Víkurfréttir - 05.10.2017, Blaðsíða 24
■ Það er formlega komið
haust, mörgum finnst sum-
arið kveðja allt of snemma en
persónulega tek ég vetrinum
fagnandi. Rútínan er komin í
fullan gang og þá er körfubolt-
inn að hefjast sem í mínu til-
felli er mikið fagnaðarerindi,
enda er ég Liverpool-maður
og ekki yfir mörgu að gleðjast
þar þessa dagana. Áður en
ég renni yfir körfuna þá vil
ég senda knattspyrnuliðum
bæjarins innilegar hamingju-
óskir en bæði Keflavík og
Njarðvík fóru upp um deildir
í sumar. Keflavík mun aftur
spila í efstu deild og festa sig
þar vonandi í sessi og Njarðvík
sigraði 2. deildina og spreyta
sig í Inkasso-deildinni næsta
sumar. Reykjanesbær er mikill
íþróttabær og á veturna þá á
körfuboltinn sviðið.
Flaggskip bæjarfélagsins um
þessar mundir er hið unga og
frábæra kvennalið Keflavíkur
og er óhætt að segja að þær hafi
slegið í gegn síðasta vetur. Ég
hef fulla trú á að þær verji titla
sína núna í vetur, þetta lið er
einfaldlega það gott. Njarðvík-
urstúlkur eru svo annað ungt og
efnilegt lið en þeim er spáð falli
af flestum „sérfræðingunum“
en ég er ekki í nokkrum vafa
um að þær komi til með að
blása hressilega á þær spár. Það
kemur a.m.k. ekkert lið til með
að bóka sigur í Ljónagryfjunni í
vetur. Karlarnir hefja einnig leik
núna í vikunni og það verður
gaman að sjá hvernig okkar
liðum gengur. Hér á árum áður
var þetta oft spurningin bara
hvort liðið yrði Íslandsmeistari
en síðustu 37 tímabil (Frá 1981)
hafa Njarðvík (13) og Kefla-
vík (9) orðið Íslandsmeistarar
22 sinnum karlamegin sem er
ótrúlegur árangur! En sá stóri
hefur reyndar ekki komið hér
í bæ síðan árið 2009 og finnst
mörgum um allt of langt liðið
síðan það gerðist. Njarðvíkur-
liðinu er spáð ofar í vetur en
hvorugu liðinu er spáð alvöru
titlabaráttu. Það má hinsvegar
aldrei afskrifa þessi tvö lið og
ljóst að ef allt gengur upp þá eru
möguleikar fyrir hendi. Kefl-
víkingar voru ekki langt frá því
að skáka KR í fyrra og Njarðvík
2 árin þar á undan svo hver veit,
kannski verður þetta ár Reykja-
nesbæjarliðanna? Ég vil hvetja
bæjarbúa til þess að fjölmenna
á leiki liðanna í vetur, það er
svo mikilvægt að sína liðunum
stuðning, bæði þegar vel og illa
gengur. Deildirnar eru reknar
af frábæru fólki báðum megin
sem í sjálfboðavinnu berjast
fyrir því dag og nótt að halda
úti þessum glæsilegu liðum
sem eru svo flott auglýsing
fyrir bæjarfélagið okkar. Það
eru breyttir tímar, hér á árum
áður þá var í raun fátt annað í
boði á veturnar en að skella sér
á körfuboltaleik en nú er mikil
afþreying í boði. Reynum að
skipuleggja okkur, muna að það
sem er í sjónavarpinu er hægt
að horfa á tímaflakkinu og fjöl-
menna á Sunnubrautina og í
Ljónagryfjuna í vetur. Frábær
skemmtun í boði og félögin
bjóða einnig uppá frábærar
veitingar, pullurnar í Ljóna-
gryfjunni eru lostæti og þá eru
Keflvíkingarnir öflugir þegar
þeir kynda í grillinu á Sunnu-
brautinni.
Áfram Njarðvík….& Keflavík
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
Auglýsingasími: 421 0001
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir
Verður þá reyktur
Lundi á matseðl-
inum hjá Skólamat?
Mundi
LOKAORÐ
Örvars Kristjánssonar
Allir á völlinn! Axel Jónsson fékk Lundann
■ Axel Jónsson veitingamaður, stofnandi og
eigandi Skólamatar hlaut Lundann 2017 en
það er viðurkenning sem Kiwanisklúbburinn
Keilir í Reykjanesbæ veitir á hverju ári og
hefur gert frá árinu 2002. Verðlaunagripur-
inn er uppstoppaður lundi sem er afhentur
þeim einstaklingi sem þykir hafa látið gott
að sér leiða eða unnið óeigingjarnt starf í
þágu samfélagsins, bæjarbúa eða bæjar-
félagsins. Kiwanisfélagar efna á
hverju hausti til Lundafagnaðar
í KK-salnum í Reykjanesbæ
þegar viðurkenningin er veitt
og var nú sl. föstudagskvöld.
Axel hefur verið viðloðandi
veitingamennsku frá árinu
1978 en þá stofnaði hann
Veisluþjónustuna en
f i m m á r u m
síðar opnaði
hann fyrsta vínveitingastaðinn á Suðurnesjum,
Glóðina, en hún var mjög vinsæl lengi. Núna
rekur Axel og fjölskylda hans Skólamat, fram-
sækið fyrirtæki sem framleiðir skólamat fyrir
grunn- og leikskóla.
Lundinn var fyrst afhentur árið 2002 og þá
hlutu hann þeir Vilhjálmur Þorleifsson og
Óskar Ívarsson, starfsmenn áhaldahúss Reykja-
nesbæjar, en þeir höfðu unnið í áratugi við að
fegra bæinn.
Keilismaðurinn Ingólfur Ingibergsson
afhenti Axel Lundann 2017.
á Hringbraut alla fimmtudaga kl. 20:00 og 22:00 RAFBÍLAVÆÐINGIN OG HS ORKA
Þú getur hor á þáinn í sjónvarpi Víkurfréa á vf.is
Suðurnesjamagasín er vikulegur fré atengdur magasínþá ur frá Suðurnesjum framleiddur af starfsfólki Víkurfré a.
Ábendingar um áhugavert efni í þá inn má senda á póstfangið vf@vf.is eða með því að hringja í síma 421 0002 milli kl. 09-17 alla virka daga.
Kynslóð heiðruð í Keflavík
fótboltakappar í þæ i viku
ar!
Keflavíkurflugvöur
og flugnám hjá Keili og Icelandair