Fréttablaðið - 01.02.2018, Síða 70

Fréttablaðið - 01.02.2018, Síða 70
Vetrarhátíð verður sett í kvöld klukkan 19.45 með ljósainnsetningu sem verður varpað á olíutankana við Mars- hallhúsið. Innsetningin kallast Örævi og er eftir Valdimar Jóhanns- son, Ernu Ómarsdóttur, Pierre Alain Giraud og Íslenska dansflokkinn. Auk þeirra koma koma fram í verk- inu þau Aðalheiður Halldórsdóttir, Hannes Þór Egilsson, Þyrí Huld Árnadóttir, Úlfur Óðinn Valdimars- son og Kristín Geirsdóttir en þegar náðist í þau Valdimar og Ernu voru þau að leggja lokahönd á verkið. Dansa á mörkunum Erna segir að Örævi sé hugsað í beinu framhaldi af því sem þau voru að fást við með dansflokknum á Norður og niður hátíðinni fyrr í vetur í sýningunni Myrkrið faðmar. Erna segir að þar hafi þau verið að fjalla um hinn berskjaldaða líkama sem er með öllu óvarinn í myrkrinu og maður veit aldrei á hverju er von og er með öll skynfæri í viðbragðs- stöðu. „En núna erum við ekki leng- ur að skoða líkamann í myrkrinu heldur í örsmáum einingum ef svo má segja. Við fengum lánaða smá- sjá sem er hægt að festa myndavél á og erum búin að vera að mynda munninn, slímhúðina og ýmis svona smáatriði líkamans. Þarna eru við að skoða fegurðina í öllum þessum smáatriðum sem við tökum ekki eftir dagsdaglega.“ „Við erum svona að skoða lands- lagið í líkamanum,“ skýtur Valdimar inn í. „Já, nákvæmlega,“ tekur Erna undir. „Þetta er ákveðinn hluti af því sem líkaminn hefur upp á að bjóða. Sumar myndirnar dansa óneitan- lega á mörkum fegurðar og ljótleika og eru svona af þessu sem fær fólk kannski til þess að segja oj, en samt er þetta fallegt. Við erum bara ekki vön því að sjá fegurðina í þessum hluta líkamans.“ Hrukkur og hreyfingar Valdimar bendir á að það sem er á þessum myndum séu í raun hlutir sem við sjáum á hverjum degi. „Við erum bara ekki vön að sjá þetta svona nálægt. Þannig að þetta er orðið svona stórt þá finnst þér þetta kannski ógeðslegt en samt hefurðu þetta fyrir augunum á hverjum degi og það er gaman að skoða það með þessum hætti.“ Erna tekur undir þetta og segir að þetta séu líka hlutir af líkamanum sem halda okkur gangandi og sjái til þess að öll starfsemi sé með eðli- legum hætti. Erna segir að dansararnir Aðal- heiður, Hannes og Þyrí úr dans- flokknum hafi líka verið að vinna þetta með þeim. „Þetta eru allt mjög flinkir dansarar sem búa yfir ótrúlegri færni eins og að geta hreyft vöðva á skrítnum stöðum í líkamanum en það er líka eitt- hvað sem maður sér vanalega ekki á danssýningum einfaldlega vegna fjarlægðar áhorfenda. Þannig að þau voru að dansa með t.d. herða- blöðunum og það kemur mjög skemmtilega út. Mamma mín tekur líka að sér að dansa með hrukkunum og Úlfur Óðinn sonur okkar tók líka að sér eitt hlutverk þannig að þetta er mjög fjölbreytt.“ Tunguhaftssóló Valdimar bendir á að með þessari miklu nánd við líkamann sem fæst með myndavélinni og svo færni dansaranna við að dansa með svona afmörkuðum svæðum náist fram þetta landslag líkamans sem þau hafi verið að falast eftir. „Þetta er líka vegna þess að augun í okkur virka dálítið eins og Photoshop- forritið. Augað velur það sem við sjáum með ómeðvituðum hætti en með því að stækka þessi smáatriði svona upp þá verða þau ekki lengur umflúin. Þegar ég kveikti á smásjánni þá fór ég fyrst inn á klósett, þreif vel á mér hendurnar og setti þær svo undir smásjána og það var sko líf og fjör. Það er greinilega ýmislegt sem gerist undir smásjá. Þá fórum við líka að hugsa hvernig væri hægt að dansa undir smásjá því hreyfing- arnar þurfa að vera alveg pínulitlar en koma svo fram sem ógnarstórar á myndunum.“ Erna segir að þau hafi til að mynda skoðað tunguhaftið sér- staklega og það hafi komið í ljós að dansararnir voru með mjög ólíkt tunguhaft. „Ein var með ekkert og Aðalheiður var með flott og liðugt tunguhaft sem hún nýtti til þess að gera mjög flott tunguhaftssóló þannig að þetta er búið að vera alveg rosalega gaman hjá okkur.“ Ör og ævi Myndunum er svo varpað á tank- ana við Marshallhúsið og undir þessu er leikin tónlist eftir Sigur Rós. „Við vorum enn svo innblásin af tónlistinni þeirra sem við vorum að vinna með á milli jóla og nýárs,“ segir Valdimar. „Ég fékk tónlistina þeirra til þess að leika mér að henni og útfæra hana svona eftir því sem hentaði að þessu sinni. Það virkaði einhvern veginn þannig að þetta hélt okkur við efnið. Tónlist Sigur Rósar er líka þannig að hún fer á einhvern hátt nálægt manni. En annars held ég að næsta skref hjá okkur hljóti að vera að búa til dansverk fyrir örverur,“ segir Valdi- mar og glottir. „Og bakteríur líka. Það hefur enginn gert það. Það gæti reyndar verið dálítið erfitt að hafa stjórn á þeim en það er þá helst Erna geti talað þær til og fengið til þess að dansa.“ Erna brosir að þessu og bendir á að nefnið Örævi feli einmitt í sér ákveðinn orðaleik að orðunum ör og ævi, að viðbættu öræva-orðinu þá sé þetta nú eins og Valdimar segir: „Farið að vísa til ævinnar sem landslags.“ Hvernig er hægt að dansa undir smásjá? Vetrarhátíð verður sett með viðhöfn í kvöld þegar opnunarverkinu Örævi, ljósainnsetningu af líkömum sem eru myndaðir undir smásjá, verður varpað á tankana við Marshallhúsið undir tónum Sigur Rósar. Erna Ómarsdóttir, Valdimar Jóhannsson og Pierre Alain Giraud hafa undanfarið unnið að opnunarverki Vetrarhátíðar. FréTTAblAðið/STEFán Mynd úr ljósainnsetningunni Örævi. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is 1 . f e b r ú a r 2 0 1 8 f I M M T U D a G U r38 M e n n I n G ∙ f r É T T a b L a ð I ð menning 0 1 -0 2 -2 0 1 8 0 5 :0 0 F B 0 8 8 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E E 0 -7 D 3 4 1 E E 0 -7 B F 8 1 E E 0 -7 A B C 1 E E 0 -7 9 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 8 8 s _ 3 1 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.