Fréttatíminn - 07.04.2017, Side 30
30 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 2017
Teg:1380.
750kg. mál: 201x102cm
verð: 112.823 kr. án vsk
Teg: 1374.
750kg. mál: 251x131cm
verð: 201.613 kr. án vsk.
Opnanlegur fram og afturgafl.
Verktakar-iðnaðarmenn og dugnaðarfólk kerrurnar frá Humbaur eru tilbúnar
til afgreiðslu. Áratuga reynsla af þessum sterku álkerrum á Íslandi.
Teg:1380.
2500kg. mál: 303x151cm
verð: 399.194 kr. án vsk.
Með skráningu.
opnanlegur fram og afturgafl.
Teg:1384.
750kg. mál: 251x131cm
verð: 229.839 kr. án vsk
Sturtanleg.
Teg:1376.
750kg. mál: 205x131cm
verð: 169.355 kr. án vsk.
Opnanlegur fram og afturgafl.
Topplausnir. Smiðjuveg 40 gul gata .200 Kópavogur. sími : 5177718. www.topplausnir.is
tilbúinn á meðan Árni rakar sig.
Hafragrautur og súkkulaðibúð-
ingur
„Við Hallgerður tókum barnabörnin
okkar með í siglingarnar. Ég klæddi
þau bara í vesti ef að þau voru úti á
dekki, eða uppi á bryggju. Þannig
voru þau alveg örugg, ég myndi
heyra skvampið ef þau færu fram af.
Á siglingu fengu þau ekki að vera ein
úti á dekki. Krakkarnir sigldu með
okkur eða voru keyrðir til okkar
þar sem við lágum. Eins og til dæm-
is vorið í Vestmannaeyjum. En við
vorum með nóg pláss í bátnum fyrir
barnabörnin.“
Á hverjum morgni var borðaður
hafragrautur með slátri og á kvöldin
borðaður súkkulaði Royalbúðingur.
Eftir búðinginn las ég fyrir þau um
selinn Snorra, áður en þau fóru að
sofa. Þetta var heilög regla og ein-
hverntímann var boðið upp á kara-
mellubúðing en það gerði víst ekki
lukku. Eins voru börnin alltaf vit-
laus í slátrið um borð í bátnum en
þegar komið var í land litu þau ekki
við því.
„Hallgerður eldaði grautinn um
borð einn daginn fyrir Berglindi og
Heiðrúnu. En eftir grautarskálina
spurði Hallgerður Berlindi hvern-
ig grauturinn bragðaðist. Hann er
ágætur, svaraði Berlind, en hann
er betri hjá afa. Í framhaldinu vildi
Berglind fá uppskriftina uppskrifaða
og fara með heim til mömmu sinnar
sem kunni ekki að elda hafragraut.
En hún vildi fá uppskriftina hans
afa. „Ég skrifaði niður og hún tók
uppskriftina með sér heim, en hún
kunni sjálf ekki að lesa. Seinna þegar
ég spurði hana út í það hvort að hún
hafi fengið góðan graut hjá mömmu
sinni, gaf hún ekki mikið út á það,“
segir Árni hafragrautarmeistari.
En á ferðalögum þeirra reyndu
þau að vera að einhverju leyti sjálf-
bær með mat. Höfðu byssu til að
skjóta fugl, stöng til að veiða fisk.
„Við með slöngubát, til að geta far-
ið í land í eyðifjörðum. Ef þar voru
ár, eða lækjarsprænur lögðum við
gjarnan silunganet, það brást sjald-
an að fengist silungur í máltíð. Ým-
ist var steikt, soðið, eða grillað. Á
Ströndum og víðar, vex rabbarbari
enn við eyðibýli. Þá tókum við gjarn-
an nokkra stilka og gerðum graut.
Þetta var yndislegt líf,“ segir Árni
Verkaskipting
„Við erum tveir gamlingjar hérna
heima. Engin börn, þar sem alltaf
þarf að vera matur og eldum aðal-
lega um helgar. Ég elda og Hallgerð-
ur sér um allt annað,“ segir Árni og
finnst það heppileg verkaskipting.
„Ég elda ríflega um helgar og við
borðum afganga fram eftir viku. Í
hádeginu borðum við í mötuneyt-
um.“ Árni segist hafa vanist því að
elda í bátnum. „Þar var svo þröngt
og það lá fyrir mér að elda í þrengsl-
um.“ Þar þá koma nákvæmni og eig-
inleikar Ove sér til góða. „En í bátn-
um verður maður alltaf að ganga
strax frá. Ef maður notar sleif þá
þvær maður hana og gengur frá
henni um leið aftur þegar maður er
ekki að nota hana.“
Berglind, til vinstri, er barnabarn Hallgerðar og Heiðrún og Óli Júlíus eru barna-
börn hans Árna, sem hann kallar Golu og Sverri, en þau myndu aldri svara öðru.
Uppskriftin að hafragrautnum
„Grjón og vatn í pott. Nokkurn
veginn jafn mikið. Grauturinn
verður mjög, mjög þykkur við
þessi hlutföll. Ég bæti við smá
hörfræjum fyrir meltinguna,
kanel og salti.
Þegar suðan kemur upp og
þá slekk ég undir, set pott-
inn til hliðar, set
hlemminn á og
fer að raka mig.
Eftir raksturinn er grautur-
inn orðinn þurr eins og þykkt
deig. Algjör hraukur þegar ég
set hann á disk. Þegar maður
borðar graut 365 daga á ári þá
þarf maður tilbreytingu og um
helgar set ég epli eða banana
og set það um leið og læt
það sjóða með.
Það er ekki hægt að segja
annað en Ove og Langbrók
lifi skemmtilegu lífi sam-
lyndra hjóna. Þau voru bæði
fráskilin þegar þau kynntust
fyrir tólf árum en giftu sig
eftir tveggja ára kynni. Sam-
anlagt eiga þau sex börn og
sautján barnabörn.
Berglind fékk uppskrift afa síns að hafragrautnum til þess að taka með sér heim.
En Berglindi fannst hafragrautarleiknin ekki vera upp á marga fiska heima fyrir.