Víkurfréttir - 05.10.2017, Síða 22
Bjarni og Ægir keppa í bardagaíþróttum í Skotlandi
Íþróttir á Suðurnesjum fimmtudagur 5. október 2017
Bræður í liði ársins
Fotbolti.net gerði sumarið upp
■ Leikmenn Keflavíkur voru
sigursælir þegar fotbolti.
net gerði upp sum-
arið. Markmaðurinn
S i n d r i K r i s t i n n
Ó l a f s s o n , M a r c
McAusland, Ísak Óli
Ólafsson, Hólmar
Örn Rúnarsson og
Jeppe Hansen eru
allir í liði ársins í 1.
deildinni hjá fot-
bolti.net.
Kef lavík komst
upp í Pepsi-deild-
ina nú í sumar
og kemur þessi
árangur því lítið á
óvart.
Efnilegasti leikmaður-
inn að mati fotbolti.
net var Ísak Óli
Ó l a f s s o n o g
markahæstur var
Jeppe Hansen en
hann skoraði
fimmtán mörk
með Kef lvík-
ingum í sumar.
B r æ ð u r n i r S i n d r i
Kristinn Ólafsson og
Ísak Óli Ólafsson eru
báðir í liði ársins, en
þess má einnig geta
að Sindri er tvítugur
og Ísak er aðeins
sautján ára gamall.Freyju Sigurðardóttur þarf vart að kynna fyrir Suðurnesjabúum
en hún hefur verið á kafi í íþróttum og líkamsrækt frá unga aldri.
Freyja hefur meðal annars keppt í Fitness með góðum árangri
og heldur einnig úti námskeiðum fyrir konur á öllum aldri sem
heita „Þitt Form“. Námskeiðin hennar njóta mikilla vinsælda
og slegist er um að komast að hjá henni þegar ný námskeið eru
auglýst. Við hittum Freyju í Sporthúsinu í tilefni af Heilsu- og for-
varnarvikunni og töluðum við hana um líkamsrækt og fleira.
Númer hvað er þetta námskeið í
„Þitt Form“?
„Þetta er námskeið númer 34. Við
tökum alltaf hlé um jólin og á sumrin.
Þannig að þetta er búið að ganga ótrú-
lega vel.“
Hvernig hefur þátttakan verið í
gegnum árin?
„Hún hefur verið ótrúlega góð. Það
hefur verið fullt á öll námskeið frá
því ég byrjaði og námskeiðin eru fyrir
konur. Það eru 45 þátttakendur á
hverju námskeiði og þrjú námskeið í
gangi í einu.“
Hvað telur þú vera lykilinn að svona
góðri þátttöku á hverju námskeiði?
„Lykillinn er gleði. Það er ótrúlega
gaman að koma hérna inn og sjá kon-
ur á öllum aldri, þær eru frá 16 ára
upp í 64 ára og allar koma hingað til
þess að taka á því, hafa gaman og bara
njóta.“
Er erfitt að fá konur í ræktina eða til
þess að hreyfa sig?
„Ég hélt það væri erfiðara en konur
eru duglegar að tala sín á milli og þetta
er því fljótt að spyrjast út. Þessi salur
sem við erum í er líka góður, hér eru
engir gluggar og enginn að fylgjast
með okkur. Þær sem eru feimnar fá
bara að vera í sínu „prívati“ án þess að
einhver sé að fylgjast með þeim.“
Hver er lykillinn að góðri heilsu að
þínu mati?
„Númer eitt, tvö og þrjú er hvíld, nær-
ing og að hreyfa sig. Í dag er mikið
um tölvur, kyrrsetuvinnu og fleira.
Það skiptir miklu máli að fólk sé að
vakna og hreyfa sig því gigt og fleiri
sjúkdómar eru oft eitthvað sem við
erum bara að búa til sjálf. Það er fljótt
að spyrjast út hvað fólk er að gera, fólk
sem er að vinna á sínum sjúkdómum
og sigrast á þeim er að tala og segja frá
sínum árangri.“
Er mataræðið mikilvægt?
