Víkurfréttir - 05.10.2017, Qupperneq 21
Íþróttir á Suðurnesjum fimmtudagur 5. október 2017
„Efast að ég nái öðrum 100 leikjum“
segir Páll Guðmundsson, leikmaður Þróttar Vogum
„Ég var nú eiginlega bara hættur í fótbolta þegar ég ákvað að
spila með Þrótti,“ segir Páll Guðmundsson eða Palli eins og
hann er oftast kallaður en hann spilaði sinn 100. leik með knatt-
spyrnuliðinu Þrótti Vogum í sumar og að hans sögn er umgjörðin
í kringum liðið mjög góð og það skipti miklu máli. Við báðum
Palla að svara nokkrum spurningum fyrir okkur eftir gott sumar
Þróttara.
Hvenær byrjaðir þú að spila með
Þrótti Vogum?
Ég kom í Þrótt sumarið 2013 þegar
Þorsteinn Gunnars þjálfaði liðið í
4.deildinni.
Þú hefur farið upp um tvær deildir
með Þrótti Vogum, hvernig tilfinn-
ing er það?
Tilfinningin er mjög góð. Það var
verulega sætt þegar við komumst
upp úr 4. deildinni, sem hefur reynst
mörgum liðum ansi erfitt. En að fara
svona fljótt upp í 2. deild er frábært.
Þú spilaðir þinn 100. leik með Þrótti
í sumar, bjóstu við því að spila svona
marga leiki með Þrótti þegar þú
byrjaðir að spila með liðinu?
Nei ég var nú eiginlega bara hættur
í fótbolta þegar ég ákvað að byrja að
spila með Þrótti. Þá voru hérna margir
meistarar úr Grindavík sem var
skemmtilegt að spila með. Síðan hafa
árin liðið, Grindvíkingunum fækkað í
liðinu en ég er enn að. Efast samt um
að ég nái öðrum 100 leikjum.
Hvað stóð uppúr í sumar fyrir utan
það að þið komust upp um deild?
Það var margt ansi sérstakt við þetta
sumar. En það sem
menn muna er að
liðið komst upp um
deild og það er eftir-
minnilegast og það
sem skiptir mestu
máli.
Hefur stuðningur-
inn og umgjörðin í
kringum liðið skipt
miklu máli í sumar?
Já góður stuðningur
og umgjörð er það
helsta sem allir leik-
menn tala um sem
spila fyrir Þrótt. Og
það skilar sér oft í góðum árangri.
Ertu með góða ferðasögu fyrir
okkur?
Flestar góðar ferðasögur eru nú best
geymdar bara innan hópsins. En það
var "skemmtilegt" í sumar þegar við
létum flugvél fulla af farþegum bíða
á Reykjavíkurflugvelli í tæpan hálf-
tíma því að einn leikmaður svaf yfir
sig og fann svo ekki flugvöllinn. Hann
skilaði sér þó á endanum en fékk ekki
beint hlýjar móttökur.
Hverju eigið þið að þakka þennan
góða árangur undanfarin ár?
Það hafa margir góðir leikmenn spilað
hér undanfarin ár sem eiga stóran
þátt í þessu. Hér er líka góð umgjörð
og sérstök stemmning sem smitast
á milli manna í hópnum og hvetur
menn til að ná árangri fyrir félagið.
Þeir sem standa að baki liðinu eiga
svo mikið hrós skilið.
Hvað er framundan hjá þér, ætlar
þú að spila áfram með Þrótti næsta
sumar?
Það kitlar mikið að taka slaginn í 2.
deild næsta sumar. En mér finnst nú
líklegra að ég fari að segja þetta gott.
Það er nóg að gera í vinnunni og svo
verð ég faðir um áramótin og mér er
sagt að þá hafi ég eitthvað minni tíma
í svona tuðruspark. En það kemur
bara í ljós hvað verður og hvort það sé
ennþá þörf fyrir mig í liðið.
Verkefnastjóri á fyrirtækjasviði
Við leitum að kraftmiklum og skipulögðum einstaklingi til að sinna fjölbreyttum
verkefnum á fyrirtækjasviði MSS. Til að sinna starfinu þarf einstaklingurinn að
hafa mikinn áhuga á fræðslumálum, hafa haldgóða þekkingu á atvinnulífinu,
vera drífandi og skipulagður. Það þarf metnað, kraft og gott skipulag til að halda
vel utan um starfið.
Þekking í þína þágu
Umsóknir berast á netfangið ina@mss.is fyrir 22. október.
Nánari upplýsingar veitir Guðjónína Sæmundsdóttir í síma 421 7500.
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum er sjálfseignarstofnun. Miðstöðin er leiðandi á sínu
sviði og leggur metnað í að skapa gott andrúmsloft bæði fyrir viðskiptavini og starfsmenn.
Starfssvið
• Kynningar og heimsóknir í fyrirtæki
og sala á fræðslutilboðum
• Hönnun og skipulagning námskeiða
• Greining fræðsluþarfa í atvinnulífinu
• Gerð fræðsluáætlana fyrir fyrirtæki
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi
• Færni í verkefnastjórnun og skipulögð vinnubrögð
• Frumkvæði, sjálfstæði og lausnamiðað viðhorf
• Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
• Þekking og skilningur á atvinnulífinu
Arnór Ingvi
valinn í landsliðið
Suðurnesjamaðurinn Arnór
Ingvi Traustason, miðjumaður
AEK, er í A-landsliðshópi
karla sem tilkynntur var í dag.
Íslenska liðið mætir Tyrklandi
þann 6. október næstkomandi í
Tyrklandi.
Ísland leikur síðan á Laugardals-
velli gegn Kósóvó þann 9. október.
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga
kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84