Víkurfréttir - 05.10.2017, Page 18
18 fimmtudagur 5. október 2017VÍKURFRÉTTIR
Það besta sem þú getur gert fyrir
heilsuna gæti komið þér á óvart
Á þeim námskeiðum
o g f y r i r l e s t r u m
sem ég hef haldið
kemur oft upp sú
spurning hjá þátt-
takendum hvað sé
mikilvægast til þess
að efla heilsuna. Það
er eðlilegt að þessi
spurning komi upp
enda hefur flestum
verið sagt að leita
ráða áður en farið
er út í stórvægilegar
breytingar á heilsu-
farslegri hegðun, s.s.
mataræði eða hreyfingu. Því vill fólk
fá að vita hvað sé skynsamlegast að
leggja mesta áherslu á, eða eftir at-
vikum, hvað sé best að tækla fyrst.
Þeir sem mig þekkja, vita að ég hef
töluverða persónulega reynslu af því
að glíma við offitu og get því miðlað
þar af reynslu minni, en offita er
flókinn sjúkdómur sem er afar
kostnaðarsamur fyrir samfélagið
og veldur miklum heilsufarslegum
skaða til lengri tíma. Að halda sér
í kjörþyngd er því vissulega mikil-
vægt en þó er það ekki sá þáttur sem
ég vil meina að skipti mestu máli.
Regluleg hreyfing er ekki bara góð
fyrir líkamlega heilsu heldur hefur
mikil og góð áhrif á andlega líðan.
Ég hef hvatt alla á mínum fyrir-
lestrum og námskeiðum til þess að
hreyfa sig reglulega og um langt
skeið tiltók ég hreyfingu sem það
aðalatriði sem mestu máli skipti
fyrir góða heilsu. Í dag hefur áhersla
mín þó breyst. Holl og fjölbreytt
næring tryggir góða meltingu, veitir
okkur orku til þess að takast á við
daginn, heldur líkamsstarfseminni í
jafnvægi og hefur einnig áhrif á and-
lega líðan okkar. Því legg ég áherslu
á það í mínum fyrirlestrum að fólk
sé meðvitað um hvað það lætur ofan
í sig, hvernig vörur eru framleiddar
og hvað sé raunverulegt innihald
þeirra. Þrátt fyrir mikilvægi góðrar
næringar er það þó
ekki sá þáttur sem
mér finnst skipta
mestu máli til þess
að tryggja góða
heilsu, þó svo það
sé augljóst flestum
að góð næring sé
afar mikilvæg. En
hvað er það þá sem
ég legg mest upp
úr? Nú gætu ein-
hverjir lesendur
haldið að það sé
svefninn. Ég hef
vissulega skrifað
töluvert um mikilvægi svefns, enda
sýna rannsóknir að óreglulegur
svefn hefur mjög skaðleg áhrif á
heilsu okkar. Allir eiga að fá átta
tíma svefn hið minnsta og setja sér
markmið um að bæta svefnvenjur
til þess að tryggja nauðsynlega
hvíld. Ekki er það þó svefninn sem
varð fyrir valinu að þessu sinni. Sá
þáttur sem mér finnst skipta lang
mestu máli fyrir heilsu okkar í dag
eru einlæg, kærleiksrík og gefandi
samskipti. Það að eiga góð samskipti
við fjölskyldu, vini, vinnufélaga og
samferðarmenn skiptir sköpum.
Rannsóknir sýna að samfélagsleg
einangrun og einmannaleiki hefur
jafnvel verri áhrif á heilsu fólks en
reykingar, óhollt mataræði og hreyf-
ingarleysi. Maðurinn er félagsvera.
Við byggjum samfélagsleg tengsl
okkar á samvinnu og samhjálp. Góð
samskipti tryggja þar góðan árangur.
Öll þörfnumst við hvors annars. Öll
tökumst við á við erfiðleika í lífinu
og þá er fátt betra en þegar ein-
hver réttir manni hjálparhönd. Því
þurfum við að læra að setja okkur
í spor hvors annars, leitast við að
skilja mismunandi sjónarhorn og
tryggja góð samskipti, heilsunnar
vegna og okkar allra.
