Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.11.2014, Síða 4

Víkurfréttir - 13.11.2014, Síða 4
4 fimmtudagurinn 13. nóvember 2014 • VÍKURFRÉTTIR BLUE LAGOON HÁDEGISBRUNCH TIL STYRKTAR OG HEIÐURS ÍÞRÓTTASAMBANDI FATLAÐRA Hádegisbrunch að hætti matreiðslumeistara Bláa Lónsins verður í boði laugardaginn 15. nóvember í Eldborg í Svartsengi kl. 12.00. Allur ágóði vegna viðburðarins rennur til Íþróttasambands fatlaðra. Verð: ・ 3.900 krónur fyrir fullorðna ・ 1.950 krónur fyrir 7-12 ára ・ frítt fyrir 6 ára og yngri Boðskort í Bláa Lónið er innifalið í verði fyrir þá sem bóka fyrir kl. 16.00, föstudaginn 14. nóvember. Hin vinsæla hljómsveit Klassart mun koma fram og flytja hugljúfa tóna. Árangur íþróttamanna Íþróttasambands fatlaðra hefur vakið mikla athygli og eru margir þeirra í fremstu röð. Bláa Lónið og Íþróttasamband fatlaðra gerðu með sér samstarfssamning árið 2012. Samningurinn er til fjögurra ára og gildir fram yfir Ólympíumót Fatlaðra í Ríó 2016. Bókanir og upplýsingar á sales@bluelagoon.is og í síma 420 8800. 2004 2014 ATVINNA SBK ehf óskar eftir að ráða bifreiðastjóra frá og með 5. janúar 2015.  Hæfniskröfur: Rútupróf Dugnaður og sjálfstæð vinnubrögð Hæfni í mannlegum samskiptum  Áhugasamir sendi umsókn á sbk@sbk.is og til að fá frekari upplýsingar. SBK · Grófin 2 – 4 · 230 Reykjanesbæ · Sími 420 6000 · Fax 420 6009 sbk@sbk.is · sbk.is ATVINNA Vantar starfsmann í vinnu við öll almenn störf hjá okkur í Sólningu í Reykjanesbæ. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Áhugasamir vinsamlegast sendi á netfang: stjani@solning.is eða á staðnum Fitjabraut 12. Á fundi bæjarráðs Reykja-nesbæjar í síðustu viku var ákveðið að fara í ákveðnar að- gerðir í þessum tilgangi og m.a. draga úr yfirvinnu og akstur- skostnaði starfsmanna eins og kostur er. Þannig verði opnunar- tímar, vaktakerfi og verklag ein- stakra stofnana, endurskoðaðir. Einnig var ákveðið að hækka út- svar frá og með 1. janúar 2015 um 0,53%, fer úr 14,52% í 15,05%. Þá mun fasteignaskattur A-stofns hækka úr 0,3% í 0,5% frá sama tíma. Þessar aðgerðir eiga að skila annars vegar 250 milljóna króna lækkun rekstrarkostnaðar og samtals tekjuaukningu bæjar- sjóðs um 455 milljónir króna. Launakostnaður langstærsti liðurinn „Hinn mikli fjárhagsvandi sem Reykjanesbær stendur frammi fyrir hefur ekki farið framhjá neinum. Ljóst er að grípa þarf til víðtækra aðgerða. Launakostnaður í sinni víðtækustu mynd er langstærsti einstaki kostnaðarliður sveitar- félagsins, eða um 44% af útgjöldum þess. Því verður ekki hjá því komist að skoða þann lið sérstaklega þegar leitað er leiða til að koma fjármálum Reykjanesbæjar í viðunandi horf,“ segir í Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, í pistli á vef Reykjanebæjar. Þar segir enn- fremur að einhverjir hafi hvatt til þess að fólki verði sagt upp störfum í sparnaðarskyni en bæjarstjórn sé einhuga um að verja störf og standa vörð um grundvallarþjónustuna. Því þurfi að leita annarra leiða. Yfirvinna og vaktir endurskoðaðar Í tilkynningu frá bæjaryfirvöldum segir að á 1001. fundi bæjarráðs hafi verið ákveðið að fara í ákveðn- ar aðgerðir í þessum tilgangi og m.a. draga úr yfirvinnu og akstur- skostnaði starfsmanna eins og kostur er. Þannig verði opnunar- tímar, vaktakerfi og verklag ein- stakra stofnana, endurskoðaðir. Þá verði yfirvinna einungis heimil með samþykki næsta yfirmanns og öllum ákvæðum um fasta yfir- vinnu í ráðningarsamningum sagt upp. Fastlaunasamningar og samningar sem feli í sér ákvæði um „önnur laun“ verði einnig endur- skoðaðir. Loks verði ákvæðum um fasta bifreiðastyrki sagt upp en greitt verði fyrir akstur samkvæmt akstursdagsbók, að fengnu sam- þykki næsta yfirmanns. 