Fréttablaðið - 06.02.2018, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 06.02.2018, Blaðsíða 24
Fá má Kona með afar frískri 177 hestafla vél, sem og lítilli 1,0 lítra 120 hestafla vél. Reynsluakstur Finnur Thorlacius finnurth@365.is Kostir og gallar Hyundai Kona l 1,0 lítRa bensínvél l 120 hestöfl l fRamhjóladRif eyðsla frá: 5,2 l/100 km í bl. akstri mengun: 117 g/km CO2 hröðun: 12,0 sek. í 100 km hraða hámarkshraði: 181 km/klst. verð frá: 3.590.000 kr. Umboð: BL Kauptúni l Vel búinn l lagleg innrétting l Öflug stærri vélin l Hörð fjöðrun l umdeilt útlit Áfram streyma þeir í röðum litlu nýju jepplingarnir frá hverjum bílaframleiðand- anum á fætur öðrum og enginn má missa af þeirri lest, enda eftir- spurnin eftir þeim mikil nú um stundir og spáð að hún muni enn vaxa. Hyundai hafði fyrir tilkomu þessa netta jepplings með kven- lega nafnið ekki teflt fram bíl í Compact Crossover-flokki en Kona fellur í þann flokk bíla, sem einnig hefur verið nefndur B-SUV flokkur. Það sætir reyndar furðu hvað svo framsækinn bílaframleiðandi sem Hyndai er skuli svo seint mæta til leiks með slíkan bíl, en fyrir eru talsvert stærri Tucson og Santa Fe, sem báðir eru mjög vel heppn- aðir bílar en falla í flokka stærri jepplinga/jeppa. Hyundai hefur frá 2001 selt 1,4 milljónir Santa Fe í Evrópu og frá tilkomu Tucson árið 2015 hafa selst 250.000 slíkir í álfunni og selst hann nú hraðar en Santa Fe. Þegar bílaframleiðandi mætir einmitt seint til leiks í ein- hverjum flokki vill hann gera það með trukki og þar valdi Hyundai að vera djarft í hönnun Kona-jepp- lingsins. Þar sýnist sitt hverjum, eins og ávallt er kemur að útliti, en Hyundai hefur bæði verið hrósað og skammað fyrir ytra útlit bílsins. Eitt sem þó örugglega er hægt að hrósa Hyundai fyrir hvað útlit bílsins varðar er tvíliturinn sem í boði er. Hægt er að velja á milli 10 aðallita og þriggja þaklita og því eru margar skemmtilegar útfærslur í boði. Flott innra útlit og vel búinn Að innan eru skoðanir minna skiptar, þar er hann hinn allra laglegasti og djarflega frísklegur. Fyrst er kannski að nefna 5,7 eða 8 tommu aðgerðaskjá, allt eftir misdýrum útfærslum innrétt- ingarinnar, sem allir prýða þó mælaborðið. Öðruvísi litir saumar og líningar á sætum og víðar í inn- réttingunni setja sportlegan stíl á bílinn og er með dýrara útlit en verðmiðinn segir til um. Efnisval í mælaborði og innréttingu er með besta móti og gefur þó nokkra lúxustilfinningu. Ferlega frísklegt var að sjá að sætisbeltin eru í sama lit og ytri litur bílsins, óvenjulegt og töff en gæti þó komið illa út í gulu. Framsætin eru mjög góð og prýðilega fer um aftursætisfarþega en stærri einstaklingar gætu þó glímt við fótaplássið. Skottrýmið er álíka stórt og í samkeppnisbílum Kona, eða 361 lítri. Óvanalegt var að sjá að í betur útbúnu gerðum Kona var „head-up-display“ sem varpar helstu upplýsingum upp á framrúðuna, eitthvað sem maður er ekki vanur að sjá í þessum flokki bíla. Útsýni úr bílnum er gott og maður situr hátt, sem er nú einmitt meginástæðan fyrir því hve margir kaupa nú jepplinga og innstigið í réttri hæð. Bíllinn er mjög hljóð- látur, kostur sem oft er vanmetinn meðal ökumanna. Þrælöflug 177 hestafla vél Vélarkostirnir í Kona eru ekki margir, 1,0 lítra og þriggja strokka 120 hestafla bensínvél og 1,6 lítra og fjögurra strokka og 177 hestafla afar frísk bensínvél. Dísilútgáfa bílsins, með 1,6 l og 115 hestafla vél, kemur síðan í sumar og örfáum mánuðum seinna mun Hyundai koma með rafmagnsútfærslu bílsins. Með minni vélinni er bíllinn með 6 gíra beinskiptingu en sú stærri er tengd við 7 gíra „dual-clutch“ sjálfskipt- ingu og þá er bíllinn líka fjórhjóla- drifinn. Eyðslan með 1,0 lítra vél- inni er 5,2 l en 6,7 l með þeirri stærri og mengunin 117 og 153 CO2. Með 177 hestafla vélinni er Kona ári frískur bíll og hendist í hundraðið á svo litlu sem 7,9 sekúndum, sem stendur sumum minni sportbílum lítt að baki. Með þeirri minni er hann öllu latari og tíminn 12,0 sekúndur, en samt er akstur hans furðu góður. Í raun er akstur Kona skemmtilega sportlegur, fjöðrunin frekar stutt og snögg, en fyrir vikið er hann stundum nokkuð harður ef undirlagið er hrjúft. Örlítið vantar á tilfinninguna fyrir stýringu bílsins. Kona kemur á 16, 17 eða 18 tommu álfelgum og satt best að segja er lík- lega best að velja minnstu gerðina aksturseiginleikanna vegna, en þar sem fjöðrunin er fremur stíf mýkist hún með meiri barða og minna áli. Það kemur þó niður á útlitinu. Vel finnst fyrir því að með stærri vélinni er bíllinn með betur útfærðri fjöðrun, sérstaklega að aftan, og fyrir vikið betri akstursbíll. Fyrir það þarf þó að borga meira. Frískleg Kona mætt á göturnar Hyundai Kona er þegar mætt til BL og þar fer enn einn djarflega teiknaður lítill jepplingur. Hann má fá með mjög öflugri 177 hestafla bensínvél sem hendir honum í 100 á litlum 7,9 sekúndum. Með stærri vélinni er Kona ári frískur bíll og hendist í hundr- aðið á svo litlu sem 7,9 sekúndum. 6 . f e b R ú a R 2 0 1 8 Þ R i Ð j U d a G U R10 b í l a R ∙ f R é t t a b l a Ð i Ð Bílar 0 6 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E E 7 -3 7 2 8 1 E E 7 -3 5 E C 1 E E 7 -3 4 B 0 1 E E 7 -3 3 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 5 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.