Fréttatíminn - 07.04.2017, Blaðsíða 28
Alda Lóa Leifsdóttir
aldaloa@frettatiminn.is
Ove nafnið var svona til heimabrúks og ég nota það á Feisbúkk af því að ég neyddist til þess að vera þar út af félagsskap
sem er með lokaða grúppu þar inni.
Við skulum bara segja að ég sé dá-
lítið þver og taka fram að það sé að
eigin áliti svo að ég lendi ekki nein-
um þrætum heima fyrir,“ segir Árni
og er hugsað heim til Hallgerðar. „Ég
er dálítið nákvæmur, áréttar hann.
En það er ástæða fyrir því af hverju
ég hjóla á tuttugu og tveggja ára
gömlu hjóli í vinnuna á hverjum degi
og hef ekki skipt út bílnum í sautján
ár, Gola var 25 ára gömul. Ég sé ekki
ástæðu fyrir því að fá mér nýja hluti
þegar þetta virkar.“ Tekið skal fram
að Árni á sautján ára gamla Toyotu
Avensis en ekki gamlan Saab einsog
Ove í bókinni.
Bókaklúbburinn í Golu
Árni og Hallgerður stofnuðu tveggja
manna bókaklúbb á skemmtibátn-
um Golu RE 945 sem þau áttu til
margra ára en seldu fyrir stuttu.
Fyrsta bók bókaklúbbsins var Bör
Börsson en hana greip Árni með
sér sumarið 2010 þegar þau voru að
leggja af stað í siglingu um Breiða-
fjörð og hann sá fram á það yrði
leiðindaveður. Árni hugsaði með sér
að hann skyldi skemmta Hallgerði
með húslestri og þannig var upp-
hafið af bókaklúbbnum þeirra. „En
síðan hef ég lesið fyrir Langbrókina
á hverju einasta kvöldi,“ segir Árni
sem kallar konu sína ýmist Hallgerði
eða Langbrók. Hann les fyrir hana í
hálftíma á hverju kvöldi þegar þau
eru háttuð upp í rúm. Í framhaldi
Maður sem heitir ekki Ove
Ove heitir ekki Ove
heldur Árni Pálsson
og er í fullu starfi sem
rafvirkjameistari hjá
Eim skip. En Hallgerði
Pétursdóttur, konu
hans, fannst nafnið
svo upplagt og dæmi
gert fyrir eigin mann
inn eftir að þau lásu
saman bókina „Maður
sem heitir Ove“. Hall
gerður sá í manni
sínum lifandi sam
nefnara með skáld
sagna persónunni.
En Árni þykir vera
þrjóskur og vana
fastur eins og karlinn
í bókinni „Maður sem
heitir Ove“.
28 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017
20% afsláttur
af öllum vörum
til 17. júní
Túnika
kr. 3000
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Lok ns
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Nýjar
vörur
MIKIÐ ÚRVAL
AF SKARTI
SKOKKUR
KR 7.900
KJÓLL
KR 9.900
KJÓLL
KR 9.900
SKÓR
KR 9.900
TASKA
KR 5.900
20% afslá tur
af öllum vörum
til 17. jú í
Túnika
kr. 3000
Bláu húsi axafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksins
o r ftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum upp nýjar vörur daglega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksi s
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
kr. 5500.
Tökum up n r vörur da lega
Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16
Frábær verð, smart vörur,
góð þjónusta
Loksi
komnar aftur
*leggings háar í
mittinu
r. 5500.
Tökum u p nýj r vörur daglega
280cm
98cm
Eigin
hönnun og
framleiðsla
af lestrinum verða oft til samræður
og efnið er greint út og suður. Sér-
staklega ef þau eru að lesa bækur
um heimspeki.
