Víkurfréttir - 05.10.2017, Blaðsíða 11
11fimmtudagur 5. október 2017 VÍKURFRÉTTIR
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Bókaðu tíma í síma 568 6880 eða á www.heyrnartaekni.is
Heyrnarmælingar, ráðgjöf og heyrnartækjaþjónusta
Reykjanesbær 19. október
Vantar þig heyrnartæki?
Árni Hafstað heyrnarfræðingur verður í Reykjanesbæ
við heyrnarmælingar, ráðgjöf og sölu heyrnartækja.
Mikið úrval af hágæða heyrnartækjum.
Hafnargata 29 - s. 421 8585
20%
afsláttur af öllum skóm
til laugardags
OPIÐ TIL 20 Á FIMMTUDAG
Við erum 15 ára!
„Ég byrjaði að sauma föt 13 ára en
síðan fékk ég mikinn áhuga á skóm,“
segir Helgi Líndal, en í september fór
hann á námskeið Dominic Cham-
brone í Los Angeles í Bandaríkjunum
þar sem hann lærði að handsmíða
skó. Helgi, sem er 16 ára gamall, segir
að þar með hafi draumurinn sinn
ræst.
„Ég átti bágt með að trúa því að ein af
fyrirmyndum mínum væri að kenna
mér. Ég rakst fyrst á Dominic á Yo-
utube en ég sá að hann væri að halda
námskeið annað slagið og ég endaði
á því að senda skólanum tölvupóst.
Ég fékk svo svar stuttu síðar og þau
buðust til að taka frá pláss fyrir mig.“
Dominic Chambrone er mjög frægur
í bransanum að sögn Helga en hann
er kallaður „The shoe surgeon".
„Skólastofan er staðsett i miðbæ Los
Angeles en þar lærðum við að taka
venjulega skó í sundur og búa til
nýja alveg eins, nema með öðru-
vísi efni. Það sem ég notaði var
venjulegt kúaleður en með
krókódíla prenti á sér,“
segir Helgi.
Námskeiðið stóð yfir í fimm daga,
en þar kynntist Helgi fólki víðs vegar
um Bandaríkin sem deildu sama
áhugamáli og hann, þó hann hafi
verið lang yngstur. „Þetta var erfitt
á köflum og við vorum öll að læra
eitthvað nýtt. Námskeiðið stóð klár-
lega undir væntingum og þetta var
æðisleg ferð og mögnuð reynsla,“
segir Helgi, en bætir því við að nám-
skeiðið hafi kostað heilmikið. „Ég
óskaði eftir styrkjum frá fyrirtækjum
á Suðurnesjum og þau voru mörg
sem styrktu mig. Ég er ótrúlega þakk-
látur f yr ir
það.“
Ástæða þess
a ð H e l g i
byr jaði að
sauma segir
h a n n v e r a
f y r i r m y n d i r
sínar í fyrirtækinu
Inklaw. „Mér finnst
JÖR líka geggjaður.“ Eftir
námið á listabraut í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja, stefnir Helgi svo á að fara
erlendis í skóla. „Dominic sagði mér
að koma aftur til sín og
vera lærlingur í viku.
Minn stærsti draumur
er svo að hanna fyrir
stór fyrirtæki eða jafn-
vel að eiga mitt eigið
fyrirtæki,“ segir hann.
Foreldrar Helga fóru með
honum til Los Angeles og segir
hann þau hafa hjálpað sér ótrú-
lega mikið. „Mig langar að þakka
fjölskyldunni minni og styrktaraðil-
unum mínum sem stóðu öll við
bakið á mér.“
Sólborg Guðbrandsdóttir
solborg@vf.is
Draumurinn að rætast
hjá framtíðar fatahönnuði
- Hinn 16 ára Helgi Líndal lærði að hanna skó í Los Angeles
Þessa dagana heilmálar Helgi sk
ó fyrir vin sinn.
Peysuna saumaði hann sjálfur, en á henni eru nöfn allra þeirra sem komu honum til LA.
Helgi og Dominic
Chambrone.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Hilmar Harðarson,
Lyngholti 5, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, laugardaginn 30. september.
Útför hans fer fram frá Keflavíkurkirkju, fimmtudaginn 12. október,
klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkað en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Krabbameinsfélag Suðurnesja.
Kt: 431095-2469, Banki: 0121-26-1525.
Ingunn María Hilmarsdóttir Ágúst Gunnarsson
Þórey Ása Hilmarsdóttir Jóhannes K. Jóhannesson
Gunnhildur Hilmarsdóttir Ahmed Kallel
Guðmundur P. Hilmarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir minn, bróðir okkar, mágur og frændi,
Pálmi Kristinn Guðnason,
Háaleiti 7, Keflavík,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í Keflavík að kvöldi mið-
vikudagsins 27. September, eftir erfiða sjúkdómslegu.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 10. október kl. 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minn-
ast hans er bent á Ljósið, stuðningsmiðstöð krabbameinssjúkra.
Guðni Freyr Pálmason
Ingibjörg Ágústa Guðnadóttir Magnús Óskar Ingvarsson
Særós Guðnadóttir Baldur Elías Hannesson
Sigrún Aðalsteinsdóttir Gísli Harðarson
Guðný Jóna Guðnadóttir Ólafur Geir Magnússon
og fjölskyldur.