„Mataræðið skiptir öllu. Ef þú ert ekki
að standa þig í mataræðinu þá er í
rauninni ekkert að gerast líkamlega
þannig séð. Hreyfingin ein út af fyrir
sig er þó alltaf góð, að styrkja líkama
og sál. En ef þú ætlar að grennast
sérstaklega þá er mataræðið mikil-
vægast.“
Þú ert núna ófrísk af barni númer
fjögur. Hefur þú haldið áfram að
hreyfa þig eins mikið á meðgöng-
unni og áður?
„Ég hef breytt hreyfingunni aðeins. Ég
er ekki eins mikið að hlaupa og hoppa
núna en ég hreyfi mig á hverjum
einasta degi, er að þjálfa „Þitt form“
námskeið og er líka með þjálfun niðri
í tækjasal. Þannig ég hef minnkað
aðeins æfingarnar en held áfram að
þjálfa, er komin 32 vikur núna þannig
það er lítið eftir hjá mér.“
„Það skiptir miklu máli að fólk
sé að vakna og hreyfa sig,“
segir einkaþjálfarinn Freyja Sigurðardóttir
Andri Fannar og Rafn
bestir hjá fotbolti.net
2. deildin gerð upp
Hörður Fannar Björgvinsson,
Styrmir Gauti Fjeldsted og Andri
Fannar Freysson eru allir í liði ársins
í 2. deildinni hjá fotbolta.net.
Andri Fannar var valinn leikmaður
ársins en hann fékk flest atkvæði
allra leikmanna í liði ársins og Rafn
Vilbergsson var valinn þjálfari árs-
ins.
Njarðvík komst upp í Inkasso-deildina
í sumar og áttu góðu gengi að fagna í
annarri deildinni en þeir sigruðu hana
sannfærandi með ellefu stigum meira
en næsta lið.
■ Keflavík vann nokkuð öruggan sigur á Skallagrími 93-73 þegar liðin
mættust í „Meistarar meistaranna“ síðastliðinn sunnudag. Keflavíkur-
stúlkur voru með yfirhöndina nánast allan leikinn og sagði Sverrir Þór
Sverrisson, þjálfari Keflavíkur, í viðtali við karfan.is að hungrið væri enn
til staðar og að liðið ætlaði sér alla þá titla sem í boði eru.
Stigahæstar hjá Keflavík voru þær
Birna Valgerður Benónýsdóttir með
18 stig, Emelía Ósk Gunnarsdóttir
með 18 stig og 4 fráköst, Brittanny
Dinkins með 16 stig og 6 fráköst og
Thelma Dís Ágústdóttir með 12 stig,
4 fráköst.
Keflavík hefur leik í Domino’s-deild
kvenna miðvikudaginn 4. október
næstkomandi en þá mæta þær Snæ-
felli á Stykkishólmi.
Keflavíkurliðið ásamt þjálfurum/mynd frá karfan.is
Keflavík meistarar meistaranna
Lögðu Skallagrím örugglega
Njarðvíkingarnir Ægir Már Bald-
vinsson og Bjarni Darri Sigfússon
munu keppa á Inferno 9
bardagakvöldinu í Skot-
landi sem fram fer þann
7. október næstkomandi.
Ægir Már mun þar keppa í
MMA en Bjarni Darri í upp-
gjafarglímu.
Ægir Már er 18 ára gamall og mætir Aaron Towns
í bantamvigt, en þetta er í fyrsta sinn sem Sleipnir í
Reykjanesbæ sendir frá sér MMA-keppendur og
þar af leiðandi fyrsti MMA-bardagi Ægis. Ægir er
margfaldur Íslandsmeistari í júdó og taekwondo
og hefur einnig unnið til verðlauna í brasilísku
jiu-jitsu.
Bjarni Darri mun keppa, eins og áður segir,
í uppgjafarglímu á sama bardagakvöldi.
Bjarni er einnig 18 ára gamall en hann er
Íslandsmeistari unglinga í júdó, taekwondo
og brasilísku jiu-jitsu.
GRILLAÐIR HAMBORGARAR
FYRIR LEIK
MEISTARAFLOKKUR KARLA
KEFLAVÍK - VALUR
TM-HÖLLIN FIMMTUDAGINN 5. OKTÓBER KL. 19:15
MEISTARAFLOKKUR KVENNA
KEFLAVÍK - VALUR
TM-HÖLLIN LAUGARDAGINN 7. OKTÓBER KL. 16:30