Ove og Langbrók
Það er ekki hægt að segja annað en
Ove og Langbrók lifi skemmtilegu
lífi samlyndra hjóna. Þau voru bæði
fráskilin þegar þau kynntust fyrir
tólf árum en giftu sig eftir tveggja
ára kynni. Samanlagt eiga þau sex
börn og sautján barnabörn. „Hún
er frá Vestmannaeyjum og ég frá
Raufarhöfn,“ segir Árni sem átti fyr-
ir skemmtibátinn Golu. Árni bauð
Hallgerði í siglingu á Golu og hún
spurði hvernig hún ætti að klæða sig
fyrir ferðina. „Bara einsog þú værir
að fara í bíó, en hún trúði mér ekki
og mætti eins og hún væri að fara í
línuróður,“ segir Árni. En Langbrók-
in féll alveg fyrir bátamennskunni.
Gistu í höfninni í 101
Saman hafa þau síðan siglt á Golu
mörg sumur. Dvalið í Vestmanna-
eyjum eitthvað flest sumur. „Geymd-
um bátinn í Eyjum eitt vorið í rúman
mánuð og fórum á milli með Herj-
ólfi um helgar. Tókum barnabörn-
in með þangað eina helgi. Siglt um
Strandir, Jökulfirði, Breiðafjarðar-
eyjar og hringinn í kringum landið.
Þegar við sigldum hringinn reyndi
oft verulega á Hallgerði, fengum oft
leiðindaveður, en hún stóð sig eins
og hetja. Í Langanesröstinni slasað-
ist hún, þannig að höndin á henni
var kolsvört af mari, frá handarbaki
upp fyrir olnboga. Við fluttum í bát-
inn að vori og bjuggum þar meir og
minna til haustsins. Við sváfum um
helgar í bátnum og stundum líka
í miðri viku og þá keyrðum við til
vinnu og gistum í bátnum. En um
leið og sumarfríið byrjaði lögðum
við af stað út á haf. Stundum sigld-
um við bara til Reykjavíkur ef veðrið
leyfði ekki lengri siglingar. Við vor-
um með pláss í Suðurbugtunni við
Ægisgarð og dvöldum yfir helgina
í 101 Reykjavík. Þá leið okkur eins
og við værum túristar í Reykjavík.
Við vorum oft sammála um að þetta
væri bestu helgarnar í Reykjavík,
morandi mannlíf og menning.“
Allt á sinn tíma og það er dýrt að
reka bát. 2013 fórum við að tala um
að færi að styttast í útgerðinni hjá
okkur, kannski tvö ár í viðbót. Eftir
hrun þá er erfitt að selja skemmti-
báta á Íslandi. Það var eins og að
selja jólatré í janúar. En þau vorum
heppin að það kom Færeyingur og
keypti Golu fyrir tveimur árum, án
þess að við værum farin að vinna
neitt í því að selja. „Við finnum okk-
ur alltaf eitthvað annað að gera,“
segir Árni en tekur fram að hvorki
hestamennska né golfíþróttir heilli
þau.
Hefur hjólað í 22 ár
Árni hefur hjólað í 22 ár frá Nausta-
bryggju, þar sem hann býr, í
vinnuna við Sundahöfn. Hann
býr við fína aðstöðu í vinnunni og
tekur morgunsturtuna þar. „Við
erum nokkrir hérna sem hjólum í
vinnuna. Árni lítur út fyrir að vera
ekki deginum eldri 55 ára en segist
sjálfur vera að nálgast sjötugt. Góð-
ir lifnaðarhættir spilla eflaust ekki
fyrir.
Á hverjum morgni, alla 365 daga
ársins, eldar Árni hafragraut og
lætur hann standa á meðan hann
rakar sig. Birna Pálsdóttir, mikil vin-
kona hans, kenndi Árna að búa til
hafragraut. Hún kenndi honum þá
aðferð að láta suðuna koma upp og
láta síðan grautinn „ryðja“ sig. En
Árna finnst það tilkomumeira að láta
grautinn „ryðja“ en aðferðin við það
er sú að setja lokið á pottinn og setja
hann til hliðar og láta grautinn verða
Ove og Langbrók gerðu út skemmtibát í mörg ár. Stundum sigldu þau bara frá
Naustabryggju og gistu í höfninni í Reykjavík um helgar.