Víkurfréttir - 05.10.2017, Side 23
Íþróttir á Suðurnesjum fimmtudagur 5. október 2017
- Andri Rúnar markakóngur ársins
■ Grindavík mætti Fjölni á heima-
velli síðastliðinn laugardag og end-
aði leikurinn með 2-1 sigri Grinda-
víkur.
Töluverð pressa var á Andra Rúnari
markakóngi sumarsins að jafna eða
bæta markametið í efstu deild en hann
brenndi af víti á 21. mínútu. Milos
Zeravica bætti hins vegar úr því og
fylgdi skoti Andra Rúnars eftir og
kom Grindavík yfir 1-0. Fjölnismenn
jöfnuðu síðan metin á 54. mínútu en
Andri Rúnar hélt spennunni gangandi
út leikinn og nítjánda markið hans
kom á 88. mínútu þegar hann kom
Grindavík í 2-1. Þar með varð Andri
Rúnar markakóngur sumarsins ásamt
því að bæta markametið í efstu deild.
Andri Rúnar var valinn leikmaður
ársins hjá KSÍ en það eru leikmenn
sem kjósa um hver er bestur í deild-
inni. Andri var einnig markakóngur
deildarinnar.
Grindavík endaði í 5. sæti Pepsi-
deildar karla í sumar og komu ansi
mörgum á óvart með frammistöðu
sinni en þeim var spáð falli.
Grindavík
með sigur í lokaleik
Góður árangur ÍRB á Bikarkeppni SSÍ 2017
Sundfólk stóð sig vel þrátt fyrir að tímabilið sé nýhafið
■ Bikarkeppni SSÍ fór fram í Vatna-
veröld um helgina. Góður árangur
náðist í mörgum greinum hjá Sund-
deild ÍRB þrátt fyrir að tímabilið sé
nýhafið. Margir bættu tímana sína,
eða í alls 28 sundum, sem gefur góð
fyrirheit um framhaldið.
Í 1. deildinni endaði kvennalið ÍRB
í öðru sæti í eftir hörkukeppni við
lið SH og karlaliðið hafnaði í þriðja
sæti. ÍRB sendi einnig kvennalið í 2.
deildina sem gerði sér lítið fyrir og
rúllaði upp deildinni annað árið í röð.
Mikil breidd er í kvennaliðunum
sunddeildarinnar en meðalaldurinn
er ekki hár. Því er ljóst að kvenna-
deildirnar hjá sunddeildinni verða
öflugar á komandi árum. Karlaliðið
er með nokkur skörð en þar er sama
staðan, meðalaldurinn ekki hár en
framtíðin björt.
Már Gunnarsson keppti með karla-
liðinu og gerði sér lítið fyrir og setti
fjögur met á mótinu í flokki s13. Því
miður voru eingöngu tvö af þeim gild
þar sem laugin var ekki í lögleg þar
sem færanlega brúin hafði skekkst um
einn millimeter. Því var síðan kippt í
liðinn og Már sló í framhaldinu tvö
önnur met. Hann er í góðu formi en
hafði sett stefnuna á HM, sem var
síðan frestað vegna jarðskjálfta.
Sveitarfélagið Vogar auglýsir lóðir til úthlutunar fyrir íbúðabyggingar. Um er að ræða s.k. miðsvæði,
fyrsta áfanga. Í þessum áfanga verður úthlutað lóðum undir fjölbýlishús (5 hús með 6 íbúðum hvert,
2 hús með 20 íbúðum hvort), parhús (5) og einbýlishús (5). Umsóknareyðublöð ásamt úthlutunar-
skilmálum og gjaldskrá er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins, www.vogar.is
Umsóknarfrestur er til 21. október 2017, og skal umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt
fylgigögnum skilað til skrifstofu sveitarfélagsins, hvort heldur er með rafrænum hætti (tölvupóstur,
umsókn á heimasíðu) eða með því að póstsenda gögnin á Sveitarfélagið Voga, Iðndal 2, 190 Vogar.
Séu fleiri en ein umsókn um hverja lóð verður dregið úr gildum umsóknum.
Skila skal greiðslumati með umsókn. Lágmarksupphæð er sem hér segir:
Einbýlishús: kr. 40.280.000,- pr. lóð.
Parhús: kr. 40.280.000,- pr. lóð.
Fjölbýlishús I og II: kr. 134.400.000,-
Vogar eru staðsettir nokkurn veginn mitt á milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar.
Í sveitarfélaginu búa nú um 1.230 íbúar. Megin áherslur atvinnulífsins eru á vettvangi matvælafram-
leiðslu. Í Vogum er starfræktur heildstæður grunnskóli (1. – 10. bekkur), ásamt leikskóla. Sundlaug,
íþróttahús og íþróttamannvirki eru einnig til staðar. Öflugt íþróttastarf er á vegum Ungmenna-
félagsins Þróttar, sveitarfélagið starfrækir einnig félagsstarf fyrir unglinga og eldri borgara.
Vogum, 29. september 2017,
Ásgeir Eiríksson
bæjarstjóri
Úthlutun byggingalóða
í Sveitarfélaginu Vogum
- Grindvíkingar gera upp knattspyrnusumarið
■ Lokahóf knattspyrnudeildar
Grindavíkur fór fram um síðast-
liðna helgi og var sumarið gert
upp með viðurkenningum og verð-
launum.
Andri Rúnar Bjarnason var valinn
besti leikmaður karla ásamt því að
vera sá markahæsti. Í öðru sæti í val-
inu um besta leikmanninn var Krist-
ijan Jajalo og í þriðja sæti var Sam
Hewson, en hann var einnig valinn
mikilvægasti leikmaðurinn.
Linda Eshun var valin besti leik-
maður kvenna, í öðru sæti var Ril-
ani Aguiar Da Silva og í því þriðja
Viviane Domingues. Ísabel Jasmín
Almarsdóttir var efnilegust og var
Sara Hrund Helgadóttir mikilvægasti
leikmaðurinn. Markahæstu leikmenn
Grindavíkur í Pepsi-deild kvenna í
sumar voru þær Rilani Aguiar Da
Silva og Carolina Mendes.
Sara Hrund Helgadóttir var einnig
heiðruð um kvöldið fyrir sitt framlag
fyrir félagið en hún þurfti að leggja
takkaskóna á hilluna fyrr í sumar
vegna höfuðmeiðsla.
Í öðrum flokki karla var besti leik-
maðurinn Sigurður
Bjartur Hallsson en
hann var einnig sá
markahæsti.
Liðstjórar Grinda-
víkur, þeir Arnar
Már Ólafsson og
Guðmundur Ingi
G u ð m u n d s s o n ,
fengu viðurkenn-
ingu fyrir ómetan-
legt starf fyrir félagið.
Myndir:
Benóný Þórhallsson.
Mappa inn á sameign, lokahóf UMFG- Myndir:
Benóný Þórhallsson.
Andri Rúnar
og Linda best
Andri Rúnar með verðlaunin sem
besti leikmaður og markahæstur/
Mynd Benóný Þórhallsson