Fréttablaðið - 27.01.2018, Page 30
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429
Fitjar Freysnes
Hvolsvöllur
Geysir
Minni Borg
Hveragerði
Þorlákshöfn
Búðardalur
Ísafjörður
Sauðárkrókur
Dalvík
Laugar
Kópasker
Raufarhöfn
Vopnafjörður
Húsavík
Ásbyrgi
Ólafsvík
Seljalandsfoss
Þingvellir
Reykholt
Flúðir
Vegamót
Akranes
Borgarnes (2)
Staðarskáli
Blönduós
Varmahlíð
Akureyri (2)
Mývatn
Skjöldólfsstaðir
Egilsstaðir
Stöðvarfjörður
Djúpivogur
Reykjavík &
nágrenni (> 4)
Selfoss
Hellisheiði
Vík
Kirkjubæjar-
klaustur
Jökulsárlón
Nesjahverfi
Skorradalur (3)
Húsafell
Reykjavík &
nágrenni (6)
Virkar hraðhleðslur
Á áætlun 2018
Hleðslur
Hlaða ON opnuð á Hvolsvelli.
Hlaða er orð sem hefur fengið nýja merkingu. Þær eru orðnar 25 hlöðurnar sem
Orka náttúrunnar hefur reist
meðfram vegum landsins til að
þjóna rafbílaeigendum og ON er
ótvíræður leiðtogi á því sviði. Það
eru tímamót fram undan í rekstri
hlaðanna því um mánaðamótin
mun sala á þjónustu hlaðanna
hefjast.
Bjarni Már Júlíusson, fram-
kvæmdastjóri ON, hefur sjálfur
ekið um á rafbíl í þrjú ár og þekkir
því á eigin skinni hvað skiptir
máli í rekstri rafbíls. Það var um
áramótin að ON tilkynnti að sala á
þjónustunni væri að hefjast. Bjarni
Már segir að samtalið sem fyrir-
tækið hefur átt við rafbílaeigendur
frá áramótum hafi þegar breytt
áformum fyrirtækisins.
„Við erum öll að læra á nýja tíma
og nýja tækni,“ segir Bjarni Már og
vísar þar til rafbílavæðingarinnar
sem verður sífellt örari hér á landi.
„Þegar við settum upp fyrstu
hraðhleðsluna hérna við Bæjar-
hálsinn gat hún þjónað 90 bílum.
Nú eru rafbílar og tengiltvinnbílar
um fimm þúsund og við hjá Orku
náttúrunnar erum himinlifandi
yfir því að sífellt fleiri velji þennan
umhverfisvæna og hagkvæma kost
til að koma sér á milli staða. Þetta
setur líka aukna ábyrgð á okkur
sem höfum einsett okkur að vera í
fararbroddi í uppbyggingu innviða
fyrir þennan vaxandi hóp,“ segir
Bjarni Már.
Klárum hringinn fyrir páska
Frá því fyrstu hlöðurnar með
hraðhleðslum voru settar upp, árið
2014, hefur margt eflst í þjónust-
unni. Eftir því sem fleiri framleið-
endur hafa boðið frambærilega
rafbíla hefur tegundum tengja í
hlöðunum fjölgað. Miðlun upp-
lýsinga um viðhald eða bilanir í
hlöðunum hefur stóreflst með fjar-
skiptatengingu þeirra og útgáfu á
smáforritinu ON Hleðsla. Síðast en
ekki síst hefur hlöðunum sjálfum
fjölgað stöðugt.
„Við lofuðum því að loka hringn-
um,“ segir Bjarni Már. „Að opna
landið fyrir rafbílaeigendum þann-
ig að fólk á algengum bíltegundum
sem ganga eingöngu fyrir rafmagni
geti ferðast milli landshluta án
þess að traustur aðgangur að orku
sé þeim hindrun. Þetta klárum við
fyrir páska,“ segir Bjarni Már stað-
fastur. Það vakti einmitt athygli
að undir lok síðasta árs hlóðust
hlöðurnar upp meðfram hringveg-
inum. „Samhliða erum við að upp-
færa appið þannig að það þjóni
okkur rafbílaeigendum enn betur,
treystum rekstraröryggið með vali
á búnaði, fjarstýringum og aukinni
reynslu af því að reka hlöðurnar og
síðast en ekki síst aukum við þekk-
ingu okkar á væntingum viðskipta-
vinanna með því að hlusta á þá.“
Sambland af tíma
og kílóvöttum
Síðustu vikur og mánuði hefur ON
verið að þróa og prófa sölukerfi
fyrir þjónustuna í hlöðunum. Frá
miðjum þessum mánuði hafa raf-
bílaeigendur getað fengið senda
heim ON lykla sem ganga að hrað-
hleðslunum og svo virkjað þá með
því að skrá greiðslukort á vef ON,
on.is. Talsverð umræða hefur orðið
meðal rafbílaeigenda og reyndar
fleiri sem telja sig þekkja til um
verðið og sölufyrirkomulagið.
„Við höfum fylgst með þessum
umræðum, tekið þátt í þeim og
tekið mark á þeim,“ segir Bjarni
Már og boðar hér breytingar á
upphaflegum áformum ON. „Við
boðuðum eingöngu tímagjald.
Það hefur þann kost að hvetja til
sem bestrar nýtingar á hraðhleðsl-
unum. Sumum þótti það ekki
sanngjarnt gagnvart eigendum bíla
sem taka hægar inn á sig straum.
Þess vegna höfum við ákveðið að
fara blandaða leið,“ segir fram-
kvæmdastjórinn. „Við lækkum
gjaldið á mínútuna og seljum svo
hverja kílóvattstund sem hlaðin
er. Fyrir þá sem hlaða hraðast er
verðið svipað og við gáfum út um
Kort yfir hlöður Orku náttúrunnar
Við lofuðum að
opna landið fyrir
rafbílaeigendum þannig
að fólk á algengum bíl-
tegundum sem ganga
eingöngu fyrir rafmagni
geti ferðast milli lands-
hluta.
Bjarni Már Júlíusson, framkvæmda-
stjóri ON
áramótin, í kringum 39 krónur
mínútan, en við tókum tillit til
ábendinga þeirra sem fannst á sig
hallað.“
Rafmagnið er framtíðin
Það eru geysilega spennandi tímar
fram undan að mati Bjarna Más.
Hann bendir á þau tækifæri sem
rafbílarnir bjóði Íslendingum sem
framleiði meira rafmagn á hvern
landsmann en nokkur önnur þjóð
og það allt úr endurnýjanlegum
orkugjöfum, jarðhita og vatnsafli.
„Rafmagnið og rafvæðing lands-
ins færði okkur inn í nútímann
á síðustu öld. Rafvæðing sam-
gangnanna getur fært okkur inn í
framtíðina!“
2 KYNNINGARBLAÐ 2 7 . JA N ÚA R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U RORKA ÍSLANdS
2
7
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
2
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
D
8
-5
A
D
0
1
E
D
8
-5
9
9
4
1
E
D
8
-5
8
5
8
1
E
D
8
-5
7
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
0
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K