Víkurfréttir - 05.10.2017, Side 16
16 fimmtudagur 5. október 2017VÍKURFRÉTTIR
■ Nú er að koma sá tími ársins þar
sem dagsbirtunnar nýtur sem minnst
og erfitt getur verið að greina svörtu
fötin okkar sem við flest klæðumst
á þessum árstíma. Við þekkjum öll
þetta litla gagnsama öryggistæki sem
heitir endurskinsmerki og er gætt
þeim eiginleika að við sjáumst mikið
fyrr í myrkrinu. Þau eru til í ýmsum
útgáfum, lítil og stór, til að hengja
utan á okkur, til að líma á flíkur og
til að klæða okkur í. Einnig er til úrval
af þessum mikilvægu öryggistækjum
á dýrin okkar.
Á heimasíðu Samgöngustofu eru
ýmsar upplýsingar um endurskins-
merki og m.a. er þar sú staðreynd að
ökumaður getur greint þann sem er
með endurskinmerki í um 125 metra
fjarlægð meðan sá sem er ekki með
endurskinsmerki sést varla fyrr en
keyrt er fram hjá honum.
Nú er heilsu- og forvarnarvika Suður-
nesja í gangi og margir setja sér það
markmið að hreyfa sig meira útivið til
að bæta heilsu og auka lífsgæði og er
því tilvalið að skoða stöðu á endurskini á
þeim flíkum sem við klæðumst og bæta
úr þar sem þörf er á.
Endurskinsmerki fást í mörgum versl-
unum hér í bæ og hvetjum við íbúa til
að verða sér úti um endurskin til að
vera öruggari þegar við eflum heilsu
í forvarnarvikunni.
Með ósk um að góðan vetur og að sjá
ykkur sem best og lengst.
Slysavarnadeildin Dagbjörg
Láttu sjá þig
Söngsveitin Víkingar
sló í gegn í Kórar Íslands
■ Söngsveitin Víkingar komst
áfram eftir símakosningu í Kórar
Íslands síðastliðið sunnudagskvöld.
Þátturinn var sýndur í beinni út-
sendingu Stöðvar 2. Víkingarnir eru
nú komnir áfram í undanúrslit eftir
flutning þeirra á laginu Söknuður
eftir Vilhjálm Vilhjálmsson. Kór-
stjóri Víkinganna er Jóhann Smári
Sævarsson.
Kór Keflavíkurkirkju tók einnig þátt í
keppninni sama kvöld en komst ekki
áfram.
Söngvarinn Friðrik Dór Jónsson er
kynnir þáttanna og dómnefndina
skipa tónlistarfólkið Kristjana Stefáns-
dóttir, Ari Bragi Kárason og Bryndís
Jakobsdóttir.
Fyrsti fundur Kvenfélags Grindavíkur
Við í Kvenfélagi Grindavíkur erum
með fyrsta fund haustsins 9. okt í
Gjánni, á okkar fyrsta fund kemur
Anna Steinsen, stjórnendamark-
þjálfi, eigandi KVAN og þjálfari
og ætlar hún að fjalla um hvaða
kröfur séu gerðar til kvenna, bæði
af samfélaginu en ekki síst þeim
sjálfum. Kröfurnar eru slíkar að
næstum ómögulegt er að standa
undir þeim. Við konurnar ætlum
okkur oft svo mikið, viljum vera
með allt á hreinu og standa okkur
100% í öllu sem við tökum okkur
fyrir hendur. Oftar en ekki situr
okkar eigin þróun á hakanum.
Kvenfélag Grindavíkur var stofnað
24. nóvember 1923. Í félaginu eru
um 130 konur á öllum aldri. Félagið
er aðili að K.S.G.K., Kvenfélagasam-
bandi Gullbringu- og Kjósarsýslu,
sem í eru tíu félög og um 700 fé-
lagskonur. Frá stofnun hefur aðal
markmið félagsins verið að styðja
og styrkja líknar- og velferðarmál í
okkar nærsamfélagi með ýmsu móti.
Jafnframt að búa konum á öllum
aldri vettvang til að kynnast, efla
samvinnu, læra af hverri annarri og
hafa gaman saman. Fjáröflunarleiðir
félagsins eru margvíslegar og rennur
allur ágóði til líknarmála. Félagið
stendur fyrir ýmsum uppákomum
og fyrirlestrum fyrir félagsmenn.
Fundir eru haldnir einu sinni í mán-
uði yfir vetrarmánuðina, október til
maí. Áhugasamir geta haft samband
við stjórnarkonur og eru að sjálf-
sögðu velkomnar á fundi.
Með vinsemd og virðingu
Sólveig Ólafsdóttir
●● Leiðsögn●Sossu●og●Antons●Helga●Jónssonar
Sossa og Anton Helgi Jónsson
munu taka á móti gestum á
sýningu sinni, Blossa, næst-
komandi sunnudag kl. 15 í Duus
Safnahúsum í Reykjanesbæ.
Á sýningunni eru málverk eftir Sossu
og innrömmuð ljóð eftir Anton Helga
Jónsson sem snúast um ástar- og hlut-
verkaleiki kynjanna. Bæði eiga þau
það sameiginlegt að hafa velt fyrir sér
margbreytileika mannlífsins, hún í
málverkum og hann í ljóðum. Með
bros á vör og lífsgleðina að leiðarljósi
hafa þau dregið upp myndir af alls
konar fólki í verkum sínum. Blossi
er samsýning þeirra á málverkum og
ljóðum sem snúast um ástar- og hlut-
verkaleiki kynjanna.
Sossa hefur áður málað myndir út
frá ljóðum úr bókum Antons en mál-
verkin á þessari sýningu urðu til eftir
að listamennirnir ákváðu að vinna
saman að sýningu með erótískum
undirtóni. Efniviðinn í málverkin
hefur Sossa sótt í ljóð eftir Anton sem
fæst hafa komið fyrir augu annarra og
sum reyndar orðið til upp úr samstarfi
þeirra. Málverkin eru ekki hugsuð sem
myndskreyting við ljóðin heldur verk
sem sprottin eru af sama eða svip-
uðum blossa. Þannig vilja listamenn-
irnir láta reyna á það hvernig málverk
og ljóð geta hvort á sinn hátt miðlað
heitum tilfinningum; ástarblossa milli
karls og konu, karls og karls, konu
og konu. Hverju miðlar málverkið?
Hverju miðlar ljóðið? Hvað er mynd í
ljóði? Hvað er ljóð í mynd?
Allir eru velkomnir og aðgangur
ókeypis.
Blossi:
Ljóðskáld, listakona og erótík