Víkurfréttir - 05.10.2017, Síða 2
2 fimmtudagur 5. október 2017VÍKURFRÉTTIR
ALLTAF PLÁSS
Í B Í L N U M
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG.
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
SÍMI: 845 0900
Fæðingarstofa HSS sú eina á landinu sem lokar í einn mánuð á sumri:
Ólíðandi að barnshafandi konur þurfi að leita til Reykjavíkur
- Berglind Ásgeirsdóttir hóf undirskriftasöfnun um málið
„Ég varð mjög hissa þegar ég komst að því að fæðingarstofan á HSS sé sú eina á landinu sem
lokar í einn mánuð á sumrin,“ segir Berglind Ásgeirsdóttir, en nýverið fór hún af stað með undir-
skriftasöfnun þeirra sem óska eftir því að barnshafandi konur á Suðurnesjum hafi aðgang að
ljósmóður á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja allan sólarhringinn, allan ársins hring. Síðan árið
2013 hefur ljósmæðravaktin á HSS verið lokuð í einn mánuð að sumri þar sem einungis er hægt
að sækja mæðravernd. Þær konur sem þurfa frekari þjónustu er gert að leita á Landspítalann í
Fossvogi í stað þess að fá þjónustu á HSS, líkt og hina mánuði ársins.
Berglind eignaðist sjálf stúlku á
fæðingardeild HSS síðustu Ljósanótt
og fann því ekki beint fyrir þessari
skerðingu sjálf. Hún hafi þó ákveðið
að gera eitthvað í málunum og hafið
undirskriftarsöfnun, en nú þegar hafa
um það bil 1.500 manns skrifað undir.
„Þetta skapar auðvitað stress og erfið-
ari upplifun á meðgöngunni. Ljós-
mæðurnar á HSS sem ég ræddi þetta
við lýstu nú ekki mikilli ánægju með
þetta fyrirkomulag því þær vilja auð-
vitað veita heildstæða þjónustu fyrir
verðandi foreldra allt árið. Þetta er
ólíðandi í svona stóru heilbrigðisum-
dæmi sem þjónar um 25.000 manns,
samkvæmt tölum Hagstofunnar,“
segir Berglind.
Í lögum um heilbrigðisþjónustu segir
að heilbrigðisþjónustu skuli veita á
viðeigandi þjónustustigi og að heilsu-
gæslan sé að jafnaði fyrsti viðkomu-
staður sjúklinga. Lög séu því brotin
þegar barnshafandi konur á Suður-
nesjum þurfi að sækja þjónustuna
til Reykjavíkur, sem annars er veitt á
HSS, vegna lokunar ljósmæðravaktar.
Viðbrögðin við undirskriftasöfnun-
inni hafa verið góð að sögn Berglindar
en með henni vonast hún til þess að
ná til sem flestra. „Það er gott að sjá að
fólk lætur sig málið varða. Við þurfum
að nýta kraft fjöldans til að knýja fram
breytingar svo það verði ekki nein
sumarlokun á fæðingardeildinni árið
2018. Andrúmsloftið og aðstaðan á
fæðingardeild HSS er frábær og það
er yndislegt að koma þangað. Ég átti
báðar stúlkurnar mínar þar og gæti
ekki hugsað mér annað.“
Í lögum um heilbrigðisþjónustu segir að heilbrigðisþjónustu
skuli veita á viðeigandi þjónustustigi og að heilsugæslan sé
að jafnaði fyrsti viðkomustaður sjúklinga. Lög séu því brotin
þegar barnshafandi konur á Suðurnesjum þurfi að sækja
þjónustuna til Reykjavíkur, sem annars er veitt á HSS, vegna
lokunar ljósmæðravaktar.
