Fréttablaðið - 27.01.2018, Side 31
„Við teljum ekki að vetnið leysi öll heimsins vandamál en vetni er mikilvægt innlegg og ljóst er að ef það á að leysa jarðefnaeldsneyti að fullu af hólmi þarf fjölbreyttar lausnir. Vetni er einn möguleiki
og við erum sannfærð um að það verði hluti af framtíðarlausninni,“ segir Þórður Guðjónsson, framkvæmdastjóri sölusviðs Skeljungs. MYND/ANTON BRINK
Um er að ræða
hreina orku allt frá
framleiðslustigi og til
endanlegrar nýtingar þar
sem eina affallið verður
H2O, eða hreint vatn.
Þórður Guðjónsson
Skeljungur stefnir á opnun þriggja vetnisstöðva fyrir bif-reiðaeigendur í ár og á næsta
ári en verkefnið er sprottið úr
mjög umfangsmiklu Evrópusam-
bandsverkefni. Vetnisstöðvarnar
verða á stöðvum Orkunnar og
verður sú fyrsta opnuð við Vestur-
landsveg í vor. Önnur stöðin
verður opnuð að Fitjum í Reykja-
nesbæ strax í kjölfarið og sú þriðja
í ársbyrjun 2019 á höfuðborgar-
svæðinu, að öllum líkindum
við Miklubraut, að sögn Þórðar
Guðjónssonar, framkvæmdastjóra
sölusviðs Skeljungs.
„Undanfarin ár hefur sífellt
meiri áhersla verið lögð á endur-
nýjanlega orku innan Evrópu,
t.d. vindorku og sólarorku. Þessir
orkugjafar eiga það margir sam-
merkt að framleiðslan á orkunni
er ekki endilega í takt við þörfina
og því myndast mikil þörf fyrir
geymslu á rafmagni. Fundið hefur
verið út að hagkvæm leið til að
geyma rafmagnið sé að umbreyta
því í vetni. Í stað þess að breyta
vetninu aftur í rafmagn er hag-
kvæmara að nýta vetnið sjálft sem
orkugjafa.“
Samvinna margra
Með því að nýta vetnið fyrir sam-
göngur er kominn hreinn orkugjafi
að sögn Þórðar sem dregur úr bæði
kolefnis- og hávaðamengun bif-
reiða og annarra samgöngutækja.
„Um er að ræða hreina orku allt
frá framleiðslustigi og til endan-
legrar nýtingar þar sem eina affallið
verður H2O, eða hreint vatn. Með
þessu næst jafnframt betri nýting
á endurnýjanlegu orkugjöfunum
en ella.“
Í hnotskurn má því segja að
endurnýjanleg orka sem ella hefði
farið til spillis sé nýtt til umhverfis-
vænna samgangna, segir Þórður.
„Evrópusambandsverkefnið
snýst síðan um uppbyggingu nets
vetnisstöðva í Evrópu og aukningu
í framleiðslu á vetnisknúnum raf-
bílum. Í dag er mögulegt að aka
vetnisknúnum rafbíl frá Bergen í
Noregi og suður til Ítalíu.“
Utan Evrópusambandsins eru
bílaframleiðendur þátttakendur í
verkefninu, t.d. Toyota, Hyundai,
Honda og Daimler. „Fjöldafram-
leiðsla á vetnisknúnum rafbílum
hófst fyrir nokkru. Hér á Íslandi
taka Hyundai og Toyota þátt í
þessu verkefni með okkur og eru
bifreiðar frá Hyundai nú þegar
komnar til landsins og það styttist
óðum í Toyoturnar.“
Margir stórir aðilar eru því að
sögn Þórðar að vinna á virkan hátt
að framgangi vetnis í samgöngum.
„Utan fyrrnefndra aðila má nefna
t.d. Shell og að lokum verður að
minnast á þátt Íslenskrar NýOrku
sem kom verkefninu af stað, heldur
utan um verkefnið og hefur veitt
ómetanlega ráðgjöf í ferlinu.“
Drægnin er kostur
Með auknu framboði vetnisknú-
inna faratækja og bættum inn-
viðum telja stjórnendur Skeljungs
að opnast gæti fyrir áhugaverðan
markað og stefnt er á að vera
leiðandi á honum, segir Þórður.
„Stór kostur við vetnisknúna raf-
bíla er drægni þeirra. Hún er nú
um 500 km og mun ná yfir 600 km
árið 2019. Þá er átt við fólksbíla
en Nikola Motor Company er til
dæmis að hefja framleiðslu á flutn-
ingabílum sem hafa drægni allt að
2.000 km. Vetnistæknin hefur þann
kost að hún tekur ekki sama pláss
og rafhlaðan í klassísku rafbílunum
og það verður tilfinnanlegra því
lengri sem vegalengdirnar verða.“
Möguleikar opnast
Með vetninu opnast líka mögu-
leikinn á að nota endurnýjanlega
orku fyrir nýjan hóp viðskipta-
vina sem þurfa mikla drægni, t.d.
rútur, flutningabíla og skip. Þá er
vetnistæknin einnig lausn á þeirri
innviðaþörf sem rafbílarnir kalla
á, um öflugri heimtaugar. „Með
fjölgun rafbíla þarf að byggja fjölda
hleðslustöðva víða á leiðinni um
landið með tilheyrandi kostnaði
og hugsanlega viðbótar raflínu-
lögnum. Vetnisstöðvarnar virka
í raun eins og bensínstöðvar og
gera þannig ekki sömu innviða-
kröfur. Þar sem áfyllingartími
vetnisknúinna rafbíla er áþekkur
áfyllingartíma bensín- og dísilbíla
getur vetnisstöð annað sama fjölda
og hefðbundin bensínstöð.“
Blanda orkugjafa
Þórður segir að Skeljungur hafi
lengi talað um það að í framtíðinni
muni ekki einn endurnýjanlegur
orkugjafi taka yfir allan markaðinn,
heldur verði þar um blöndu orku-
gjafa að ræða. „Vetnisknúnu raf-
bílarnir hafa sína kosti, sem felast í
drægni, stuttum áfyllingartíma og
því að ekki er þörf fyrir sömu inn-
viðina. Við sjáum t.d. fyrir okkur
tvinnbíl, sem gengur fyrir rafmagni
og vetni, sem afar áhugaverðan
fjölskyldubíl í framtíðinni.“
Hann segir of mikilli orku eytt í
að finna þennan eina sigurvegara
orkugjafanna. „Við teljum ekki að
vetnið leysi öll heimsins vandamál
en vetni er mikilvægt innlegg og
ljóst er að ef það á að leysa jarð-
efnaeldsneyti að fullu af hólmi þá
þarf fjölbreyttar lausnir. Vetni er
einn möguleiki og við erum sann-
færð um að það verði hluti af fram-
tíðarlausninni.“
Vetni er hluti af
framtíðarlausninni
Skeljungur ætlar að opna þrjár vetnisstöðvar í ár og á því næsta undir merkjum Orkunnar. Með
auknu framboði vetnisknúinna farartækja og bættum innviðum telja stjórnendur Skeljungs að
opnast gæti fyrir áhugaverðan markað sem fyrirtækið vill vera leiðandi á.
KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 2 7 . ja n úa r 2 0 1 8 ORKA íSLANDS
2
7
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
0
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
D
8
-4
C
0
0
1
E
D
8
-4
A
C
4
1
E
D
8
-4
9
8
8
1
E
D
8
-4
8
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
0
s
_
2
6
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K