Fréttablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 72
365.is 1817MARGFALT SKEMMTILEGRI
Meistaramánuður
Febrúarmánuður er Meistaramánuður og af því tilefni taka Ísland í dag og Íslandsbanki
höndum saman. Takmarkið er að verða besta útgáfan af sjálfum sér, hvert sem
verkefnið er. Málið er að setja sér markmið og standa svo við stóru orðin. Fylgist með
Meistaramánuði í hverri viku í Íslandi í dag á Stöð 2 í febrúar.
Segja má að verkin á sýning-unni skiptist í tvö skaut, annars vegar virðingu fyrir lífshlaupi sérhverrar per-sónu, hins vegar áhyggjur af framtíðinni,“ segir Katrín
Matthíasdóttir listmálari um inntak
sýningarinnar Hið augljósa sem verð-
ur opnuð í Galleríi Fold við Rauðarár-
stíg klukkan 18 á morgun, föstudag.
Katrín er hugsjónakona og verk
hennar endurspegla það. „Auðvitað
geta áhorfendur túlkað verkin á sinn
hátt, þannig á það að vera,“ segir
hún. „Ég sá að verk eftir Leonardo
da Vinci seldist í lok síðasta árs á
46 milljarða króna, sem er auðvitað
klikkun. Verkið á að sýna bjargvætt
heimsins, sem í augum Da Vincis er
Jesú. Í mínum augum er það mann-
kynið sjálft því við þurfum öll að
leggja okkar af mörkum til að leysa
þau vandamál sem steðja að okkur.
Ég setti son minn í stellingar þar sem
hann er að blessa heiminn með ann-
arri hendi og í hinni heldur hann á
kúlu sem er jörðin.“
Katrín segir myndirnar raðast
upp í seríur. „Ég set minn bjargvætt
meðal annars fyrir framan blokk. Það
táknar að við erum orðin aðþrengd
en jörðin er okkar eina athvarf og við
megum ekki ganga of hratt á auðlind-
ir hennar því fleiri koma á eftir okkur.
Svo eru barnsaugu sem minna okkur
á að vinna að brýnum málum. Við
erum með lausnirnar og verðum að
setja fókus á þær.“
Synir Katrínar, þrír að tölu, koma
fyrir í mörgum verkum hennar.
Skyldu þeir hafa mikla þolinmæði
til að sitja fyrir? „Ég tek helling af
ljósmyndum af þeim en annar tví-
burinn minn, sem er sextán ára, gat
nú alveg setið kyrr í nokkurn tíma
um daginn!“
Svo eru níu vatnslitaverk. „Ég
strekki pappírinn á blindramma og
þar mála ég börn sem ég finn myndir
af í mannheimum, netheimum, oft
börn sem hafa séð hluti sem þau eiga
ekki að hafa upplifað, og bý til nýtt
umhverfi, betra líf og nýja von,“ lýsir
listakonan.
Þess utan er hún með fjögur verk
sem túlka lífsskeiðin fjögur, bernsku,
ungdóm, fullorðinsár og elli. „Bara
til að undirstrika að öll göngum við í
gegnum það sama, ef við fáum að lifa,
berum sömu tilfinningar og vænting-
ar,“ segir Katrín. „Því þurfum við að
jafna möguleikana milli fólks.“
Býr til nýtt umhverfi, betra líf og nýja von
Sala málverks eftir Leonardo da Vinci á 46 milljarða varð myndlistarkonunni Katrínu Matthíasdóttur
innblástur að seríu um bjargvætt heimsins. Hún opnar sýninguna Hið augljósa í Galleríi Fold á morgun.
Katrín við eitt verkið í bjargvættarseríunni þar sem sonur hennar situr fyrir. Fréttablaðið/SteFán
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
OG Set Minn bjarG-
Vætt MeðaL annarS
Fyrir FraMan bLOKK. Það
táKnar að Við eruM Orðin
aðÞrenGd.
1 . f e b r ú a r 2 0 1 8 f I M M T U D a G U r40 M e n n I n G ∙ f r É T T a b L a ð I ð
0
1
-0
2
-2
0
1
8
0
5
:0
0
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
E
0
-6
9
7
4
1
E
E
0
-6
8
3
8
1
E
E
0
-6
6
F
C
1
E
E
0
-6
5
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
8
8
s
_
3
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K