Fréttablaðið - 06.02.2018, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 06.02.2018, Blaðsíða 2
Veður Heldur hægari vestlæg átt og minnk- andi él í dag og kalt í veðri, en næsta lægð nálgast okkur úr suðvestri með vaxandi sunnanátt og hlýnandi veðri um kvöldið. sjá síðu 14 Fimmtíu ár frá sjóslysunum miklu í Ísafjarðardjúpi Það var í febrúarbyrjun árið 1968 sem 26 sjómenn af tveimur breskum togurum og einum íslenskum vélbáti fórust í Ísafjarðardjúpi. Af því tilefni var athöfn haldin um borð í varðskipinu Óðni til minningar um þá sem týndu lífi þennan örlagaríka dag og jafnframt til að minnast þess björgunarafreks sem áhöfnin á Óðni vann. Varðskipið liggur við festar við Sjóminjasafnið í Reykjavík við Grandagarð og hefur gert síðan 2008. Fréttablaðið/eyþór Rafvirkjar LED rakaþétt ljós www.olafsson.is Endursöluaðilar um land allt Snjöll lýsing! OSRAM LIGHTIFY: Aðlagaðu ljósið að þínum þörfum með Appi Jóhann Ólafsson & Co. Krókháls 3, 110 Reykjavík 533 1900 olafsson.is stjórnsýsla Staða aðstoðarseðla- bankastjóra verður auglýst í lok þessa mánaðar, samkvæmt upp- lýsingum frá forsætisráðuneytinu. Arnór Sighvatsson sem gegnt hefur starfinu frá 1. júlí 2009 hefur tvisvar verið skipaður í starfið. Samkvæmt ákvæði 23. greinar laga um Seðla- bankann getur hann ekki sótt um starfið aftur. Það er forsætisráðherra sem skipar aðstoðarseðlabanka- stjórann að undangenginni umsögn þriggja manna hæfnisnefndar. Nýr aðstoðarseðlabankastjóri mun síðan taka við í júlí. Seinna skip- unartímabil Más Guðmundssonar s e ð l a b a n k a s t j ó r a rennur út á næstu ári og gera lög um Seðla- bankann ráð fyrir að þá verði nýr maður skipaður í hans stað. – jhh Staða Arnórs auglýst í febrúar Viðskipti „Heimsóknum hefur fækkað mjög, sem er í takt við það sem við áttum von á,“ segir Bjarni Már Júlíusson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar (ON), um fyrstu daga gjaldtöku á hraðhleðslustöðv- um fyrirtækisins. Hann segir fram- kvæmdina þó hafa gengið vel. „Það voru engir strandaglópar því að þeir voru ekki tilbúnir, en við vorum með aðgerðir til að bjarga fólki ef það lenti í vandræðum,“ segir Bjarni en rafbílaeigendur hafa getað sótt um hraðhleðslulykla sem síðan þarf að virkja og tengja við greiðslu- kort. Um helmingur þeirra sem feng- ið hafa lykla senda hafa virkjað þá. Gjaldtaka hófst þann 1. febrúar en á reynslutímabili sölukerfisins verður tilboðsverð á rafhleðslu 17,1 króna á mínútu auk 20 króna fyrir hverja kílóvattstund. – smj Lítið að gera í hraðhleðslunni arnór Sighvatsson. Dómsmál Enda þótt umferðarlaga- brot teljist alla jafna ekki til stór- tíðinda, sýnir sagan að þau geti, ekki síður en stóru málin, orðið dómskerfinu skeinuhætt. Munnlegur málflutningur verður í Landsrétti í dag um kröfu Vil- hjálms H. Vilhjálmssonar lögmanns þess efnis að Arnfríður Einarsdóttir dómari víki sæti vegna vanhæfis í máli manns sem sakfelldur var fyrir umferðarlagabrot í héraði og áfrýj- að hefur verið til dómsins. Arnfríður er einn fjögurra dómara við réttinn sem skipaðir voru af ráðherra þrátt fyrir að vera ekki meðal þeirra sem hæfnisnefnd taldi hæfasta. Í ljósi nýlegra dómafordæma EFTA-dómstólsins og Evrópudóm- stólsins þess efnis að ólögmæt skipun dómara geti brotið í bága við 6. gr. Mannréttindadómstóls Evrópu er ekki loku fyrir það skotið að málið