Jóhann Friðrik Friðriksson
Ástandið skrýtið en tekur einn dag í einu
-Jóna Júlíusdóttir er búsett í Barcelona þar sem mikil átök hafa átt sér stað síðustu daga
■ „Ég heyri það á fólki heima að
það er aðallega hrætt um mann
eftir að hafa séð fréttamyndir. Yfir-
leitt hafa sömu fjögur myndbrotin
verið endursýnd aftur og aftur en
svo skiptir það auðvitað miklu máli
hvort þú ert að lesa katalónsk blöð
eða spænsk blöð,“ segir Jóna Júlíus-
dóttir, en hún býr í Barcelona rétt við
Römbluna þar sem ástandið hefur
verið frekar brothætt undanfarna
daga vegna kosninga Katalóníu-
búa um sjálfstæði. Jóna var einnig
staðsett í Barcelona í sumar þegar
hryðjuverkaárásin átti sér stað.
Óeirðarlögreglan kölluð til
„Á laugardeginum fyrir kosningar var
allt með kyrrum kjörum, fólk vissi í
raun ekki við hverju það átti að búast
eða hvað myndi gerast. Fólk var samt
sem áður reitt vegna þess að einni og
hálfri viku fyrir þá mætti „Guardia
civil“ sem er óeirða- og herlögregla
en því það var ekki treyst að lögreglan
myndi mæta á svæðið. Mér skilst að
katalónska lögreglan hafi neitað að
taka þátt í aðgerðum og því var kallað
á óeirðalögregluna til þess að hjálpa
til.“
Áttu ekki að vekja athygli en gerðu
það samt sem áður
„Óeirðarlögreglan mætti eins og frægt
var orðið á „Looney Tunes“ snekkju til
að vekja ekki athygli á sér, frekar stórt
skip sem fór ekki framhjá neinum.
Þeir réðust inn í Ráðhús Barcelona
og þinghús Katalónínu, þar handtók
lögreglan menn og það var þá sem
fólk varð reitt. Sem betur fer var „La
Merce„ strax um helgina sem er eitt
stærsta götupartý Spánar, þar sem fólk
skemmti sér konunglega og vildi ekki
skemma þá hátíð með mótmælum.“
Allt með kyrrum kjörum viku fyrir
kosningar
„Vikan fyrir kosningar var nokkuð
friðsamleg. Fólk var vissulega reitt yfir
þessum handtökum, óháð því hvort
það vildi sjálfstæði eða ekki. Daginn
fyrir kosningar var í raun ekki hægt að
merkja að stór dagur væri framundan,
því enginn vissi hvað myndi gerast.
Kosningadagurinn
sjálfur byrjaði með
handtökum í stjórn-
stöð þeirra og óeirðalög-
reglan mætti á örfáa kjör-
staði þar sem hún reyndi að ná kjör-
kössum. Það kom til átaka á einum
eða tveimur þeirra og átökin stóðu
yfir í um klukkutíma. Á langflestum
stöðum fór allt friðsamlega fram, ég
fór sjálf fram hjá tveimur kjörstöðum
og þar var hópur fólks að standa vörð
um hann og hjálpuðu þeim sem áttu
erfitt með aðgengi til að kjósa. Allt var
gert til að fólk gæti ekki kosið en fólk
tók til sinna ráða.“
Klippt á sjónvarpskapla
„Á Katalóníutorgi var búið að setja
upp risaskjá og fólk horfði á, bæði
þeir sem voru með og þeir sem voru
á móti. Síðan kemur allt í einu mót-
mælahópur sem klippir á útsend-
inguna, klippir sjónvarpskaplana
í sundur. Tveimur tímum síðar var
útsendingin ekki enn komin í gang
og ég held það hafi ekkert verið gert
til þess að koma henni í loftið aftur,
það hefði eflaust verið klippt aftur á
kaplana ef svo hefði verið. Um kvöldið
var stór útifundur haldinn á Kata-
lóníutorgi þar sem sagt var frá því að
90% hefðu kosið „já“ og að lýst yrði
yfir sjálfstæði innan tveggja sólar-
hringa. Á mánudeginum, degi eftir
kosningarnar, var fólk enn mjög reitt
yfir framkomu stjórnvalda en það var
samt ekki hægt að sjá nein merki um
ólgu í fólki, andrúmsloftið var eins og
fyrir kosningar. Fólk var bara að bíða
og sjá hvað myndi gerast.“
Allt lokað í mótmælaskyni
„Tveimur dögum eftir kosningarnar
voru allar búðir og opinberir staðir
lokaðir, bæjarskrifstofur, heilsugæslur
og annað slíkt. Flestar búðir voru
líka lokaðar og þeir sem voru
með opið voru með alla hlera
niðri nema við innganginn.
