Fréttablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 34
Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is Slaufurnar frá SlaufHann hafa vakið athygli undan-farið ár en um er að ræða handsaumaðar slaufur byggðar á íslenskri hönnun. Slaufurnar eru úr tweed-efni, bómull eða silki og ber hver þeirra karlmannsnafn sem tengist fjölskyldu hönnuðarins, Elísu Hallgrímsdóttur. „Unnusti minn, Dagur Jónsson, hefur alltaf verið mikill slaufumaður og er án efa mest krefjandi viðskiptavinur minn. Ég byrjaði á sínum tíma að föndra slaufur fyrir hann og vinir hans urðu mjög hrifnir. Dagur hvatti mig mikið til þess að keyra á þetta verkefni og koma slaufunum í sölu. Á þessum tíma voru aðilar á markaðnum að selja herraslaufur sem okkur þótti mjög flottar og því vorum við ekkert að leggja mikið upp úr því að stækka þetta áhugamál.“ Þegar leið nær jólum 2015 fóru hlutirnir þó aðeins að breytast. „Þá ákvað ég að gefa fjölskyldumeð- limum slaufur með jólapakkanum auk þess sem vinir og kunningjar sóttu í slaufurnar fyrir jólin. Á þessum tímapunkti áttaði ég mig á því að mér þætti þetta bæði mjög skemmtilegt og gefandi verkefni.“ Verkaskiptingin milli þeirra er skýr, Elísa sér um hönnun og Dagur sér um allt sem tengist markaðs- og sölumálum. Heita karlkynsnöfnum Hún segir eftirspurnina hafa aukist mikið undanfarið ár. „Við fórum líka af stað með minni slaufur fyrir krakka og unglinga ásamt því að prófa okkur áfram með ungbarna- slaufur sem hafa vakið mikla lukku, sérstaklega í kringum hátíðirnar. Um mitt ár 2017 hóf ég að þróa feðgasett en persónulega finnst mér geggjað að sjá feðga með slaufur í stíl. Í dag er feðga- og bræðra- settið vinsælustu vörur okkar.“ Við þá þróunarvinnu fannst henni þurfa að hanna eitthvað fyrir litlu dömurnar líka. „Ég ákvað því að útbúa spöng og teygju í hárið með sömu slaufu og faðirinn er með. Eftirspurnin var til staðar þannig að ég ákvað að slá til og er ég virkilega ánægð með útkomuna.“ Snemma í ferlinu ákvað Elísa að gefa hverri slaufu nafn eftir karl- manni í fjölskyldunni, nöfn á borð við Brynjólfur, Alexander, Hall- grímur og Franz. „Það var lítið mál í upphafi en eftir að úrvalið jókst hefur verið vægast sagt erfitt að nefna þær. Bráðum verð ég eflaust uppiskroppa með nöfn en ætlunin er að halda áfram með vöruþróun og koma með nýjar og skemmti- legar hugmyndir fyrir nýjar slaufur. Nýjar vörur fram undan Fram undan er enn frekari vöru- þróun og betra úrval svo allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Unnustinn er krefjandi viðskiptavinur Slaufurnar frá SlaufHann bera nöfn karlmanna úr fjölskyldu hönnuðar þeirra, Elísu Hallgrímsdótt- ur. Upphaflega hannaði hún slaufur fyrir unnusta sinn en undanfarið ár hefur vörulínan stækkað. Parið á bak við SlaufHann er Elísa Hallgrímsdóttir, sem sér um hönnunina, og unnusti hennar Dagur Jónsson, sem sér um markaðs- og sölumál. Slaufurnar eru úr ýmsum efnum og í mörgum skemmtilegum litum. MYNDir/EYÞÓr Slaufurnar fást víða, meðal annars á Facebook og á söluvef Já.is. Fallegar og litríkar slaufur gera mikið fyrir heildarútlitið og henta öllum aldurshópum. „Okkur langar mikið að koma með vörulínu fyrir ungar stelpur sem allra fyrst, þar sem sú hugmynd hefur fengið frábærar undirtektir. Svo eru fermingar á næsta leiti og þar verðum við með skemmtileg tilboð. Markmiðið er einnig að taka þátt í Mottumars og vonandi fleiri viðburðum á árinu. Annars verður virkilega spennandi að sjá hvað árið mun bjóða upp á og hvernig verkefni við munum takast á við á árinu. Nú þegar er byrjað að panta fyrir fermingarnar og þar er mikið af sérpöntunum í gangi. Slaufurnar eru fáanlegar á Fa- cebook (SlaufHann), hjá herrafata- versluninni Karlmönnum á Lauga- vegi, Bíumbíum barnafataverslun, Pride of Iceland á Laugavegi og á söluvef Já.is. Hvað gefur NeoStrata þér? • Fyllingu • Raka og næringu • Jafnari húðlit • Dregur úr fínum línum afsláttur 20% Ráðgjafi í Lyfju Smáratorgi fimmtudaginn 1. febrúar kl. 14-16 1. febrúar 6 KYNNiNGArBLAÐ FÓLK 1 . F E B r úA r 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R 0 1 -0 2 -2 0 1 8 0 5 :0 0 F B 0 8 8 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E E 0 -B 3 8 4 1 E E 0 -B 2 4 8 1 E E 0 -B 1 0 C 1 E E 0 -A F D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 8 8 s _ 3 1 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.