250 milljóna lækkun rekstrarkostnaðar Kjartan Már segir að vonast sé til að þessar aðgerðir skili um 250 millj- óna króna lækkun rekstrarkostn- aðar og verði liður í því að koma Reykjanesbæ yfir erfiðasta hjallann fyrst um sinn. „Þessi leið var valin eftir vandlega yfirferð annarra val- möguleika. Á meðal þeirra var að hækka eingöngu annan þessara skattstofna. Með því að fara þessa blönduðu leið dreifast byrðarnar á fleiri herðar, þ.e. bæði útsvarsgreið- endur og alla eigendur íbúðarhús- næðis í A-stofni, þar með taldir ýmsir lögaðilar sem eiga íbúðar- húsnæði í Reykjanesbæ s.s. leigu- félög, bankar, Íbúðalánasjóður og fleiri. Gjaldstofnar fasteigna í B-stofni (opinberar byggingar) og C-stofni (atvinnuhúsnæði) eru þegar full- nýttir.“ Útsvar og fasteignagjöld hækka Að mati bæjarstjórnar felur þessi blandaða leið í sér að út- svar hækkar frá og með 1. janúar 2015 um 0,53%, fer úr 14,52% í 15,05%, sem er hlutfallshækkun upp á 3,62%. Sú hækkun bætir fjárhagsstöðu bæjarssjóðs um 200 milljónir króna. Jafnframt hækkar fasteignaskattur A-stofns úr 0,3% í 0,5% frá sama tíma. Það leiðir til tekjuaukningar fyrir bæjarsjóð um 255 milljónir króna. „Samtals gæti því tekjuaukning bæjarsjóðs orðið 455 milljónir króna. Samhliða þessum aðgerðum er unnið að tillögum um hagræð- ingu í rekstri sem ætlað er að skila um 500 milljóna króna lækkun rekstrarkostnaðar Reykjanesbæjar. Þær tillögur munu líta dagsins ljós í fjárhagsáætlunum stofnana fyrir árið 2015 sem lagðar verða fyrir bæjarstjórn í desember,“ segir Kjartan Már. Búið að finna 455 milljónir – Ákveðið að hækka útsvar og fasteignagjöld í Reykjanesbæ. Munu verja störf og grundvallarþjónustu. -fréttir pósturX vf@vf.is Veggjakrotari eyði- leggur listaverk XXVeggjakrotari hefur ráðist til atlögu gegn listaverkinu á gamla vatnstanknum á Vatnsholti í Kefla- vík. Búið er að sprauta olíumáln- ingu á listaverkið og skemma það að hluta. Íbúi í nágrenni við tankinn segir að þegar lokið var við listaverkið hafi Reykjanesbær ætlað að setja verndar- húð yfir listaverkið. Með verndarhúð er hægt að þvo veggjakrotið í burtu án þess að skemma það sem er undir. Íbúinn segir að verndarhúðin hafi hins vegar aldrei verið sett yfir verkið. Sýna Grindvíkingum vanvirðingu og yfirgang XXGrindavíkurbær hefur krafist aðkomu að endurskoðun vatnsverndar á höfuðborgar- svæðinu því heildarendurskoðun hennar gæti haft veruleg áhrif á landnýtingu innan Grindavíkurbæjar. Því er eðlilegt að unnið sé að þessu verkefni í nánu samstarfi við Grindavíkurbæ. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa ekki svarað þeirri kröfu Grindavíkurbæjar og með því telur Grindavíkurbær að verið sé að sýna ákveðna vanvirðingu og yfirgang. Grindavíkurbær hefur jafnframt lýst afstöðu sinni við Hafnar- fjarðarbæ. Bæjarstjórn Grindavíkur lítur svo á að sveitarfélagið sé ekki almennur hags- munaaðili og því ekki bundið af athugasemdafresti til 10. nóvember. Bæjar- stjórn hefur leitað álits lögmanns á málinu og mun veita sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu umsögn þegar það liggur fyrir. Fríar blóðsykursmælingar Lions – í Nettó Krossmóa XXLaugardaginn 15. nóvember frá kl.13:00-16:00 munu Lionsklúbbur Keflavíkur, Lionsklúbbur Njarðvíkur Lionsklúbburinn Æsa Njarðvík, Lionsklúbburinn Garður, Lionsklúbbur Sandgerðis og Lionessuklúbbur Keflavíkur í samstarfi við Lyfju í Nettó, vera í Nettó Krossmóa að bjóða fólki upp á fría blóðsykursmælingu. Þetta er gert í tilefni af Alþjóða- þjóðadegi sykursjúkra 14. nóvember, en nóvember er mánuður sykurs- sýkisvarna hjá Lions. Þá bjóða Lionsklúbbar víðs vegar um land upp á fría blóðsykursmælingu. Markmiðið er að vekja almenning til umhugs- unar um hættuna sem getur stafað af því að ganga með dulda sykursýki. Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.