Borgin var hreinlega lokuð.
Það var enn mikið um mót-
mælagöngur en ég gat samt
ekki séð annað en að allt hafi
farið friðsamlega fram. Ég
varð ekki vör við neitt ofbeldi
í mótmælagöngunum, né orð-
ið vitni af lögregluofbeldi hina
dagana, hvort sem það var við
Katalóníutorg eða kjörstaði. Í mið-
borginni fór allt friðsamlega fram.“
Fjölskylda og vinir með áhyggjur
„Ég heyri það alveg á fólki heima að
það er aðallega hrætt um mann eftir
að hafa séð fréttamyndir. Yfirleitt hafa
sömu fjögur myndbrotin verið endur-
sýnd aftur og aftur en svo skiptir það
auðvitað miklu máli hvort þú ert að
lesa katalónsk blöð eða spænsk blöð.
Það er eins og tveir ólíkir hlutir séu að
gerast miðað við fréttir frá spænskum
eða katalónskum blöðum. Það er
mikil reiði í fólki, sérstaklega vegna
þess hvernig lögreglan kom fram, það
skiptir engu máli hvort fólk sé að-
skilnaðarsinnar eða vilji vera áfram
partur af Spáni, þessi reiði er sam-
eiginleg.“
Tek einn dag í einu
„Ástandið er skrýtið og maður tekur
einn dag í einu og ég veit í raun ekkert
hvað mun gerast. Ég gantaðist einmitt
við meðleigjandann minn sem er í
París og kemur heim í vikunni að vera
viðbúin undir að þurfa vegabréfsá-
ritun til að komast heim, þó þetta sé
kannski ekki eitthvað til að grínast
með. Ástandið getur orðið grafalvar-
legt og maður bara að taka einn dag í
einu því maður veit í raun ekkert hvað
morgundagurinn ber í skauti sér hér.“
Myndir: Jóna Júlíusdóttir
Mótmælendur á Katalóníutorgi í Barcelona.
Margt fólk safnaðist saman
til að mótmæla.
Margar búðir voru lokaðar í Barcelona í mótmælaskyni.
Kraftur þakkar fyrir sig
■ Perlað var með Krafti, stuðnings-
félagi ungs fólks með krabbamein
og aðstandenda þeirra, þann 30.
september síðastliðinn. Perlað var
í Reykjanesbæ og var góð mæting
á viðburðinn og margir mættu,
perluðu armbönd og létu gott af sér
leiða.
Nettó, Kaffitár og Krabbameinsfélag
Suðurnesja lögðu viðburðinum lið,
hvert á sinn hátt. Veitingar voru í
boði Nettó og Kaffitárs og Krabba-
meinsfélag Suðurnesja útvegaði sal
fyrir viðburðinn. Kraftur vill þakka
Nettó, Kaffitári og Krabbameinsfélagi
Suðurnesja kærlega fyrir og
einnig öllum þeim sjálfboða-
liðum sem mættu og perluðu
af krafti, án þeirra hefði þetta
ekki tekist svona vel.
Meðfylgjandi eru myndir frá
þessum skemmtilega degi.