Fréttatíminn - 07.04.2017, Qupperneq 17

Fréttatíminn - 07.04.2017, Qupperneq 17
| 17FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017 FERMINGAR VEISLA GLÆSILEGUR 8BLS BÆKLINGUR Á TOLVUTEK.IS Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 7. apríl 2017 • B irt m eð fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og m yndabrengl Virka daga 10:00 - 18:00 Laugardaga 11:00 - 16:00 OPNUNARTÍMAR PS4 SLIM 500GB 37.990 PS4 VR GLERAUGU 49.990 55” SALORA 99.990 Uppskrift að ástarpungum: 9 bollar hveiti 3 bollar sykur 9 tsk lyftiduft rúsínur og mjólk Hrært deig, álíka þykkt og jólakökudeig. níu systkina og ólst upp ekki langt frá Bergistanga, í Stóru-Ávík í Tré- kyllisvík. „Já, og þið voruð líka sendar á aðra bæi að hjálpa til,“ skýtur Gunnsteinn þá inn í. „Já, já. Unglingsstelpur voru sendar á aðra bæi þegar húsfrúrnar á næstu bæjum eignuðust börn. Þá var reglan sú að nýbakaðar mæður lægju í heila viku eftir fæðinguna. Feðurnir voru auðvitað í bústörf- unum svo samfélagið kom og hjálp- aði til. Ég var sautján ára þegar ég fór á bæinn hér innst í firðinum og var þar í viku,“ segir Maddý og set- ur aðra skál af ástarpungum á eld- húsborðið. „Ástarpungar voru alltaf til í þá daga og voru jafn hversdagslegir og kleinur,“ segir Maddý „Já, já, eins og jólakakan og hjónabandssælan voru líka,“ segir Gunnsteinn. „Ég á nú oftast eitthvað í frystin- um, en við erum ekkert að borða svona eins og áður. Við höfum ekk- ert gott af því að fá okkur alltaf sætt með kaffinu, því við hreyfum okkur ekki jafn mikið og áður.“ „Já, allt í einu var það nú fund- ið upp, að maður hefði ekki gott af sætabrauði. Allt í einu núna er það óhollt, núna þegar ég er búinn að borða þetta í næstum hundrað ár,“ segir Gunnsteinn og þau hlæja bæði. Ekkert að gerast lengur Allt sem Maddý lærði í hússtjórn- unarskólanum var skjalfest í stíla- bók sem hefur fylgt henni allar götur síðan. Gunnsteinn var kaup- félagsstjóri í kaupfélaginu í Norð- urfirði í þrjátíu ár og oddviti í jafn mörg ár. Þau hjónin hófu því bú- skap í íbúðinni fyrir ofan kaupfé- lagið og bjuggu þar allt þar til þau fluttu í stærri íbúð með börnin sín fjögur, í næsta húsi við kaupfélag- ið. Það var ekki fyrr en Gunnsteinn hætti að vinna sem þau ákváðu að byggja sér sitt eigið hús, nokkur hundruð metra frá kaupfélaginu. „Sannleikurinn er nú sá að þegar við fluttum hér inn þá fyrst vorum við komin heim,“ segir Gunnsteinn. „Já, það segi ég með þér. Mér fannst ég aldrei eiga heima hér fyrr en við fluttum í þetta hús. Ég veit ekki af hverju, kannski af því að það var töluvert ónæði í kaupfélagshús- inu. Það var alltaf verið að fram- kvæma eitthvað og oftar en ekki fullt af mönnum í gistingu og þá var krökkunum hent úr herbergjunum sínum,“ segir Maddý. „En nú er allt fólkið farið og það blasir við að fólkinu mun halda áfram að fækka. Það er ekkert að gerast hérna lengur,“ segir Gunn- steinn. Sögurnar við borðið Bæinn sinn nefndu þau Maddý og Gunnsteinn Bergistanga og dregur hann nafn sitt af stuðlabergsklett- unum sem liggja við sjávarmálið framan við húsið. Í víkinni við hlið hússins er grasflöt með einu glæsi- legasta útsýni landsins þar sem ófá- ir ferðamenn hafa legið á fögrum sumarnóttum. Flötin fékk ekki sitt eigið örnefni fyrr enn í fyrra en þá var hún skýrð Þjófaflöt. Sagan á bak við nafngiftina tengist þýsku pari sem ferðaðist hnuplandi um Strand- ir í fyrrasumar og rann sú saga ljúf- lega niður með kaffinu og ástar- pungunum líkt og allar sögurnar við eldhúsborðið á Bergistanga. Maddý og Elín Agla nágranni hennar spjalla og horfa út fjörðinn.Horft heim að Bergistanga. Maddý og Gunnsteinn segja ófáa hafa talið þau vera hálfklikkuð þegar þau ákváðu að byggja sér heimili í sveitinni sinni, sem er sú fámennasta á landinu.

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.