eigi fullt erindi til Strass- borgar rétt eins og mál Jóns Kristinssonar forðum. Árið 1985 var Jón Kristins- son dæmdur í héraði fyrir að hafa ekki virt stöðv- unarskyldu við gatnamót á Akureyri, en hann hafði neitað að fallast á sáttar- boð um greiðslu sektar. Jón fór með málið fyrir Hæstarétt og krafðist þess að h é ra ð s d ó m u r yrði ómerktur á þeim grundvelli að málið hefði ekki verið dæmt af hlutlausum dómara, þar eð sami maður hefði haft afskipti af málinu bæði við rannsókn þess sem lög- reglustjóri og svo sem dómari. Vildi Jón meina að þessi skipan stríddi gegn þeirri reglu að menn skuli dæmdir af óvil- höllum dómstól. Hæsti- réttur varð ekki við kröfum Jóns og sakfelldi hann fyrir umferðar- l a g a b r o t i ð . Refsingin var s a m k v æ m t d ó m s o r ð i , 3.000 króna sekt. Jón fór með málið til Strass- borgar á þeim grundvelli að íslensk dóm- stólaskipan bryti í bága við 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu. Málinu lauk með sáttargerð Jóns og íslenska ríkisins en í kjölfar sáttar- innar var allri dómstólaskipan í héraði breytt með aðskilnaði dóms- valds og umboðsvalds í héraði auk gagngerrar breytingar á réttarfars- löggjöf landsins. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson vildi ekki tjá sig um málið þegar Frétta- blaðið sló á þráðinn til hans og hvorki gefa upp hvort hann myndi kæra til Hæstaréttar, hafni Lands- réttur kröfunni um að Arnfríður víki sæti, né svara því hvort fyrir honum vaki að fara með málið alla leið fyrir Mannréttindadómstól Evr- ópu. Hann lét þess þó getið í samtali við blaðamann að „í upphafi skyldi endinn skoða“. adalheidur@frettabladid.is Umferðarlagabrot gæti skekið dómskerfið á ný Mál um umferðarlagabrot sem gæti valdið usla í dómskerfinu tekið fyrir í Lands- rétti í dag. Ekki í fyrsta sinn sem slíkt brot gæti haft víðtæk áhrif á dómskerfið. Jón Kristinsson neitaði að borga sekt 1985 og fór með málið alla leið til Strassborgar. Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður. Jón Kristinsson bauð íslenska dómskerfinu byrginn um miðjan níunda ára- tuginn. Í kjölfarið voru gerðar breytingar á réttarfarslöggjöfinni. Fréttablaðið/GK Belgía Salah Abdeslam, síðasti lifandi maðurinn sem grunaður er um aðild að hryðjuverkaárásunum á París árið 2015, kom fyrir dóm í gær og kom því á framfæri að hann ætlaði að nýta þagnarrétt sinn. Mun hann því ekki svara neinum spurningum dómara. Abdeslam var eftirlýstur í fjóra mánuði eftir árásirnar en var hand- tekinn í Brussel eftir skotbardaga við lögreglu. Fyrir þann bardaga er hann ákærður. Saksóknari fer fram á tuttugu ára fangelsisdóm. Ekki er búist við að Abdeslam fari fyrir dóm í Frakklandi fyrir meinta aðild að hryðjuverkaárásunum fyrr en á næsta ári. Á meðal þess fáa sem Abdeslam sagði í gær var að komið væri illa fram við múslima í Belgíu og Frakk- landi. Bað hann saksóknara að byggja mál sitt á staðreyndum og að reyna að gera ekki hvað sem er til að friða almenning. – þea Ætlar að nýta þagnarréttinn 6 . f e B r ú a r 2 0 1 8 Þ r i ð j u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 0 6 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E E 7 -0 5 C 8 1 E E 7 -0 4 8 C 1 E E 7 -0 3 5 0 1 E E 7 -0 2 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 5 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.