Fréttablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 70
Vetrarhátíð verður sett í kvöld klukkan 19.45 með ljósainnsetningu sem verður varpað á olíutankana við Mars-
hallhúsið. Innsetningin kallast
Örævi og er eftir Valdimar Jóhanns-
son, Ernu Ómarsdóttur, Pierre Alain
Giraud og Íslenska dansflokkinn.
Auk þeirra koma koma fram í verk-
inu þau Aðalheiður Halldórsdóttir,
Hannes Þór Egilsson, Þyrí Huld
Árnadóttir, Úlfur Óðinn Valdimars-
son og Kristín Geirsdóttir en þegar
náðist í þau Valdimar og Ernu voru
þau að leggja lokahönd á verkið.
Dansa á mörkunum
Erna segir að Örævi sé hugsað í
beinu framhaldi af því sem þau
voru að fást við með dansflokknum
á Norður og niður hátíðinni fyrr í
vetur í sýningunni Myrkrið faðmar.
Erna segir að þar hafi þau verið að
fjalla um hinn berskjaldaða líkama
sem er með öllu óvarinn í myrkrinu
og maður veit aldrei á hverju er von
og er með öll skynfæri í viðbragðs-
stöðu. „En núna erum við ekki leng-
ur að skoða líkamann í myrkrinu
heldur í örsmáum einingum ef svo
má segja. Við fengum lánaða smá-
sjá sem er hægt að festa myndavél
á og erum búin að vera að mynda
munninn, slímhúðina og ýmis
svona smáatriði líkamans. Þarna
eru við að skoða fegurðina í öllum
þessum smáatriðum sem við tökum
ekki eftir dagsdaglega.“
„Við erum svona að skoða lands-
lagið í líkamanum,“ skýtur Valdimar
inn í. „Já, nákvæmlega,“ tekur Erna
undir. „Þetta er ákveðinn hluti af því
sem líkaminn hefur upp á að bjóða.
Sumar myndirnar dansa óneitan-
lega á mörkum fegurðar og ljótleika
og eru svona af þessu sem fær fólk
kannski til þess að segja oj, en samt
er þetta fallegt. Við erum bara ekki
vön því að sjá fegurðina í þessum
hluta líkamans.“
Hrukkur og hreyfingar
Valdimar bendir á að það sem er á
þessum myndum séu í raun hlutir
sem við sjáum á hverjum degi. „Við
erum bara ekki vön að sjá þetta
svona nálægt. Þannig að þetta er
orðið svona stórt þá finnst þér
þetta kannski ógeðslegt en samt
hefurðu þetta fyrir augunum á
hverjum degi og það er gaman að
skoða það með þessum hætti.“ Erna
tekur undir þetta og segir að þetta
séu líka hlutir af líkamanum sem
halda okkur gangandi og sjái til
þess að öll starfsemi sé með eðli-
legum hætti.
Erna segir að dansararnir Aðal-
heiður, Hannes og Þyrí úr dans-
flokknum hafi líka verið að vinna
þetta með þeim. „Þetta eru allt
mjög flinkir dansarar sem búa
yfir ótrúlegri færni eins og að geta
hreyft vöðva á skrítnum stöðum
í líkamanum en það er líka eitt-
hvað sem maður sér vanalega ekki
á danssýningum einfaldlega vegna
fjarlægðar áhorfenda. Þannig að
þau voru að dansa með t.d. herða-
blöðunum og það kemur mjög
skemmtilega út.
Mamma mín tekur líka að sér að
dansa með hrukkunum og Úlfur
Óðinn sonur okkar tók líka að sér
eitt hlutverk þannig að þetta er
mjög fjölbreytt.“
Tunguhaftssóló
Valdimar bendir á að með þessari
miklu nánd við líkamann sem fæst
með myndavélinni og svo færni
dansaranna við að dansa með
svona afmörkuðum svæðum náist
fram þetta landslag líkamans sem
þau hafi verið að falast eftir. „Þetta
er líka vegna þess að augun í okkur
virka dálítið eins og Photoshop-
forritið. Augað velur það sem við
sjáum með ómeðvituðum hætti en
með því að stækka þessi smáatriði
svona upp þá verða þau ekki lengur
umflúin.
Þegar ég kveikti á smásjánni þá
fór ég fyrst inn á klósett, þreif vel
á mér hendurnar og setti þær svo
undir smásjána og það var sko líf
og fjör. Það er greinilega ýmislegt
sem gerist undir smásjá. Þá fórum
við líka að hugsa hvernig væri hægt
að dansa undir smásjá því hreyfing-
arnar þurfa að vera alveg pínulitlar
en koma svo fram sem ógnarstórar
á myndunum.“
Erna segir að þau hafi til að
mynda skoðað tunguhaftið sér-
staklega og það hafi komið í ljós að
dansararnir voru með mjög ólíkt
tunguhaft. „Ein var með ekkert og
Aðalheiður var með flott og liðugt
tunguhaft sem hún nýtti til þess
að gera mjög flott tunguhaftssóló
þannig að þetta er búið að vera
alveg rosalega gaman hjá okkur.“
Ör og ævi
Myndunum er svo varpað á tank-
ana við Marshallhúsið og undir
þessu er leikin tónlist eftir Sigur
Rós. „Við vorum enn svo innblásin
af tónlistinni þeirra sem við vorum
að vinna með á milli jóla og nýárs,“
segir Valdimar. „Ég fékk tónlistina
þeirra til þess að leika mér að henni
og útfæra hana svona eftir því sem
hentaði að þessu sinni. Það virkaði
einhvern veginn þannig að þetta
hélt okkur við efnið. Tónlist Sigur
Rósar er líka þannig að hún fer á
einhvern hátt nálægt manni.
En annars held ég að næsta skref
hjá okkur hljóti að vera að búa til
dansverk fyrir örverur,“ segir Valdi-
mar og glottir. „Og bakteríur líka.
Það hefur enginn gert það. Það gæti
reyndar verið dálítið erfitt að hafa
stjórn á þeim en það er þá helst
Erna geti talað þær til og fengið
til þess að dansa.“ Erna brosir að
þessu og bendir á að nefnið Örævi
feli einmitt í sér ákveðinn orðaleik
að orðunum ör og ævi, að viðbættu
öræva-orðinu þá sé þetta nú eins
og Valdimar segir: „Farið að vísa til
ævinnar sem landslags.“
Hvernig er hægt að dansa undir smásjá?
Vetrarhátíð verður sett með viðhöfn í kvöld þegar opnunarverkinu Örævi, ljósainnsetningu af líkömum
sem eru myndaðir undir smásjá, verður varpað á tankana við Marshallhúsið undir tónum Sigur Rósar.
Erna Ómarsdóttir, Valdimar Jóhannsson og Pierre Alain Giraud hafa undanfarið unnið að opnunarverki Vetrarhátíðar. FréTTAblAðið/STEFán
Mynd úr ljósainnsetningunni Örævi.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
1 . f e b r ú a r 2 0 1 8 f I M M T U D a G U r38 M e n n I n G ∙ f r É T T a b L a ð I ð
menning
0
1
-0
2
-2
0
1
8
0
5
:0
0
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
E
0
-7
D
3
4
1
E
E
0
-7
B
F
8
1
E
E
0
-7
A
B
C
1
E
E
0
-7
9
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
8
8
s
_
3
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K