Fréttablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 47
KYNNINGARBLAÐ 13 F I M MT U DAG U R 1 . f e b r úa r 2 0 1 8 KoNUR í ATvINNULíFINU Silja Mist Sigurkarlsdóttir, markaðsstjóri Nóa Síríus, tekst á við fjölbreyttar áskoranir í starfi sínu. MYND/ERNIR Fjölbreytt verkefni í sælgætislandi Silja Mist Sigurkarlsdóttir, markaðsstjóri Nóa Síríus, segir að það sé skemmtileg áskorun að kynna og bæta framleiðslu fyrirtækisins og það sé mikilvægt að rótgróin fyrirtæki séu opin fyrir nýjungum. Súkkulaði og annað sælgæti frá Nóa Síríus hefur kitlað bragðlauka Íslendinga í nærri 100 ár og þarf vart að kynna. Silja Mist Sigurkarlsdóttir, markaðs- stjóri Nóa Síríus, segir vöruþróun og markaðssetningu nýjunga mörgum sinnum á ári vera skemmtilega áskorun fyrir svo rót- gróið fyrirtæki. „Við leggjum mjög mikla áherslu á vöruþróun, sem stundum kemur fólki á óvart. Mörgum dettur bara í hug gamla góða Síríus súkkulaðið eða Konsúmið okkar þegar minnst er á Nóa Síríus, en vörulínan okkar telur fjölda vörumerkja og er alltaf að stækka og þróast,“ segir Silja Mist. „Vöruþróun og markaðssetning á nýjum og spennandi vöru- merkjum og endurmörkun á eldri tegundum er því t.d. eitt af aðal verkefnunum í mínu starfi,“ segir Silja. „Það er ótrúlega skemmtilegt því það þýðir að ég er er alltaf með nýja áskorun handan við hornið.“ Silja nefnir sem dæmi að þessa dagana er ný lína af Ópal komin í verslanir, nýjar bragðtegundir í nýjum umbúðum og nýrri stærð. „Ópalið er dæmi um vöru sem Íslendingar hafa hreinlega elskað áratugum saman og allir þekkja,“ segir hún. „Þannig að það liggur mikil og skemmtileg vinna á bak við það að taka svona þekkta vöru og finna nýjar hliðar á henni og kynna hana. Það er alltaf ákveðin áhætta að þróa svona þekkt vöru- merki og við erum þess vegna ótrúlega ánægð með viðtökurnar sem nýja Ópalið hefur fengið. Sömu sögu er að segja af páska- eggjunum okkar, sem er vara sem flestir þekkja vel og eru jafnvel mjög fast- heldnir á milli ára,“ segir Silja Mist. „Það er ótrúlega skemmtilegt að sjá hversu frábærlega fólk hefur tekið nýjungunum sem við höfum boðið upp á um hverja páska undanfarin ár, og nú er þetta orðið þannig að við fáum fjölda ábendinga á hverju ári um hvers konar páskaegg fólk langar að fá á markaðinn. Þannig að sam- talið við neytendur er alltaf að verða betra og mikilvægara.“ Samfélagsmiðlar mikil- vægir fyrir markaðs- starfið Hluti af breyttu starfsum- hverfi fyrirtækja er einmitt aukið vægi samfélagsmiðla í samskiptum við viðskipta- vini og fjölmiðla. Hvernig er Nói að nýta þessar nýjungar? „Samfélagsmiðlar Nóa Sír- íus eru orðnir mikilvægur og daglegur hluti af markaðs- vinnunni okkar,“ segir Silja Mist. „Nóa samfélagið á Facebook er til dæmis ótrú- lega hvetjandi fyrir okkur, það er frábært að finna daglega fyrir því að rúmlega 70 þúsund manns fylgjast vel með breytingum á vörunum okkar, senda okkur ábendingar og hugmyndir að nýjum vörum og benda á það sem betur má fara. Það er ómetanlegt að geta átt í beinum sam- skiptum við þá sem kaupa og njóta varanna okkar og fá til dæmis endurgjöfina beint í æð um leið og ný vara er sett út á markaðinn. Þessi beinu samskipti munu bara verða mikil- vægari eftir því sem á líður og við leggjum þess vegna mikla áherslu á að standa okkur vel í þeim.“ Yngsti stjórnandinn hjá Nóa Það vakti athygli að Silja Mist var aðeins 25 ára gömul þegar hún var ráðin markaðsstjóri hjá Nóa. Hvernig er það fyrir svo unga konu að takast á við stjórnunarstöðu hjá stóru og rót- grónu fyrirtæki? „Ég útskrifaðist úr Háskólanum í Reykjavík vorið 2016 og tók við markaðsstjórastöðunni hjá Nóa strax í kjölfarið. Það skiptir miklu máli fyrir fyrirtæki, ekki síst þau sem byggja á gömlum grunni, að vera opin fyrir nýjungum og að vera óhrædd við að ráða ungt fólk í ábyrgðarstöður. Starfsumhverfi framleiðslufyrirtækja er að breyt- ast hratt, eins og allt samfélagið, og í slíku umhverfi er skynsamlegt að setja saman réttu blönduna af reynslu og ferskleika í stjórnunar- stöðum,“ segir Silja Mist. „Hlutfall kynjanna í stjórnunarstöðum hjá Nóa hefur verið að jafnast undan- farin ár sem ég tel mikilvægt, enda held ég að jafnari kynjahlutföll skili fyrirtækjum almennt betri árangri. Ég er ákaflega ánægð með samstarfið við stjórnendur og sam- starfsfólk mitt hjá Nóa, enda erum við með skýra sameiginlega sýn á það hvað fyrirtækið stendur fyrir og hvert við viljum þróa það.“ Og þróunin er greinilega hröð á ýmsum sviðum. „Við erum einmitt núna að undirbúa okkur fyrir ferð á stærstu sælgætissýningu í heimi sem er haldin í Þýskalandi árlega,“ segir Silja. „Við höfum kynnt íslenskt sælgæti frá Nóa fyrir heims- byggðinni á þessari sýningu mörg undanfarin ár og höfum vakið mikla athygli. Þannig að markaðs- svæði Nóa Síríus er ekki lengur bara á Íslandi heldur í raun allur heimurinn. Og það er ótrúlega skemmtileg áskorun að takast á við. Við höfum einnig lagt mikla áherslu á samfélagsábyrgðarverk- efni undanfarin ár, sérstaklega varðandi kakóræktun, þar sem fulltrúar Nóa fóru út og kynntu sér aðstæður við kakóuppskeru,“ segir Silja Mist. „Í kjölfar þess hófum við samstarf við Cocoa Horizons, samtök sem hafa að markmiði að stuðla að fræðslu, framsæknum framleiðsluháttum og bættri lífs afkomu kakóbænda. Nói er í grunninn fjölskyldufyrirtæki sem er byggt á þeirri sýn að það verði að sýna ábyrgð í verki og skila þeirri sýn áfram til næstu kyn- slóðar. Við erum því alltaf að leita möguleika til að gera betur á öllum sviðum og það er bæði áhuga- vert og krefjandi, sem gerir starfið skemmtilegt og fjölbreytt.“ 0 1 -0 2 -2 0 1 8 0 5 :0 0 F B 0 8 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E E 0 -D 1 2 4 1 E E 0 -C F E 8 1 E E 0 -C E A C 1 E E 0 -C D 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 8 8 s _ 3 1 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.