Víkurfréttir - 13.11.2014, Side 12
12 fimmtudagurinn 13. nóvember 2014 • VÍKURFRÉTTIR
Þórdís Ásmundsdóttir, sem oftast er kölluð Dísa, fluttist
frá Reyðarfirði til Grindavíkur
árið 1993. Húsið sem hún býr í
heitir Akur, sem staðið hefur við
fjöruborðið frá árinu 1920. Húsið
vekur gjarnan mikla athygli
þeirra sem eiga leið fram hjá því
það er bæði fallegt og umhverfis
það eru margir áhugaverðir og
skrautlegir munir. Heimili Dísu
hefur smám saman breyst í hálf-
gert byggðasafn því þegar gengið
er inn í það er nánast hver fer-
sentrimetri nýttur með munum
sem hún hefur safnað í tímans
rás.
Tíu þúsund pennar
„Ég kom með sitt lítið af hverju með
mér frá Reyðarfirði, aðallega steina.
Ég hafði lengi safnað steinum, enda
mikið um fallega steina þar. Eitt
sinn kom kona til mín á Sjóaranum
síkáta. Ég hafði aldrei séð þessa
konu fyrr né síðar. Hún sagðist
eiga land að fjöru hérna austan
megin við bæinn og þar hefði rekið
að hval. Ég mætti fara þangað og
ná mér í bein ef ég vildi. Sonar-
sonur minn fór með mér og hjálp-
aði mér að sækja beinin. Það eru
rifbeinin sem eru fyrir utan. Svo
vatt þetta bara upp á sig og fleira
bættist við héðan úr Grindavík,“
segir Dísa. Hún er ósköp hógvær
og finnst ekki mikið koma til þeirra
tíu þúsund penna, mörg hundruð
lyklakippna og ýmislegs annars
sem hengt er um allt hús. Í lofti
eldhússins hangir fjöldinn allur af
kaffikrúsum. „Fólk ýmist kemur
með hluti til mín eða sendir þá til
mín víða að úr heiminum. Ég á
penna frá Kína, Bandaríkjunum,
Englandi, Svíþjóð og Noregi. Bara
nefndu það. Margt af því fólki sem
kemur hingað að skoða sendir mér
svo eitthvað síðar.“
Fædd safnari
Dísa segist halda mest upp á
mjólkurbrúsa og einnig skilvindu
og stokk. Spurð hvort hún hafi
hafi alltaf viljað geyma hluti seg-
ist hún hlæjandi telja að hún hafi
fæðst svoleiðis. „Ég hef aldrei hent
neinu. Ég á öll mín jólakort, af-
mæliskort og megnið af því sem ég
hef eignast.“ En hvað gefur henni
mest við að safna hlutum og halda
upp á þá? „Ætli það sé ekki bara
ruslasöfnun,“ segir Dísa hlæjandi
og bætir við „Nei mér finnst bara
gaman að þessu og guðs fegin núna,
þegar ég er orðin svona fullorðin
og hætt að vinna, að hafa eitthvað
að gera við að þurrka af öllu þessu
dóti og drasli. Það er ekkert sérstakt
skipulag á þessu. Ég hef nánast hent
þessu upp hér og þar. Þetta kemur
ekkert svo illa út. Dúkkurnar eru
t.d. allar í röð þarna óvart.“
Fullur gangur af fólki
Erlendir gestir og aðrir gestir sem
koma til Dísu segir hún koma
vegna þess að þeir áttu leið framhjá
húsinu en svo komi einnig gestir
sem sem hafa heyrt frá öðru fólki
sem hefur kíkt við. „Sumir ganga
bara beint inn og stundum er bara
fullur gangur af fólki þegar ég
kem innan út eldhúsinu, sem var
náttúrlega ekki alveg meiningin.“
Stundum staldri fólk við í nokkra
tíma og stundum bara stutt. Það
sem vekur gjarnan mesta athygli
og lukku hjá gestum telur Dísa vera
steinina fyrir utan. „Svo verður
það náttúrulega rosalega forvitið
þegar það kemur inn. Þetta er fólk á
ýmsum aldri og hingað koma einn-
ig leikskóla- og grunnskólakrakkar
sem gaman er að fá. Það er sagt að
það sé gott að búa í Kópavogi en
ég held að það sé ekkert verra að
búa í Grindavík,“ segir Dísa kát að
lokum.
X■ Heimili Þórdísar Ásmundsdóttur er orðið að hálfgerðu byggðasafni í Grindavík:
Hef eitthvað til að þurrka af
-viðtal pósturX olgabjort@vf.is
Ég á öll
mín jólakort,
afmæliskort
og megnið af
því sem ég
hef eignast
Það var heldur betur fjör í Sand-gerði fyrr í vikunnu þegar
fram fór dansleikur í Samkomu-
húsinu. Um að ræða svokallað Ást-
valdarball sem haldið var í fyrsta
skiptið, en ballið er sérstaklega
ætlað fyrir fatlaða einstaklinga á
Suðurnesjum. Ástvaldur Ragnar
Bjarnason átti hugmyndina að ball-
inu en honum innan handar voru
þeir Örlygur Örlygsson og Eiður
Eyjólfsson.
Boðið var upp á pylsur og ýmislegt
góðgæti auk þess sem tónlistarmenn
mættu til þess að halda uppi fjörinu.
Þeirra á meðal voru Eiður og Addi,
BJ Explosion og Hobbitarnir. Allt
ætlaði svo um koll að keyra þegar
leynigestur mætti á svæðið, en þar
var á ferðinni sjálfur Ingó Veðurguð.
Skapaðist sannkölluð Þjóðhátíðar-
stemning þar sem allir sungu með
þegar Ingó mundaði gítarinn.
Sandgerðisbær lánaði Samkomu-
húsið undir veisluna og allar veit-
ingar voru í boði gjafmildra aðila.
Stjórnendur vildu koma á framfæri
þökkum til þeirra aðila sem lögðu
hönd á plóg en vonast er til að um
árlegan viðburð verði að ræða.
Þvílíkt stuð á Ástvaldarballinu