Víkurfréttir - 05.10.2017, Side 1
■ Bæjarráð Grindavíkur tekur
undir athugasemdir samráðshóps
um bættan Grindavíkurveg, þetta
kemur fram í fundargerð bæjar-
ráðs. Þar kemur einnig fram að ekki
sé nóg að horfa eingöngu til um-
ferðarþunga þegar kemur að því að
forgangsraða umbótum vega. Slysa-
tíðni Grindavíkurvegar er gríðar-
leg, þrátt fyrir að það sé minni um-
ferðarþungi á honum en öðrum
vegum. Vegurinn er auk þess með
mjög varasama kafla þar sem auð-
veldlega myndast hálka án fyrirvara
yfir vetrartímann.
Í fundargerðinni
kemur einnig
fram að Reykja-
nesið sé orðið
mjög stórt at-
vinnusvæði sem
fari ört vaxandi
og þar er meðal
annars Flugstöð
L e i f s E i r í k s -
sonar nefnd ásamt Bláa Lóninu. Um
Grindavíkurveg fara einnig miklir
þungaflutningar, meðal annars flutn-
ingabílar með sjávarafurðir og hins
vegar miklir fólksflutningar með
rútum sem leið eiga í Bláa Lónið.
Mikið af ungu fólki sækir skóla í
Reykjanesbæ og til höfuðborgarinnar
og einnig hefur umferð erlendra
ferðamanna aukist á veginum. Fram
kemur í fundargerðinni að umferðin
á veginum sé því bæði fjölbreytt og
flókin.
Bæjarráð tekur auk þess undir hug-
myndir Samráðshópsins um að hefja
strax undirbúning samkvæmt tillögu
2 frá Vegagerðinni. Hafist verði handa
við hönnun og skipulag svo það verði
klárt þegar vegurinn fer inn á Sam-
gönguáætlun. Það er mat bæjarráðs
Grindavíkur að m.v. fjölgun umferðar
á veginum þoli framkvæmdin enga
bið. Þá tekur bæjarráð undir með
hópnum, um að framkvæmdum á
2 + 1 vegi með aðskildum aksturs-
stefnum, sem kostar m.v. útreikning
Vegagerðarinnar, 1400 milljónir, verði
áfangaskipt og jafnvel tekin í tveimur
eða þremur áföngum. Hættulegustu
kaflarnir verði teknir fyrst.
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
• fimmtudagur 5. október 2017 • 39. tölublað • 38. árgangur
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
ANDRI RÚNAR
OG LINDA BEST
LÆRÐI AÐ
STANDA Á
EIGIN FÓTUM
Draumurinn að
rætast hjá fram-
tíðar fatahönnuði Sport14 11
FS fær 20% minna en aðrir skólar
●● Framlög●til●þekkingarsetra●og●símenntunar●eru●lang●lægst●á●Suðurnesjum
Framlög til margra ríkisstofnana
á Suðurnesjum eru mun lægri en
margra sambærilegra annars staðar.
Þetta birtist ekki síst í framlögum
til menntastofnana á svæðinu sem
mega sætta sig við mun lægri fram-
lög en sambærilegar stofnanir. Þann-
ig eru framlög til Fjölbrautaskóla
Suðurnesja 1.436 þúsund krónur á
hvern nemanda í fjárlagafrumvarpi
ársins 2018 á meðan
sambærilegir fram-
haldsskólar annars
staðar á landsbyggð-
inni fá að jafnaði
um 1.761 þúsund
á hvern nemanda.
Þetta er óásættanleg
mismunun sem er
erfitt að skilja, segir í ályktun aðal-
fundar SSS sem haldinn var 29.-30.
september sl.
„Þá er áhyggjuefni að framlög til
þekkingarsetra og símenntunar eru
lang lægst á Suðurnesjum auk þess
sem áætluð fjárframlög til Keilis setja
rekstur skólans enn einu sinni í upp-
nám þrátt fyrir fyrirheit af hálfu ríkis-
ins um annað.
Fjölgun íbúa á Suðurnesjum er meiri
heldur en á öðrum landsvæðum og
honum fylgja mörg krefjandi verk-
efni sem kalla á að menntastofnanir
geti sinnt hlutverki sínu. Því skorar
aðalfundurinn á ríkisvaldið og þing-
menn Suðurkjördæmis að tryggja að
menntastofnanir á Suðurnesjum sitji
við sama borð og stofnanir á öðrum
landsvæðum þegar kemur að fram-
lögum úr ríkissjóði.“
■ Rúmlega sex þúsund bein störf
voru á Keflavíkurflugvelli á árinu
2016 en tæplega helmingur þeirra
eru störf hjá flugfélögum, flugmenn,
flugfreyjur og önnur störf. Næst
stærsti hópurinn eru starfsmenn
fyrirtækja sem þjónusta flugvélar
eins og t.d. við farangursþjónustu.
Þeir voru 1900 samtals á árinu 2016.
Starfsmenn Isavia eru þriðji stærsti
hópurinn á Keflavíkurflugvelli eða
780 manns. Rétt tæp sjöhundruð
starfa við verslun, á veitingastöðum
eða í bönkum í flugstöðinni, 221
starfaði við rútuakstur, flutninga eða
bílaleigu,119 hjá Tollgæslunni, Lög-
reglunni eða í þjónustu við fatlaða.
Samtals 6355 manns.
Guðný María Jóhannsdóttir, að-
stoðarframkvæmdastjóri hjá Isavia
sagði í kynningu á aðalfundi Sam-
bands sveitarfélaga á Suðurnesjum um
sl. helgi að áfram yrði mikil aukning
starfa á Keflavíkurflugvelli, nærri 900
störf að meðaltali til ársins 2020 en
síðan um 455 störf að meðaltali árlega
til ársins 2040. Farþegaspá til næstu
tveggja áratuga sýnir áframhaldandi
vöxt í fjölda ferðamanna til Íslands.
Aukningin hefur verið 21% að meðal-
tali á ári frá 2010, samtals um 230% á
milli áranna 2010 og 2016. Miðað við
um nærri 900 ný störf á þessu ári má
gera ráð fyrir að rúmlega 7 þúsund
manns hafi starfað á Keflavíkurflug-
velli í sumar.
„Það er ljóst að miklar áskoranir eru
enn framundan á Keflavíkurflugvelli.
Það verður mikil þörf á vinnuafli til
að mæta miklum vexti á sama tíma og
þensla er í hagkerfinu og mannafla-
þörf er í atvinnulífinu,“ sagði Guðný
og benti á að nauðsynlegt væri að
tryggja innviði til að bjóða fólk vel-
komið inn í íslenskt samfélag. Hún
sagði að rík áhersla væri lögð á
umhverfismál í þessari miklu upp-
byggingu á flugvellinum, m.a. í um-
hverfisstjórnunarkerfi, hljóðvist og
loftgæðum, grunnvatns- og jarðvegs-
gæðum, úrgangsmálum og loftslags-
breytingum.
Yfir sex þúsund bein störf
á Keflavíkurflugvelli í fyrra
●● Bæta●þarf●Grindavíkurveg
Bæjarráð
Grindavíkur
tekur undir
athugasemdir
samráðshóps