Fréttablaðið - 01.02.2018, Blaðsíða 74
Bíó
KviKmyndir Gary Oldman gerir
Churchill frábær skil í Darkest Hour
og þykir beinlínis umbreytast í Sir
Winston undir þykkum farða og
frábæru gervi sem tók fimm klukku
stundir að klína utan á hann fyrir
tökur.
Fleiri leikarar hafa þó gert Chur
chill góð skil og hér eru dregnir
fram fjórir leikarar sem raða sér á
eftir Oldman á listann yfir fimm
bestu Churchillana í kvikmyndum.
Á þessum topp fimm lista er
stuðst við lista Michael F. Bishop
á vef The International Churchill
Society, winstonchurchill.org. Þó
með því inngripi að hér er John
Lithgow, sem lék Churchill í Netflix
þáttunum The Crown, troðið inn
en Bishop er lítt hrifinn af frammi
stöðu þessa hávaxna, bandaríska
leikara, í hlutverki hins dáða,
samanrekna breska bolabíts.
1. Gary Oldman
Darkest Hour (2017)
Oldman öðlaðist
frægð á sínum
tíma fyrir
túlkun sína á
pönkaranum
Sid Vicious í
Sid and Nancy.
Valið á honum
í hlutverk Chur
chills þótti nokkuð undarlegt þegar
hann var fenginn til verksins 2015.
Hann hefur þó margsannað sig sem
ótrúlegt kamelljón og einn besti
leikari sinnar kynslóðar og verður
beinlínis að Churchill á tjaldinu.
Churchillsérfræðingurinn Bishop
segir að þótt Darkest Hour sé engan
veginn heimildarmynd sé á köflum
ekki hægt að greina á milli Oldmans
og Churchills á gömlum frétta
myndum.
2. Albert Finney
The Gathering Storm
(2002)
Þessi sjónvarps
mynd, sam
starfsverkefni
BBC og
HBO skartar
úrvalsliði
leikara í öllum
hlutverkum
og yfir hópnum
öllum gnæfir sá mæti leikari Albert
Finney sem Churchill. Bishop segir
myndina veislu fyrir augun frá
fyrsta ramma. Eini gallinn við hana
sé að hún er of stutt og dramatísk ár
í lífi stríðsforsætisráðherrans tilvon
andi líði allt of hratt á 90 mínútum.
5. John Lithgow
The Crown (2016)
Þótt okkar
manni,
honum
Bishop hjá
Alþjóðlega
Churchill
félaginu,
líki ekkert
sérstaklega vel við
John Lithgow í gervi Churchills þá
er hann nú samt á lista hér. Valið á
þessum hávaxna Ameríkana í rull
una þótti galið og sjálfur botnaði
hann ekkert í þessu. „Ég hélt þeir
hefðu farið mannavillt. Ég var
smeykur við hlutverkið en ég var
ekkert að fara að afþakka það,“ segir
leikarinn.
Lithgow var ekki aðeins með
vitaður um stóran skugga Church
ills heldur einnig að hann fetaði í
fótspor stórleikara sem áður höfðu
túlkað Winston. Hann segir Albert
Finney hafa verið dásamlegan en
leikur hans hafi einng frelsað hann.
„Fínt, það er ekki nauðsynlegt að
vera hann, ég þarf aðeins að segja
sögu hans, að holdgera hvað hann
var í huga alls þessa fólks og hvaða
áhrif hann hafði á það.“
Kvikmyndastjarnan
Winston Churchill
Winston Churchill er einn af þeim stóru og hefur komið við
sögu í yfir sextíu kvikmyndum. Aldrei betri en í Darkest Hour
sem er loksins frumsýnd á Íslandi á föstudaginn.
Winston Churchill er ein magnaðasta persónan í sögu síðustu aldar. Hann hefur því eðlilega komið við sögu í fjölda
kvikmynda og sjónvarpsþátta og hefur aldrei verið betri en núna. NORDICPHOTOS/GETTY
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Amadeus borðstofuhúsgögn
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Komið og skoðið úrvalið
Fyrirbyggjandi vörn gegn eyrnabólgu
og nauðsynlegt fyrir þá sem eru með
rör í eyrum eða viðkvæm eyru.
Til í þremur stærðum.
Njóttu þess að fara
í sund / sjósund
Verndaðu eyrun með Ear Band-It Ultra
eyrnaböndum og eyrnatöppum
Fæst í apótekum,
barnavöruverslunum
og Útilíf
lyftarar og hillukerfi
www.velaborg.is velaborg@velaborg.is s. 414 8600
V
Allur borðbúnaður
fyrir veitingahús
gsimport.is
892 6975
3. Brendan Gleeson
Into the Storm (2009)
Brendan Glee
son, eini írski
leikarinn
sem hefur
tekist á við
hlutverk
Churchills,
tók við keflinu
af Finney í þessu
framhaldi The Gathering Storm.
Myndin fylgir Churchill frá því
hann verður forsætisráðherra
til 1945 þegar þjóð hans hafnaði
stríðsleiðtoga sínum í kosningum.
4. Simon Ward
Young Winston (1972)
Richard Atten
borough leik
stýrði þessari
hressilegu
mynd sem
baðar hinn
unga Chur
chill í nokkrum
hetjuljóma. Mynd
in byggir á sjálfsævisögu Winstons,
My Early Life, sem kom út 1930. Hér
segir frá barnæsku hans, ævintýrum
hans sem stríðsfréttaritara í seinna
Búastríðinu í SuðurAfríku og upp
gangi hans í stjórnmálum sem skila
honum á þing í fyrsta sinn.
thorarinn@frettabladid.is
1 . f e b r ú a r 2 0 1 8 f i m m T U d a G U r42 m e n n i n G ∙ f r É T T a b L a ð i ð
0
1
-0
2
-2
0
1
8
0
5
:0
0
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
E
0
-6
4
8
4
1
E
E
0
-6
3
4
8
1
E
E
0
-6
2
0
C
1
E
E
0
-6
0
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
8
s
_
3
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K