Víkurfréttir - 18.01.2007, Blaðsíða 14
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 3. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR
Reynir Sveinsson, slökkvi-liðsstjóri í Sandgerði, segir
aðbúnað slökkviliðsins aldrei
hafa verið betri en einmitt nú.
Á fundi bæjarráðs Sangerð-
isbæjar í gær kom fram að
framkvæma þyrfti mælingar á
afkastagetu brunahana í sveit-
arfélaginu þegar breytingum á
vatnsveitu væri lokið.
„Fyrir skemmstu kom fulltrúi
Brunamálastofnunar til okkar
og gerði nokkrar athugasemdir.
Við brugðumst fljótt við og nú í
síðustu viku fengum við m.a. til
okkar sverari brunaslöngur og
mónitor eða kastbyssu sem af-
kastar um 1900 lítrum af vatni á
mínútu,“ sagði Reynir í samtali
við Víkurfréttir.
Um 22 sjálfboðaliðar eru til taks
hjá slökkviliðinu í Sandgerði
en Reynir segir að hægt verði
að framkvæma mælingarnar á
brunahönum í bæjarfélaginu
þegar þiðnar. „Vatnskerfið í Sand-
gerði er margfalt betra en áður.
Undanfarin 3-4 ár hafa staðið
yfir endurbætur á vatnskerfinu
og er ég þess fullviss að þegar
mælingar á nýju lögnunum og
brunahönunum í bæjarfélaginu
verða gerðar verða þær mun
betri en fyrri mælingar,“ sagði
Reynir en Brunamálastofnun
hefur þegar óskað eftir því að fá
afrit af mælingunum þegar þær
verða framkvæmdar.
Reynir segir einingu um það
innan slökkviliðsins í Sandgerði
að vera áfram sjálfstæð eining
og bætir við að það sé öruggara
að sameinast ekki slökkviliðinu
í Keflavík. „Við leggjum áherslu
á að öryggið innanbæjar sé
sem mest á fyrstu mínútunum
þegar bruna ber að. Viðbrögð
okkar hafa verið góð hingað til
og oftar hefur það verið raunin
að slökkviliðið í Keflavík hefur
þurft á okkar aðstoð að halda en
öfugt en þetta er á endanum póli-
tísk ákvörðun,“ sagði Reynir.
Nýlega voru fjarskiptatæki,
trefjakútar og gallar endurnýj-
aðir svo aðbúnaður slökkviliðs-
ins í Sandgerði hefur sjaldan
eða aldrei verið betri. Bruna-
málastofnun vill þó fá afrit af
mælingu brunahananna innan
þriggja vikna segir í bókun bæj-
arráðs í gær en hvenær sem
mælingin verður gerð er Reynir
þess fullviss að þær tölur sem
þar munu koma fram verði mun
betri en áður.
jbo@vf.is
Sandgerði:
Aðbúnaður slökkvi-
liðsins í Sandgerði
aldrei betri