Fréttablaðið - 01.02.2018, Side 72

Fréttablaðið - 01.02.2018, Side 72
365.is 1817MARGFALT SKEMMTILEGRI Meistaramánuður Febrúarmánuður er Meistaramánuður og af því tilefni taka Ísland í dag og Íslandsbanki höndum saman. Takmarkið er að verða besta útgáfan af sjálfum sér, hvert sem verkefnið er. Málið er að setja sér markmið og standa svo við stóru orðin. Fylgist með Meistaramánuði í hverri viku í Íslandi í dag á Stöð 2 í febrúar. Segja má að verkin á sýning-unni skiptist í tvö skaut, annars vegar virðingu fyrir lífshlaupi sérhverrar per-sónu, hins vegar áhyggjur af framtíðinni,“ segir Katrín Matthíasdóttir listmálari um inntak sýningarinnar Hið augljósa sem verð- ur opnuð í Galleríi Fold við Rauðarár- stíg klukkan 18 á morgun, föstudag. Katrín er hugsjónakona og verk hennar endurspegla það. „Auðvitað geta áhorfendur túlkað verkin á sinn hátt, þannig á það að vera,“ segir hún. „Ég sá að verk eftir Leonardo da Vinci seldist í lok síðasta árs á 46 milljarða króna, sem er auðvitað klikkun. Verkið á að sýna bjargvætt heimsins, sem í augum Da Vincis er Jesú. Í mínum augum er það mann- kynið sjálft því við þurfum öll að leggja okkar af mörkum til að leysa þau vandamál sem steðja að okkur. Ég setti son minn í stellingar þar sem hann er að blessa heiminn með ann- arri hendi og í hinni heldur hann á kúlu sem er jörðin.“ Katrín segir myndirnar raðast upp í seríur. „Ég set minn bjargvætt meðal annars fyrir framan blokk. Það táknar að við erum orðin aðþrengd en jörðin er okkar eina athvarf og við megum ekki ganga of hratt á auðlind- ir hennar því fleiri koma á eftir okkur. Svo eru barnsaugu sem minna okkur á að vinna að brýnum málum. Við erum með lausnirnar og verðum að setja fókus á þær.“ Synir Katrínar, þrír að tölu, koma fyrir í mörgum verkum hennar. Skyldu þeir hafa mikla þolinmæði til að sitja fyrir? „Ég tek helling af ljósmyndum af þeim en annar tví- burinn minn, sem er sextán ára, gat nú alveg setið kyrr í nokkurn tíma um daginn!“ Svo eru níu vatnslitaverk. „Ég strekki pappírinn á blindramma og þar mála ég börn sem ég finn myndir af í mannheimum, netheimum, oft börn sem hafa séð hluti sem þau eiga ekki að hafa upplifað, og bý til nýtt umhverfi, betra líf og nýja von,“ lýsir listakonan. Þess utan er hún með fjögur verk sem túlka lífsskeiðin fjögur, bernsku, ungdóm, fullorðinsár og elli. „Bara til að undirstrika að öll göngum við í gegnum það sama, ef við fáum að lifa, berum sömu tilfinningar og vænting- ar,“ segir Katrín. „Því þurfum við að jafna möguleikana milli fólks.“ Býr til nýtt umhverfi, betra líf og nýja von Sala málverks eftir Leonardo da Vinci á 46 milljarða varð myndlistarkonunni Katrínu Matthíasdóttur innblástur að seríu um bjargvætt heimsins. Hún opnar sýninguna Hið augljósa í Galleríi Fold á morgun. Katrín við eitt verkið í bjargvættarseríunni þar sem sonur hennar situr fyrir. Fréttablaðið/SteFán Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is OG Set Minn bjarG- Vætt MeðaL annarS Fyrir FraMan bLOKK. Það táKnar að Við eruM Orðin aðÞrenGd. 1 . f e b r ú a r 2 0 1 8 f I M M T U D a G U r40 M e n n I n G ∙ f r É T T a b L a ð I ð 0 1 -0 2 -2 0 1 8 0 5 :0 0 F B 0 8 8 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E E 0 -6 9 7 4 1 E E 0 -6 8 3 8 1 E E 0 -6 6 F C 1 E E 0 -6 5 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 8 8 s _ 3 1 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.