Víkurfréttir - 05.10.2017, Page 14
14 fimmtudagur 5. október 2017VÍKURFRÉTTIR
VR-15-025
Umsækjendur þurfa að vera liprir í samskiptum og eiga auðvelt með
að vinna í hóp.
Áhugasamir sæki um á www.n1.is – merkt framtíðarstörf.
Nánari upplýsingar veitir Gísli Páll Jónsson, stöðvarstjóri
í síma 659 1156 eða gisli.pall@n1.is
Við hvetjum bæði kyn til að sækja um
auglýst störf hjá fyrirtækinu.
Vilt þú vinna á líflegum
vinnustað?
N1 Reykjanesbæ óskar eftir að ráða kraftmikið og þjónustulipurt
starfsfólk í fullt starf og hlutastörf. Hlutastörfin gætu vel hentað fyrir
skólafólk eða eldriborgara sem hafa getu og vilja til að starfa lengur.
Helstu verkefni
• Almenn afgreiðsla og þjónusta
við viðskiptavini
• Önnur tilfallandi verkefni á
stöðinni
Hæfniskröfur
• Rík þjónustulund
• Reynsla af sambærilegum
störfum er kostur
Karen Lind Óladóttir er fæddur og uppalinn Grindvíkingur, en fyrir sex
árum síðan ákvað hún að láta drauminn um það að verða læknir rætast.
Hún skellti sér í inntökupróf í Ungverjandi, komst inn í námið og lét slag
standa. Í dag er Karen útskrifuð úr skólanum og er að hefja kandidats-
námið sitt hér á Íslandi.
Hvað varð til þess að þú ákvaðst
að fara til Ungverjalands og læra
læknisfræði?
Mig langaði alltaf að læra læknisfræði
en fannst inntökuprófið í Háskóla Ís-
lands vera svo yfirþyrmandi. Að þurfa
að rifja allt upp úr framhaldsskóla
hentaði mér ekki. Ég ákvað að prufa
inntökuptófið fyrir Ungverjaland þar
sem var lögð áhersla á líffræði, efna-
fræði og eðlisfræði. Það gekk svona
glimrandi vel þannig að ég ákvað að
skella mér bara til Ungverjalands.
Var námið meira krefjandi en þú
gerðir ráð fyrir?
Já og nei. Ég vissi að námið væri
krefjandi en þetta var líka krefjandi
á annan hátt en ég bjóst við. Þar sem
flest prófin eru munnleg þá var það
ekki bara námsefnið sem maður var
að berjast við heldur gat maður líka
lent á prófdómurum sem áttu slæman
dag og gerðu manni lífið leitt í próf-
inu. Maður var oft mikið að reyna að
fókusa á það að láta þessa prófdómara
ekki taka mann á taugum.
Hvað fannst fjölskyldunni þinni um
það að þú færir ein til Ungverja-
lands?
Þau tóku því bara vel enda langt frá
því að vera versta hugmynd sem ég hef
fengið. Mamma og pabbi fylgdu mér út,
hjálpuðu mér að finna íbúð og komu
svo reglulega í heimsókn á þessu sex ára
tímabili sem ég var í náminu.
Hvað lærðir þú af þessari reynslu,
fyrir utan læknanámið?
Ég lærði að standa á eigin fótum og
treysta á sjálfa mig. Það var mikið
stökk að fara frá því að búa hjá
mömmu og pabba yfir í að flytja í
annað land, tala ekki tungumálið og
fara að búa ein ásamt því að vera í
krefjandi námi.
Hvað fannst þér erfiðast af þessu
öllu saman?
Það var erfiðast að yfirgefa fjölskyldu
og vini eftir frí á Íslandi. Einnig var
afar leiðinlegt að missa af ýmsum
viðburðum, afmælisveislum, brúð-
kaupum, útskriftarveislum og svo
framvegis.
Nú ert þú á leiðinni aftur heim til
Íslands, hvað tekur við?
Nú ætla ég að byrja kandidatsnámið.
Byrja á því að taka fjóra mánuði á
heilsugæslu HSS og flyt svo til Akur-
eyrar þar sem ég klára kandidatsárið
á SAk.
Ertu með einhverja skemmtilega
sögu handa okkur frá Ungverja-
landi?
Þær eru nú margar „had to be there“
sögur en það er ein saga sem við
rifjum oft upp og hlægjum af. en hún
er þannig að einu sinni ætluðum við
að kíkja ú í „einn drykk“ á mánudags-
kvöldi sem eru svakaleg djammkvöld
í Ungverjalandi. Áður en við vissum
af var klukkan orðin sjö á þriðjudags-
morgni og vorum við vinkonurnar
komnar heim til bekkjarbróður okkar
frá Saudi-Arabíu. Við vorum dress-
aðar upp í arabísk karlmannsföt og
okkur kenndir arabískir þjóðdansar.
Eftir þetta hættum við að þykjast bara
ætla út í einn drykk.
ATVINNA
LAUSAR STÖÐUR Í ÖRYGGISDEILD
Við leitum að starfsmanni í öryggisgæslu í gagnaveri Verne að Ásbrú,
sem er tilbúinn að takast á við ögrandi og spennandi starfsumhverfi.
Viðkomandi verður þátttakandi í uppbyggingu sem krefst
aðlögunarhæfni, áhuga og vilja til að tileinka sér nýja þekkingu og tækni.
Góð enskukunnátta er skilyrði.
Umsóknarfrestur er til 12. október 2017,
viðkomandi þarf að geta hafi störf sem fyrst.
Fyrirspurnir um nánari upplýsingar ásamt umsóknum
sendist í tölvupósti til styrmirh@verneglobal.com.
Lærði að standa á eigin fótum
Karen Lind lærði læknisfræði í Ungverjalandi