Víkurfréttir - 05.10.2017, Qupperneq 19
Kosningar 2017 fimmtudagur 5. október 2017
Þótti vega að trúverðugleika
sínum að taka sæti neðar
Þórólfur Júlían Dagsson úr
Reykjanesbæ, sem varð í 3. sæti
í prófkjöri Pírata í Suðurkjör-
dæmi, ákvað strax þegar úrslitin
lágu fyrir að segja sig af listanum.
Stuttu síðar vildi hann draga þá
ákvörðun til baka en það var ekki
samþykkt.
Þórólfur sendi eftirfarandi frá sér í
kjölfarið: „Þar sem ég sóttist eftir 1.-
2. sæti í prófkjöri Pírata í Suðurkjör-
dæmi en lenti í þriðja hef ég tekið þá
ákvörðun að segja mig af listanum.
Þetta ákvað ég strax eftir að úrslit
voru ljós enda fannst mér það vega
að trúverðugleika minum að taka
sæti neðar en ég hafði sóst eftir. Ég
veit nú að ég hefði betur beðið með
þessa ákvörðun því fjöldi fólks hafði
samband við mig í gær og bað mig
um að taka þriðja sætinu því kraftar
mínir myndu sannarlega nýtast vel í
komandi kosningabaráttu. Ég hafði
því samband við kjördæmaráð til
að kanna hvort ég gæti dregið þessa
ákvörun til baka en ekki var fallist
á það.
Fyrri ákvörðun mín stendur því.
Ég hef engan veginn sagt skilið við
Pírata og ætla í framhaldinu að ein-
beita mér að sveitastjórnarkosn-
ingum sem einnig nálgast og vinna
að því að við bjóðum fram sterkan
lista í Reykjanesbæ.
Listi Pírata í Suðurkjördæmi
verður því þannig skipaður:
1. Smári McCarthy
2. Álfheiður Eymarsdóttir
3. Fanný Þórsdóttir
4. Albert Svan
5. Kristinn Ágúst Eggertsson
Páll leiðir Sjálfstæðisflokkinn
Pál l Magnússon leiðir
lista Sjálfstæðisflokksins í
Suðurkjördæmi, en listinn
var samþykktur á fundi
kjördæmisráðs Suðurkjör-
dæmis. Í öðru og þriðja sæti
eru alþingismennirnir Ás-
mundur Friðriksson og Vil-
hjálmur Árnason.
Listi Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi er eftirfarandi:
Páll Magnússon, alþingismaður
Ásmundur Friðriksson, alþingismaður
Vilhjálmur Árnason, alþingismaður
Unnur Brá Konráðs-
dóttir, alþingismaður
Kristín Traustadóttir, endurskoðandi
Hólmfríður Erna Kjartans-
dóttir, skrifstofustörf
Ísak Ernir Kristinsson, deildarstjóri
Brynjolfur Magnusson, lögfræðingur
Lovísa Rósa Bjarnadóttir,
framkvæmdastjóri
Jarl Sigurgeirsson, tónlistarkennari
Laufey Sif Lárusdóttir, um-
hverfisskipulagsfræðingur
Jón Bjarnason, bóndi
Hjördís Guðrún Brynjars-
dóttir, sjúkraþjálfari
Bjarki V. Guðnason, sjúkra-
flutningamaður
Helga Þórey Rúnarsdóttir,
leikskólakennari
Þorkell Ingi Sigurðsson, fram-
haldsskólanemi
Ragnheiður Perla Hjalta-
dóttir, hjúkrunarfræðingur
Alda Agnes Gylfadóttir,
framkvæmdastjóri
Sandra Kolbrún Ísleifs-
dóttir, húsmóðir
Geir Jón Þórisson, fyrr-
verandi lögreglumaður