til aðstöðu og sölu skotelda, pökkunar- og
geymslustaði. Einnig liggi fyrir ley lóðareiganda, húseiganda eða
húsfélags ef umsækjandi er ekki umráðamaður lóðar eða húsnæðis
þar sem sala á að fara fram og staðfesting tryggingafélags vegna
sölu, geymslu og notkun skotelda.
• Ef fyrirhugað er að selja úr skúrum eða gámum, skal vera búið að
ganga frá slíkum sölustöðum fyrir kl. 16:00, mánudaginn
15. desember 2014 svo lokaúttekt geti farið fram á aðstöðu og
öryggisþáttum. Sölustaðir skulu vera minnst 25 fermetrar og búnir
samkvæmt kröfum slökkviliðs viðkomandi sveitarfélags.
Tilgreina þarf ábyrgðarmann fyrir sölustað, sem hefur sérþekkingu á
skoteldum og hefur náð 18 ára aldri.
Að gefnu tilefni skal vakin athygli á að sala og meðferð skotelda er
einungis heimil á tímabilinu frá og með 28. desember 2014 til og
með 6. janúar 2015.
Gjald fyrir sölustað er kr. 5.000, skoteldasýningar er kr. 8.300 og
brennur kr. 8.300 og greiðist við innlögn umsóknar hjá lögreglu.
Reykjanesbær 13. nóvember 2014.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum.
Athugið:
Kynningarfundur með væntanlegum umsækjendum verður haldinn
miðvikudaginn 19. nóvember 2014, kl. 19:30 í húsakynnum
Brunavarna Suðurnesja að Hringbraut 125, Reykjanesbæ.
Lögreglustjórinn
á Suðurnesjum
Brekkustíg 39 - 260 Reykjanesbæ - s. 420-1700 og 420-1891
Biokraft ehf. hefur sótt um að reisa vindmyllu við Grinda-
vík, eins og áður hefur verið
greint frá í Víkurfréttum. Í erindi
til bæjaryfirvalda í Grindavík er
lýst áætlunum um uppbyggingu
vindmyllu á Stað.
Mastur vindmyllunnar er 40
m, þvermál blaðahrings er 44 m
og mun mannvirkið því ná 62
m hæð. Hluti skipulags- og um-
hverfisnefndar fór í skoðunarferð
í Þykkvabæ þann 15. október sl.
og hittu forsvarsmenn Biokraft og
skoðuðu samskonar vindmyllur.
Skipulags- og umhverfisnefnd telur
mannvirkið ekki falla vel að þeirri
náttúru sem er í nágrenni Grinda-
víkur. Sem stendur er mikil vinnsla
á vistvænni orku í sveitarfélaginu í
gegnum jarðvarma og ekki fyrirséð
orkuþörf sem kalli eftir uppsetn-
ingu vindmyllna við strandlengju
sveitarfélagsins.
Skipulags- og umhverfisnefnd
Grindavíkur leggur til að erind-
inu verði hafnað og bæjarstjórn
Grindavíkur samþykkir sam-
hljóða tillögu skipulags- og um-
hverfisnefndar og beinir því til
nefndarinnar að við endurskoðun
aðalskipulags verði metið hvort
og þá hvar heimilt verði að reisa
vindmyllur innan skipulagsmarka
Grindavíkur.
HS Orka hf. hefur óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir af-
fallslögn frá Svartsengi til sjávar.
Fyrirhuguð lögn er alls um 4,5
km að lengd. Fyrir liggur ákvörð-
un Skipulagsstofnunar frá árinu
2012 og er fráveitulögn fyrir af-
fallsvatn frá niðurdælingarsvæði
við orkuverið í Svartsengi til
sjávar ekki líkleg til að hafa í för
með sér umtalsverð umhverfis-
áhrif og er því ekki háð mati á
umhverfisáhrifum.
Skipulags- og umhverfisnefnd
Grindavíkur leggur til að fram-
kvæmdaleyfi verði veitt, en leggur
til að það verði bundið þeim skil-
yrðum að belti fyrir uppgrafið efni
meðfram fyrirhugaðri lögn verði
fjarlægt og raski verði haldið í lág-
marki.
Bæjarstjórn Grindavíkur sam-
þykkir samhljóða framkvæmda-
leyfið og leggur áherslu á að fram-
kvæmdaleyfið verði skilyrt með
sömu skilyrðum og nefndin leggur
til.
Póst- og fjarskiptastofnun hefur leitað umsagnar Sand-
gerðisbæjar vegna beiðni Íslands-
pósts um heimild til lokunar
póstafgreiðslu í Sandgerðisbæ.
Bæjarráð Sandgerðisbæjar telur
óeðlilegt að póstafgreiðslu í sjálf-
stæðu sveitarfélagi með um 1.600
íbúa og mikla atvinnustarfsemi
sé lokað. Slíkt hefur í för með sér
skerðingu á lífskjörum íbúa og
takmarkar þjónustu við atvinnu-
starfsemi í bæjarfélaginu.
Bæjarráð Sandgerðis telur rétt að
minna á að alþjóðlegur flugvöllur
er í sveitarfélaginu og mikil starf-
semi sem honum tengist. Jafnframt
bendir bæjarráð á að í rökstuðningi
Póstsins í bréfi til Póst- og fjar-
skiptastofnunar dags. 16.10.2014
er vísað í fordæmi sem ekki er
hægt að yfirfæra á Sandgerðisbæ.
Þar er talað um breytingar á þjón-
ustu á stöðum sem allir eiga það
sameiginlegt að vera afmarkaðir
byggðakjarnar eða hverfi í stærri
sveitarfélögum. Slíkt á ekki við í til-
felli Sandgerðisbæjar, sem er sjálf-
stætt sveitarfélag.
Bæjarráð hefur ekki fengið til sín
samanburð sem vísað er til í lok
bréfs Póstsins og mótmælir harð-
lega að fá ekki slík gögn sem eru
lögð til grundvallar því að skerða
þjónustu í sveitarfélaginu.
-fréttir pósturX vf@vf.is
Engar vindmyllur
við Grindavík
Dæla „bláa lóninu“
í sjóinn við Grindavík
Lokun pósthúss skerðir
lífskjör í Sandgerði
– óeðlilegt að póstafgreiðslu í sjálfstæðu
sveitarfélagi með um 1.600 íbúa sé lokað.
Auglýsingasími
Víkurfrétta er
421 0001