Óásættanleg staða Suðurnesja í öldrunarmálum
●● Skorað●á●heilbrigðisráðherra●að●auka●fjármuni●til●Heilbrigðisstofnunar●Suðurnesja
Aðalfundur Sambands sveitar-
félaga á Suðurnesjum, haldinn 29.-
30. september 2017 skorar á Heil-
brigðisráðherra að auka fjármuni
til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja,
sérstaklega til heilsugæslusviðs.
Biðtími eftir tíma hjá lækni getur
verið allt að tvær vikur sem getur
ekki talist ásættanlegt. Fram kemur
í úttekt á heilsugæslu Heilbrigðis-
stofnunnar Suðurnesja, sem gerð
var af Embætti Landlæknis í maí sl.,
að mönnun lækna og hjúkrunar-
fræðinga sé ónæg og lítið megi bera
út af svo að öryggi sé hugsanlega
ógnað vegna ófullnægjandi mönn-
unar. Auk þess sé heilsugæslan aug-
ljóslega undirmönnuð af fagfólki,
ástandið sé þá sérstaklega slæmt í
geðteymi og meðferðarteymi barna.
Jafnframt kemur fram að húsnæði
Heilsugæslunnar í Reykjanesbæ sé
barn síns tíma og uppfylli ekki nú-
tímakröfur sem gerðar eru til hús-
næðis heilsugæslustöðva. Mikilvægt
er að húsnæðið verði lagað og upp-
fylli kröfur sem gerðar eru til þess.
Þá hlýtur það að teljast einsdæmi á
landsvísu að engin heilsugæsla sé í
Garði og Sandgerði sem samtals telja
á fjórða þúsund íbúa. Þessu þarf að
breyta sem fyrst.
Fundurinn gerir kröfu um uppbygg-
ingu hjúkrunarrýma á Suðurnesjum.
Það er í hæsta máta óeðlilegt að
Suðurnesin, sem greitt hafa 1,2 millj-
arða í Framkvæmdasjóð aldraðra frá
árinu 2008, skuli einungis hafa fengið
379,9 milljónir úr sjóðnum eða sem
nemur 31% af inngreiðslum í sjóðinn.
Sé gengið út frá forsendum miðspár
Hagstofu Íslands um fjölgun aldraðra
til ársins 2025 má búast við að öldr-
uðum íbúum á Suðurnesjum fjölgi
um 857 á næstu 10 árum og 1.708 á
næstu 20 árum. Sé stuðst við reikni-
reglu ráðuneytisins þyrftu að vera 182
hjúkrunarrými á Suðurnesjum árið
2025 og 267 rými árið 2035. Í dag eru
aðeins 118 skilgreind hjúkrunarrými
á Suðurnesjum.
Þessi staða er með öllu óásættanleg
fyrir íbúa Suðurnesja og gerir aðal-
fundurinn því þá kröfu til stjórnvalda
að þau standi með sveitarfélögunum á
Suðurnesjum í þeirri viðleitni að byggja
upp hjúkrunarþjónustu við aldraða
sem uppfyllir þörf, mæti nútíma- og
framtíðarþörfum í málaflokknum og
standist samanburð við önnur heil-
brigðisumdæmi landsins. Fundurinn
skorar á Velferðarráðherra að beita sér
fyrir bragarbót í öldrunarþjónustu á
Suðurnesjum þar sem ríki og sveitar-
félögin verði leiðandi í nýrri nálgun í
heildrænni þjónustu við aldraða.
ÓVISSUFERÐ ELDRI BORGARA
FARIÐ VERÐUR 10. OKTÓBER.
Skráning í ferðina
Brynja, Garði, 849-6284
Bjarney, Reykjanesbæ, 421-1961 / 822-1962
Örn, Vogum, 846-7334
Margrét, Grindavík, 896-3173
Rútan fer frá:
Nesvöllum, Reykjanesbæ kl. 10:00
Víðihlíð, Grindavík kl. 10:30
Geymið auglýsinguna
Ferðanefnd
ÓVISSUFERÐ
Lítill drengur á fæðingarstofu HSS.