Víkurfréttir - 05.10.2017, Qupperneq 20
Kosningar 2017 fimmtudagur 5. október 2017
Ari Trausti leiðir lista Vinstri
grænna í Suðurkjördæmi
F y r s t i f r a m b o ð s l i s t i
Vinstri grænna fyrir kom-
andi Alþingiskosningar
var samþykktur nú um
helgina. Listinn í Suður-
kjördæmi var samþykktur
á fundi kjördæmisráðs á
Selfossi, en stillt var upp á
listann.
Ari Trausti Guðmundsson,
þingmaður, leiðir listann
eins og í kosningunum
í fyrra. Efstu sætin eru
óbreytt og er Heiða Guðný
Ásgeirsdóttir, sauðfjár-
bóndi í öðru sæti, Daníel
E. Arnarson, framkvæmda-
stjóri í þriðja sæti og Dagný
Alda Steinsdóttir, innan-
hússarkitekt í fjórða sæti
listans.
Oddný leiðir Samfylkinguna
í Suðurkjördæmi
Oddný G. Harðardóttir mun leiða
lista Samfylkingarinnar í Suður-
kjördæmi í komandi alþingiskosn-
ingum, en framboðslisti flokks-
ins var kynntur á á fjölmennum
kjördæmisfundi í Reykjanesbæ á
þriðjudagskvöld síðastliðið. List-
inn var samþykktur samhljóða.
Marinó Örn Ólafsson situr í fjórða
sæti og Guðný Birna Guðmunds-
dóttir í því fimmta, en þau eru bæði
úr Reykjanesbæ.
Listi Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi er eftirfarandi:
Oddný G. Harðardóttir,
alþingismaður
Njörður Sigurðsson, sagn-
fræðingur og bæjarfulltrúi
Arna Ír Gunnarsdóttir, félags-
ráðgjafi og bæjarfulltrúi
Marinó Örn Ólafs-
son, háskólanemi
Guðný Birna Guðmunds-
dóttir, hjúkrunarfræð-
ingur og bæjarfulltrúi
Miralem Haseta, hús-
vörður í Nýheimum
Arna Huld Sigurðardóttir –
Hjúkrunarfræðingur
Guðmundur Olgeirsson – Fram-
kvæmdastjóri og bæjarfulltrúi
Borghildur Kristinsdóttir – Bóndi
Ástþór Tryggvason –
Nemi og þjálfari
Jórunn Guðmudsdóttir
– Stjórnarmaður í Öld-
ungaráðui Suðurnesja
Valgerður Jennýardóttir –
Leiðbeinandi á leikskóla
Ólafur H. Ólafsson – Háskólanemi
Símon Cramier – Fram-
haldsskólakennari
Jóhanna Sigurbjörns-
dóttir – Fótaaðgerða-
fræðingur og háskólanemi
Ingimundur Bergmann
– Vélfræðingur
Kristín Á. Guðmunds-
dóttir – Formaður Sjúkra-
liðafélagsins Árborg
Kristján Gunnarsson – Fyrr-
verandi alþingismaður
Karl Steinar Guðnason – Fyrr-
verandi alþingismaður
Margrét Frímannsdóttir – Fyrr-
verandi alþingismaður
Listi Vinstri Grænna
í Suðurkjördæmi er eftirfarandi:
Ari Trausti Guðmundsson, jarðfræðingur
Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, sauðfjárbóndi
Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri
Dagný Alda Steinsdóttir,
innanhúsarkitekt
Helga Tryggvadóttir,
náms- og starfsráðgjafi
Gunnar Marel Eggerts-
son, skipasmíðameistari
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir, nemi
Gunnar Þórðarson, tónskáld
Hildur Ágústsdóttir, kennari
Gunnhildur Þórðar-
dóttir, myndlistarmaður
Einar Sindri Ólafsson, háskólanemi
Ida Løn, framhaldsskólakennari
Hólmfríður Árnadóttir, skólastjóri
Einar Bergmundur Arn-
björnsson, þróunarstjóri
Anna Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Jónas Höskuldsson, öryggisvörður
Steinarr Guðmundsson, verkamaður
Svanborg Jónsdóttir, dósent
Ragnar Óskarsson, eftirlaunamaður
Guðfinnur Jakobsson, bóndi
Við lækkum verðlag, skatta og gjöld
- Við hækkum laun og kaupmátt
■ Ég er vanur því að hlut-
irnir gangi í kringum mig,
en þegar ég settist á þing
vorið 2013 fannst mér allir
hlutir ganga hægt fyrir
sig. Smátt og smátt lærðist
taktur þingsins og nú þegar
ég lít til baka er ánægju-
legt að hafa verið þátt-
takandi í mörgum góðum
verkum. Ánægjulegast er
að sjá hvernig raunverulegur ávinn-
ingur hefur verið í aukinni velferð
og bættum kjörum fólks.
Frá því að Sjálfstæðisflokkurinn settist
í ríkisstjórn 2013 hefur ríkissjóður
skilað afgangi sem nýttur hefur verið
til að greiða niður lán ríkisins um
hundruð milljarða með samsvarandi
lækkun vaxtagreiðsla ríkissjóðs.
