Víkurfréttir - 05.10.2017, Síða 15
15fimmtudagur 5. október 2017 VÍKURFRÉTTIR
HS Orka leitar að öflugum
liðsmönnum til starfa
Vélvirki / Járniðnaðarmaður / Blikksmiður
Rafvirki
Meginverkefni er nýsmíði ásamt viðgerðum á stálpípukerfi og öðrum framleiðslu-
og gufuveitubúnaði orkuvera.
Umsjón með háspennu- og lágspennubúnaði ásamt jafnstraumbúnaði
(DC) sem er umfangsmikill í rekstri orkuvers.
Nánari upplýsingar veitir Petra Lind Einarsdóttir (ple@hsorka.is), mannauðsstjóri.
Sótt er um starfið á heimasíðu fyrirtækisins.
Umsóknarfrestur er til og með fimmtudags 12. október 2017.
HS Orka á og rekur tvær jarðvarmavirkjanir, Orkuverið í Svartsengi og
Reykjanesvirkjun. Fyrirtækið hefur verið leiðandi í framleiðslu endurnýjanlegrar
orku í 40 ár og ætlar sér enn stærri hluti í orkuframleiðslu á umhverfisvænan
hátt samfélaginu til hagsbóta.
Hjá fyrirtækinu starfa rúmlega 60 manna öflugur hópur með mikla reynslu
og þekkingu á sínu sviði.
Helstu verkefni
• Nýsmíði og viðhald.
• Vinna við pípulagnir fyrir gufu, heitt og kalt vatn.
• Almennt viðhald á loftræstikerfum.
• Ber ábyrgð á að gögn er varðar verksviðið séu uppfærð.
• Önnur verkefni sem falla til í rekstri.
Helstu verkefni
• Sinnir reglubundnu viðhaldi og bilanagreiningu á búnaði.
• Ber ábyrgð á að viðhaldssaga og bilanaskráning sé skráð í viðhaldskerfi.
• Ber ábyrgð á að teikningar og gögn er varðar verksviðið séu uppfærðar.
• Úrvinnsla verkefna úr lögskipaðri rafskoðun.
• Önnur verkefni sem falla til í rekstri.
hsorka.is
ÍAV hf. | Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | s. 530 4200 | www.iav.is
Íslenskir aðalverktakar óska eftir dugmiklu starfsfólki
í eftirfarandi störf:
• Rafvirkjar
• Píparar
• Trésmiðir
• Verkamenn
Um er að ræða skemmtileg og fjölbreytt störf í þjónustu,
viðhalds- og nýframkvæmdum á Suðurnesjum.
Upplýsingar veitir Einar Ragnarsson í síma 414 4313 eða
einar.ragnarsson@iav.is.
Umsókn skal skila inná vef ÍAV, www.iav.is. Öllum
umsóknum verður svarað og farið verður með þær sem
trúnaðarmál. ÍAV hvetur konur jafnt sem karla til að
sækja um.
Við breytum vilja í verk
Starfsmenn óskast
ATVINNA
TÆKNIVÍK EHF ÓSKAR EFTIR RAFVIRKJA
OG EÐA RAFVIRKJANEMA Í VINNU.
VIÐ LEITUM EINNIG AÐ BÓKARA
EÐA STARFSMANNI Á SKRIFSTOFU.
Fyrirtækið er leiðandi í stýringum og forritun fyrir fiskeldi.
Starfið felst í uppsetningu á töflum,
stýringum og allri almennri raflagnavinnu.
Upplýsingar í síma 895 3556 eða á netfangið gulli@eldi.is
Tæknivík
Alþjóðleg æfing fyrir sprengjusérfræð-
inga á Keflavíkurflugvelli
■ Æfingin Northern Challenge 2017 hófst í vikunni á Suðurnesjum. Um er
að ræða árlega alþjóðlega æfingu fyrir sprengjusérfræðinga og er hún sú
stærsta sinnar tegundar í heiminum. Æfingin er í umsjón séraðgerða- og
sprengjueyðingarsviðs Landhelgisgæslunnar, sem einnig annast skipu-
lagningu hennar og stjórnun. Fjölmargir aðrir starfsmenn Landhelgis-
gæslunnar koma að æfingunni auk þess sem varðskip, þyrla, sjómælinga-
bátur og stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar taka þátt. Atlantshafsbanda-
lagið styrkir verkefnið.
Northern Challenge-æfingin er
haldin á starfssvæði Landhelgis-
gæslunnar á öryggissvæðinu á Kefla-
víkurflugvelli, gamla varnarliðsvæð-
inu og hafnarsvæðum í nágrenninu.
Þetta er í sextánda skipti sem Nort-
hern Challenge er haldin og stendur
æfingin yfir í hálfan mánuð, dagana
1.-12. október. Að þessu sinni taka
þátt 33 lið frá 15 ríkjum og heildar-
fjöldi þátttakenda er um 300. Þá
fylgist fjöldi erlendra gesta með æf-
ingunni.
Tilgangur Northern Challenge er
að æfa viðbrögð við hryðjuverka-
tilfellum þar sem heimatilbúnar
sprengjur koma við sögu. Samskonar
búnaður og fundist hefur víðsvegar
um heiminn síðastliðin ár er útbú-
inn og aðstæður í kring hafðar eins
raunverulegar og hægt er. Einnig er
rannsóknarþátturinn tekinn fyrir þar
sem vettvangur er rannsakaður og
farið er yfir sönnunargögn. Á æfing-
unni er notast við sérútbúna rann-
sóknarstofu sem sett er upp þessum
tilgangi. Þá er jafnframt virkjuð
sérhæfð stjórnstöð þar sem öll upp-
setning og verkfyrirkomulag er sam-
kvæmt alþjóðlegum NATO-ferlum.
Blái herinn fær pallbifreið frá Toyota
- Umhverfissamtökin Blái Herinn og Toyota
skrifuðu undir nýjan samstarfssamning á dögunum
■ Umhverfissamtökin Blái Herinn
og Toyota á Íslandi skrifuðu undir
nýjan samstarfssamning á dög-
unum, en Toyota umboðið hefur
verið aðal styrktaraðili samtakanna
síðan árið 2006. Umboðið færði Bláa
hernum nýja Toyota Hilux pallbif-
reið til afnota fyrir starfsemina.
Blái herinn er frjáls félagasamtök
sem m.a. hafa ferðast um landið og
hreinsað rusl í umhverfinu, staðið
fyrir fræðsluerindum og hvatt til
hreinsunarverkefna, en verkefni sam-
takanna eru unnin í sjálfboðavinnu.
„Við stöndum í þakkarskuld við To-
yota fyrir frábært samstarf og munum
beita okkur af öllum mætti til að efla
starfsemina og hafa áfram hvetjandi
áhrif á aðra til framdráttar fyrir nátt-
úru landins,“ segir Tómas Knútsson,
stofnandi og formaður Bláa hersins.
Blái herinn hefur hreinsað yfir 1.350
tonn af rusli úr umhverfinu okkar, yfir
3.000 manns hafa aðstoðað í þeim 150
verkefnum og vinnustundirnar eru
yfir 55 þúsund.
Daníel Hansson, sölu-
ráðgjafi hjá Toyota
á Íslandi, afhendir
Tómasi J. Knútssyni,
formanni Bláa hers-
ins, nýja Toyota Hilux
pallbifreið til afnota
fyrir starfsemina.