Lægstu laun voru 191.000 kr. á mán-
uði 2013 en verða 300.000 kr. í maí
2018, en sex mánuðum fyrr eða um
næstu áramót verða lægstu bætur ein-
staklings í hópi eldri borgara 300.000
kr. eins og kröfur þeirra voru. Þá
kemur fram að nærri helmingur ríkis-
starfsmanna eða 43% þeirra eru með
800.000 kr. í laun á mánuði eða meira
og þar af 13% með yfir eina milljón á
mánuði eða meira. Á sama tíma hefur
kaupmáttur launa aukist og nú er svo
komið að í fyrsta skipti er staðfest að
verðlag lækkar á vörum til neytenda.
Afnám tolla og vörugjalda á verðlag
hefur að mestu skilað sér til neytenda
samkvæmt skýrslu Hagfræðistofn-
unar HÍ sem nýlega var birt.
Lækkum skatta og gjöld
Það er í raun ótrúleg staða
sem birtist fólki núna þegar
við rifjum hana upp til að
minna okkur á hvað staða
heimilanna hefur batnað og
við finnum það öll á eigin
skinni. Vörugjöld voru af-
numin 2015 og lækkuðu
tekjur ríkissjóðs um 6,5
milljarða. Tollar á öllum
vörum öðrum en búvörum voru af-
numdir í tveimur áföngum áramótin
2016 og 2017 og var áætlað að tekjur
ríkisjóð lækkuðu um sex milljarða
króna en vegna aukinna ráðstöfunar-
tekna heimilanna með tilheyrandi
útgjaldaaukningu lækkuðu tekjur
ríkissjóðs óverulega. Þá var hærra
þrep virðisaukaskatts lækkað 2015 úr
25.5% í 24% og er vaskurinn þá sá
lægsti í okkar helstu samanburðar-
löndum. Neðra þrep skattsins hækk-
aði á sama tíma úr 7 í 11%.
Þá var neðra þrep tekjuskatts einstakl-
inga lækkað og milli þrepið afnumið.
Við getum haldið áfram að telja niður,
stimpilgjöld af fyrstu íbúðakaupum
felld niður og skattleysi séreigna-
sparnaðar vegna íbúðakaupa tekið
upp sem nýta má til að greiða inn á
höfuðstól verðtryggðra lána eða inn á
afborganir óverðtryggðra lána.
Þá hafa vextir á lánum til íbúðakaupa
lækkað frá árinu 2013 úr 5% í það sem
best gerist hjá lífeyrissjóðunum 2.8%
og verðbólgan hefur verið innan verð-
bólgumarkmiða Seðlabanka Íslands
allt þetta tímabil og komið böndum
hækkun verðtryggingar.
Tryggingagjaldið hefur lækkað úr
7,69% í 6,85% og við sjálfstæðismenn
viljum áfram lækka gjaldið sem þó
stendur undir mikilvægum velferðar-
póstum í samfélaginu eins og fæð-
ingarorlofi.
Þá hefur frítekjumark fjármagnstekna
hækkað, frítekjumark húsaleigutekna
hækkað (aðeins greiddur skattur af
50% í stað 70% tekna), eignarskattar
lagðir niður, sem var óréttlátur skattur
sem fyrst og fremst kom niður á eldra
fólki, og þá var skattafsláttur vegna
hlutabréfakaupa tengdum nýsköpun
felldur niður.
Stöðugleiki
Frá vorinu 2013 geng ég og við þjóðin
öll öðru sinni til ótímabærra kosn-
inga. Þær leggjast vel í mig vegna þess
að þær snúast um að halda áfram á
þeirri braut sem ég fór stuttlega yfir
í þessari grein og er grunnurinn að
þeirri auknu velferð sem við búum við
í landinu.
Valið í kosningunum 28. október nk.
snýr um að viðhalda þeim stöðug-
leika sem er í landinu, treysta á þá
kaupmáttaraukningu og hagvöxt sem
við búum við, eða skattahækkanir og
innistæðulaus loforð vinstri flokk-
anna sem standast ekki skoðun.
Ásmundur Friðriksson
alþingismaður
Suðurnesjafólk skipa efstu sæti
Bjartrar framtíðar í Suðurkjördæmi
Stjórn Bjartrar framtíðar samþykkti
sex efstu frambjóðendur á fram-
boðslistum í öllum kjördæmum á
fjölmennum fundi síðdegis í gær.
Efstu sæti listans í Suðurkjördæmi
eru skipuð af Suðurnesjafólki en
Jasmina Crnac, stjórnmálafræði-
nemi, leiðir flokkinn í kjördæminu.
Á eftir henni er Arnbjörn Ólafsson,
markaðsstjóri Keilis, og sú þriðja er
Valgerður Björk Pálsdóttir, fram-
kvæmdastjóri. Í fjórða og fimmta
sæti kjördæmisins eru þær Guð-
finna Gunnarsdóttir og Eyrún Björg
Magnúsdóttir, en báðar eru þær
framhaldsskólakennarar.